Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.03.2016, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 ✝ Ingi Hans Sig-urðsson, lög- maður, var fæddur 31. maí 1953 á Ísa- firði. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 19. mars 2016. Faðir hans var Sigurður Ólafsson, kennari á Ísafirði og síðar skólastjóri og hreppstjóri í Sandgerði, fæddur 6. sept- ember 1918, dáinn 13. mars 1985. Foreldrar hans voru Ólaf- ur G. Sigurðsson, kennari og hreppstjóri á Flateyri, og kona hans Valgerður Guðmunds- dóttir, húsfreyja. Móðir Inga var Guðrún Jörgensdóttir Han- sen, húsfreyja á Ísafirði og kennari í Sandgerði, fædd 27. maí 1921, dáin 28. ágúst 2001. Foreldrar hennar voru Jörgen Hansen, skrifstofustjóri í Reykjavík, og kona hans Inga Skúladóttir Hansen, húsfreyja. Systkini Inga eru Ólafur G. Sig- urðsson, endurskoðandi, fædd- ur 30. september 1942, Skúli Axel Sigurðsson, lögg. fast- eignasali, fæddur 2. desember 1947, og Ragnheiður Sigurð- ardóttir, hjúkrunarfræðingur, fædd 18. desember 1948. Ingi var stúdent frá M.A. 1973 og Cand. Juris frá Háskóla Íslands 30. júní 1979. Að loknu embætt- isprófi starfaði Ingi við Bæj- arfógetaembættið í Keflavík til ársins 1983. Frá árinu 1984 og þar til að hann þurfti að láta af störfum vegna heilsubrests, rak hann eigin lög- mannsstofu og í samstarfi með öðr- um. Sambýliskona Inga var Halla Hreggviðsdóttir, viðskiptafræðing- ur, fædd 21. maí 1953. Þau slitu sambúð. For- eldrar hennar voru Hreggviður Magnússon, kaupmaður í Reykjavík, fæddur 16. ágúst 1922, dáinn 22. júní 1954, og kona hans Sesselja Jóna Magn- úsdóttir, húsfreyja, fædd 27. júní 1921, dáin 8. mars 1993. Sonur Inga og Höllu er Hregg- viður Ingason, fjármála- stærðfræðingur, fæddur 29. maí 1978. Sambýliskona Hregg- viðs er Linda Garðarsdóttir, hagfræðingur, fædd 29. apríl 1982. Foreldrar hennar eru Garðar Hilmarsson, formaður Starfsmannafélags Reykjavík- urborgar, fæddur 13. ágúst 1951, og Sigríður G. Benedikts- dóttir, skrifstofustjóri, fædd 23. febrúar 1952. Börn Hreggviðs og Lindu eru: Ingi, fæddur 18. júní 2009, Hildur Sigríður, fædd 11. ágúst 2013 og óskírður son- ur fæddur 14. mars 2016. Ingi verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 30. mars 2016, klukkan 13. Það er með miklum trega og söknuði sem ég kveð elskulegan tengdaföður minn í dag. Ingi var einstakur maður, með góða nærveru og góðmennskan upp- máluð. Þrátt fyrir erfið veikindi í sex ár þá heyrði ég hann aldr- ei kvarta, hann fór heldur þá leið að reyna að kynna sér veik- indin sín og lyfin sem honum var ráðlagt að taka í þaula til þess að skilja ferlið til hlítar. Við fjölskyldan héldum alltaf í vonina að Inga myndi batna og helst að hann fengi nýtt hjarta, sem virtist það eina sem myndi duga. Undir lokin var hann þó orðinn of veikur til að fara í að- gerð og lítið hægt að gera. Það getur verið stutt milli gleði og sorgar eins og við fjöl- skyldan höfum upplifað síðustu daga en við Hreggviður eign- uðumst okkar þriðja barn að- eins fimm dögum áður en Ingi kvaddi þennan heim. Hann spurði mig alltaf mikið út í líð- an mína og taldi niður dagana þar til litli drengurinn okkar átti að koma í heiminn. Við er- um mjög þakklát fyrir að þeir náðu að hittast og það var mjög góð stund að sjá gleðina skína úr augum Inga þrátt fyrir mikil