Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 lÍs en ku ALPARNIR s FAXAFENI 8, SÍMI 534 2727 alparnir.is Tollalækkun Salomonskór á ennbetra verðien áður!Salomon Speedcross 3 dömuskór Stærðir 36-41 Verð áður 29.995 kr. nú 24.995 kr. Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is Bryndís Kristjánsdóttir skattrann- sóknarstjóri segist bíða listans sem blaðamannasamtökin ICIJ hafa yfir félög í skattaskjólum og mun hefja rannsókn ef tilefni er til. Listinn verður birtur á næstunni að sögn fjölmiðlamannsins Jóhannesar Kr. Kristjánssonar. Bryndís segir embættið ætla að halda sig utan umræðunnar um einstök félög. Skattrannsóknarstjóri keypti í byrjun síðasta sumars gögn um skattskil 400 til 500 félaga í eigu Íslendinga erlendis af huldumanni. Flest málin voru send áfram til Ríkisskattstjóra og er það niður- staða embættisins að skoða þurfi málin betur. Eftir frekari skoðun gætu nokkur alvarleg mál ratað aftur til skattrannsóknarstjóra, að sögn Bryndísar. Skattrannsóknarstjóri hélt hins vegar þrjátíu alvarlegustu málunum eftir og er töluvert langt í að rannsókn á þeim verði lokið, að sögn Bryndísar. Mögulega er niðurstöðu ekki að vænta fyrr en á næsta ári. Ekki er orðið ljóst hversu mörg þeirra mála verða send áfram til lög- reglu eða sérstaks saksóknara. „Stundum skýrast málin og verða kannski felld niður en önnur geta orðið stærri en maður ætlaði í upphafi,“ segir Bryndís og bætir við að lítið sé því hægt að segja núna. Listinn birtur á næstunni Annar listi en sá aðkeypti rataði síðan nýlega í fréttir. Að honum standa alþjóðleg samtök rannsókn- arblaðamanna, ICIJ, og þýska dag- blaðið Suddeutsche Zeitung, ásamt fjölmörgum fjölmiðlum í nokkrum löndum. Íslenski fjölmiðlamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson er þeirra á meðal og segir hann að listinn verði birtur á næstunni. Að öðru leyti segist hann bundinn trúnaði og getur ekki gefið upp ná- kvæmari tíma. Þá segist hann ekki geta staðfest orðróm um að nöfn stjórnmálamanna og annarra þekktra einstaklinga sé að finna á listanum en líkt og fram hefur komið er þar að minnsta kosti að finna Tortóla-félag eiginkonu forsætisráð- herra. Hún greindi frá því eftir að fyrirhuguð birting lá fyrir. Áreiðanlegar upplýsingar Aðspurð hvort listarnir tveir séu sambærilegir segir Bryndís það ekki liggja fyrir. Hún segir ljóst að embættið muni fá þessi gögn í hend- ur og að rannsókn verði hafin í framhaldinu ef tilefni er til. „Við myndum ætla, líkt og í öðrum lek- um, að þetta séu áreiðanlegar upp- lýsingar og það hafa í sjálfu sér ekki verið neinar deilur um það,“ segir hún. Hún segir þennan lista þó engin áhrif hafa á framgang núverandi rannsóknar, en ef viðbótargögn um málin komi í ljós verði einnig litið til þeirra. Aðspurð um einstök félög eða einstaklinga á lista skattrannsókn- arstjóra segist Bryndís engu geta svarað. Hún segist reyna að halda sig utan umræðunnar sem nú er í gangi. „Það er búið að boða birtingu þessara gagna frá ICIJ en þangað til höldum við bara okkar striki. Ég hef mínar hugmyndir um þetta en tel að það sé ekki tímabært að tjá mig fyrr en þetta liggur fyrir,“ segir Bryndís Kristjánsdóttir. Bryndís bíður eftir nýjum lista  Skattrannsóknarstjóri mun skoða lista ICIJ yfir eignir Íslendinga í skattaskjólum  Listinn verður birtur á næstunni  Rannsókn á málum vegna listans sem var keyptur í fyrra gæti dregist út árið Jóhannes Kr. Kristjánsson Bryndís Kristjánsdóttir Ný verslun Rúmfatalagersins