veikindi. Við trúum því að hann hafi verið að bíða eftir þriðja barnabarninu sínu áður en hann gæti leyft sér að fara. Ingi var mjög góður afi og sá ekki sólina fyrir barnabörnun- um sínum. Hann laumaði iðu- lega einhverju að þeim þegar hann kom í heimsókn og ef við vorum ekki heima þegar hann kom þá beið oft eitthvað á hurðarhúninum til þeirra. Þá vissum við alltaf að þetta væri frá Inga afa. Ingi hafði mikið dálæti á því að fara vestur í Dali og undi sér þar mjög vel. Mér fannst alltaf eins og hann væri þaðan sjálfur enda hafði hann farið þangað reglulega í tæp 30 ár. Honum þótti mikið til koma að ég væri ættuð þaðan og gátum við rætt mikið saman um það og höfðum gaman af. Ferðir okkar fjölskyldunnar með Inga voru alltaf mjög skemmtilegar, hvort sem um var að ræða á Víghólsstaði eða í laxveiðiferðir. Eitt helsta áhugamál Inga var veiði og eig- um við fjölskyldan ófáa hluti tengda því sporti sem hann hef- ur gefið okkur í gegnum tíðina. Hann hafði líka mjög gaman af því að fylgjast með barnabörn- unum athafna sig á bakkanum og segja þeim til. Í einni af okk- ar fyrstu veiðiferðum, eftir að við Hreggviður eignuðumst Inga okkar, þá var Ingi afi bú- inn að láta útbúa verðlaunapen- ing til að gefa nafna sínum þeg- Ingi Hans Sigurðsson ar það kæmi fiskur. Þetta er mjög lýsandi fyrir Inga. Hann var mjög hugmyndaríkur og lagði mikið upp úr því að finna eitthvað sniðugt til að gefa. Á þessum erfiðu tímamótum er gott að minnast allra góðu stundanna sem við áttum sam- an. Börnin okkar voru mjög hrifin af afa sínum og munum við fjölskyldan passa upp á að halda minningu Inga afa á lofti um ókomna tíð. Linda Garðarsdóttir. Farinn er góður maður. Ingi var einstaklega yfirvegaður, staðfastur og ráðagóður maður. Á sama tíma var hann afar glettinn og meinfyndinn. Í augnaráði hans var ávallt hægt að finna samkennd, kærleika og skilning. Ég tengdist Inga mjög náið strax frá fyrstu kynnum og áttum við bæði margar góð- ar samræður og þagnir. Hann hafði einstaklega þægilega nærveru og það geislaði frá honum lífsgleðin. Þessir eigin- leikar eru reyndar ríkjandi í fjölskyldu hans auk ótakmark- aðrar hógværðar. Frá því ég kynntist Inga bjó hann alltaf einn. Hann var samt aldrei einmana. Hann var einn af þeim, svo ríkur innra með sér og fullur kærleika að hann var sjálfum sér fullkomlega nægur. Einkasonur Inga, Hreggviður, var hans gullegg og miðja hans alheims og deildu þeir öllum sömu áhugamálum enda afar nánir. Okkur þykir einstaklega vænt um Hreggvið enda hefur hann í gegnum árin verið eins og þriðji bróðir Björns og Sigurðar. Veiðimennska var ein af ástríðum Inga og fórum við saman í ófáar laxveiðiferðir fjölskyldunnar. Þeir setja manni ný viðmið í veiði- mennsku, í þeirra veröld er þetta lífsstíll en ekki sport, hvað þá keppni. Við heimsótt- um Inga líka reglulega á sveita- setrinu hans, Víghól á Fells- ströndinni, í rjúpnaleit, en þar er mér afar minnisstætt þegar hann bauð upp á saltkjöt frá næsta býli. Saltkjöt er eitt af mínu uppáhaldi og það gladdi hann mjög hvað ég gat sett of- an í mig úr tunnunni og fyllti hann stöðugt á diskinn minn. Hann átti það nefnilega til að borða og drekka í gegnum fólk. Þar sem hann þurfti að tak- marka bæði vín- og saltkjöts- neyslu samkvæmt læknisráði hafði hann einstaklega gaman af að neyta þess í gegnum okk- ur hin, gestrisinn sem hann var. Ég kveð Inga með söknuði. Meiri ljúfling er varla hægt að finna. Það er synd að dætur okkar fái ekki að kynnast hon- um frekar, en við þökkum fyrir allar góðar samverustundir og sendum okkar dýpstu samúð og kærleik á Hreggvið og hans fjölskyldu sem og allt fólkið hans Inga. Hvíl í friði, kæri vin- ur. Helga Thors. Ingi Hans Sigurðsson, föð- urbróðir okkar, verður jarð- sunginn í dag. Mikill maður hefur kvatt langt fyrir aldur fram eftir harða rimmu við of- urefli. Ingi frændi bar höfuð og herðar yfir flesta samferða- menn sína í bókstaflegum skiln- ingi. Þetta skilaði honum lík- lega öðru sjónarhorni á flesta hluti en þorri fólks hefur. Hon- um var altjént einstaklega tamt að skipta hlutum upp í aðal- atriði og aukaatriði, Það smáa og það stóra. Náttúruleg víð- sýni gerði hann að einstaklega úrræðagóðum einstaklingi sem ávallt gat bent manni á fleti í hverju máli handan þess aug- ljósa. Þessi einstaki maður hafði leiftrandi frásagnargáfu sem með listilegum hætti hann óf inn í kolsvörtum húmor og tilvitnunum í heimsbókmenntir, skáld götunnar og samferðar- menn því það er sama hvaðan gott kemur. Langlundargeði frænda okk- ar var við brugðið og hvorugur okkar man eftir því að hafa séð hann reiðast nokkurri mann- eskju við nokkurt tilefni. Hann var vinsæll og vinamargur og gat verið hrókur alls fagnaðar þegar tilefni var til. Það lifnaði yfir okkur sem krökkum þegar von var á Inga frænda í kvöld- mat. Eftirminnilegast var þó að fara með honum í veiði því óháð gæftum þá blómstraði flest í kringum hann á árbökkum. Í veiði er hringrás lífsins yrk- isefnið. Allt á sér upphaf og endi og þessi hringrás minnti áþreifanlega á sig þegar örfáum dögum fyrir andlát frænda okk- ar fæddist honum þriðja barna- barnið er lítill afadrengur leit dagsins ljós. Myrkrið er mest rétt fyrir sólarupprás. Veiði- ferðir okkar feðga og frænda voru alveg sér kapítuli því þar pöruðust saman einhverjar heimspekilegar grunnstærðir í þessu lífi í bland við hæfileika og heppni, þrautseigju og þor, styrk, sveigjanleika og kannski einn og einn öl. Þessar ferðir voru frábær vettvangur sam- tala um líðan hvers og eins sem og heilabrota um lífið og til- veruna. Þar kristallaðist hversu vandaður einstaklingur Ingi var því hann hlustaði grannt og forðaðist segja manni hvernig hlutirnir væru eða ættu að vera, heldur hjálpaði manni frekar að nálgast eigin niður- stöðu. Þó að erfið veikindi hafi hrjáð hann síðustu ár ævi sinn- ar sem takmörkuðu möguleika hans til að sinna starfi sínu, reyndi hann að láta það ekki trufla sig til að sinna fjölskyldu sinni og vinum. Þetta mátti þó sjá síðasta sumar er við vorum við stangveiðar að veikindin voru freklega farin að setja mark sitt á hann, en þrátt fyrir það talaði hann aldrei um þau eða kvartaði undan sínu hlut- skipti. Æðruleysi hans í gegn- um þessi veikindi var algjört og aðdáunarvert hverjum sem til þekktu. Á þessari stundu er erfitt þeim er þetta skrifa að tileinka sér þetta æðruleysi enda harm- ur fjölskyldu, aðstandenda og vina mikill og vottum við öllum okkar dýpstu samúð. Tak- markalaust þakklæti er okkur þó efst í huga fyrir tækifærið að kynnast þessari einstöku manneskju sem Ingi Hans hafði að geyma. Falleg minning um vandaðan og gegnheilan ein- stakling, farsælan lífskúnstner