verð- ur opnuð á Granda í sumar, nánar tiltekið á milli verslana Byko og Elko sem fyrir eru á svæðinu, þ.e. við Fiskislóð. „Það eru ekki komnar fastar dagsetningar en það er stefnt að því að opna í maí eða júní,“ segir Bjarki H. Beck Brynjarsson, mark- aðsstjóri Rúmfatalagersins, en það hafi verið markmið fyrirtækisins að efla þjónustu sína við Seltirninga og Vesturbæinga. „Við vonumst til að okkur verði tekið vel þar og bú- umst við að allt gangi vel,“ bætir hann við. Verslunin verður 1.200- 1.400 fermetrar að stærð og búast má við sama vöruúrvali og er að finna í öðrum verslunum fyrirtæk- isins. Verið er að auglýsa eftir starfsfólki til að manna stöður í versluninni og þegar hefur verið ráðið í nokkrar þeirra. Betrumbætt Byko Á Fiskislóð er því að vænta tölu- verðra breytinga á næstunni en einnig er verið að standsetja bygg- ingarvöruverslunina Byko í rýminu sem hýsti áður timbursölu þeirra á svæðinu. „Timbursala, lagnadeild og leigumarkaður ásamt venjulegri verslun verður áfram á staðnum,“ segir Leifur Örn Garðarsson, mark- aðsfulltrúi Byko, en verslunin muni eitthvað minnka í fermetrum talið. „Vöruúrvalið verður meira í takt við það sem er að gerast á þessu svæði,“ segir Leifur. Áætlað er að ný og betrumbætt verslun Byko líti dagsins ljós í apríl en verslunin er opin þangað til. laufey@mbl.is Rúmfatalagerinn opnaður á Fiskislóð  Þjónusta Vesturbæ og Seltjarnarnes Morgunblaðið/Styrmir Kári Breytt Rúmfatalagerinn verður á milli Byko og Elko á Fiskislóð. Byko minnkar við sig og bætir vöruúrval. „Ef fyrirtæki eru með einhverjum hætti að reyna að leggja mat á hæfni starfsfólks áður en gengið er frá ráðningu þá sé það gert í samræmi við gildandi kjara- samninga,“ segir Þorsteinn Víg- lundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins (SA), spurður um af- stöðu samtak- anna til þess að atvinnurekendur þiggi vinnufram- lag ungmenna á svokölluðum prufu- vöktum án þess að greiða þeim laun fyrir. „Við höfum ekki heyrt að þetta sé mjög algengt þannig að það er erfitt að festa hendur á því hversu mikið umfangið er,“ bætir Þor- steinn við. Stefna SA í málum sem þessum sé að kjarasamningar marki lágmarkskjör og fyrirtæki skuldbindi sig til að vinna eftir þeim viðmiðum. Halldór Grönvold, aðstoðarfram- kvæmdastjóri ASÍ, sagði í Morg- unblaðinu í gær að vaxandi dæmi væru um slík brot fyrirtækja á lög- bundnum kjarasamningum og sagði slíka hegðun með öllu ólöglega. Ráðleggja félagsmönnum „Það er í verkahring verkalýðs- hreyfingarinnar að ráðleggja starfs- fólki um rétt sinn þegar kemur að svona álitaefnum,“ segir Þorsteinn en SA ráðleggi fyrirtækjum með sama hætti hvað varðar túlkun á kjarasamningi og brýni fyrir þeim að vinna eftir ákvæðum kjarasamn- inganna sem marka lögbundin lág- markskjör. „Við viljum auðvitað ekki, í þess- um efnum frekar en öðrum, sjá að fyrirtæki séu að byggja upp sam- keppnisstöðu sína með ólögmætum hætti með því að undirbjóða og vinna ekki í takti við gildandi kjara- samninga eða standa ekki skil á lögbundnum gjöldum og sköttum til hins opinbera. Við höfum engan skilning á slíku,“ segir Þorsteinn. Telur hann ólíklegt að SA myndi stíga inn í lögsókn gegn fyrirtæki sem brotið hefði kjarasamninga með þessum hætti. „Slík lögsókn byggðist á launakröfu viðkomandi starfsmanns og snýr að viðkomandi vinnuveitanda.“ laufey@mbl.is „Höfum engan skilning á slíku“  SA telur undirboð ekki vera algengt Þorsteinn Víglundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.