sem auðgaði svo ríkulega líf okkar og tilveru mun lifa fram á efsta dag. Sigurður og Björn Ólafssynir. Við kynntumst hjá bæjarfóg- etanum í Keflavík þar sem við unnum báðir um sinn. Það var upp úr 1980, fyrir tíma tölva og faxtækja en þetta gekk ein- hvern veginn því hver tími hef- ur sitt verklag. Það þurfti ekki að svara bréfum samstundis og tíminn leið hægar. Á þeim tíma töluðu sumir með óttablöndnu virðingarleysi um hið keflvíska réttarfar. Ef það var á annað borð til sýnist mér eftir á að það hafi reynst vel. Ég ætla ekki að reyna að skilgreina þetta hugtak en því er eins far- ið og með önnur hugtök að ef þau eru skilgreind þá tapa þau merkingu sinni. Ég er á því að við höfum verið nokkuð sjóaðir í þessum fræðum og þau bara reynst okkur nokkuð vel. Á embættinu í Keflavík var oft glatt á hjalla og margir snillingar innandyra. Upp í hugann kemur yfirtollvörðurinn Zakarías sem í þann tíð hafði aðsetur við hliðina á þinglýs- ingaherberginu. Hann lét sig ekki muna um að þinglýsa milljónabréfum í gegnum síma GUÐNÝ Ó. HALLDÓRSDÓTTIR, Háteigi, lést á Landakoti hinn 28. mars síðastliðinn. Fyrir hönd aðstandenda, . Halldór Teitsson, Guðrún H. Teitsdóttir, Ágúst Már Gröndal, Anna Guðný Gröndal. Elskulegi fallegi sonur okkar, bróðir, mágur og barnabarn, GESTUR BREIÐFJÖRÐ RAGNARSSON, Laut 16, Grindavík, lést sunnudaginn 21. mars. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 31. mars klukkan 14. . Ragnar Breiðfjörð Gestsson, Margrét Helgadóttir, Ásta Birna Björnsdóttir, Roberto Carlos, Arnór Benedikt Ragnarsson, Ásthildur Gunnarsdóttir, Jóhanna Garðarsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, CHRISTINA KJARTANSSON GRASHOFF hjúkrunarfræðingur, Fróðengi 10, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 26. mars. Jarðarförin fer fram í Grafarvogskirkju, fimmtudaginn 31. mars klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. . Kjartan H. Valdimarsson, Leola Valdimarsson, Guðrún Valdimarsdóttir, Jóhann F. Valdimarsson, Jónína G. Kristinsdóttir, Arnór Valdimarsson, Elísabet Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLVEIG FRIÐRIKKA GUÐJÓNSDÓTTIR frá Heiðarseli í Jökuldalsheiði, lést á hjúkrunarheimilinu Dyngju á páskadag. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 2. apríl klukkan 14. . Jón Rúnar Sveinsson, Valgerður Árnadóttir, Sigmundur Kr. Stefánsson, Sigríður Á. Jónsdóttir, Guðrún S. Stefánsdóttir, G. Hjalti Stefánsson, Heiður Ósk Helgadóttir, Sólveig H. Stefánsdóttir, Páll Jóhann Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku hjartans drengurinn okkar, BERGUR SNÆR SIGURÞÓRUSON, sem lést föstudaginn 18. mars, verður jarðsettur frá Neskirkju fimmtudaginn 31. mars klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á nýstofnaðan styrktarsjóð sem hefur að markmiði að efla stuðning fyrir ungt fólk sem lent hefur í áföllum 210372-5399, 301-13-112673. . Fjölskylda og ástvinir. Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ORMUR HREINSSON, Sólvöllum, Eyrarbakka, áður Birkivöllum 27, Selfossi, lést laugardaginn 12. mars. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 5. apríl klukkan 13.30. . Guðrún Ormsdóttir, Þorsteinn Bjarnason, Olga Björg Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kær sonur, faðir, bróðir og frændi, HINRIK GUNNAR HILMARSSON, Skyggnisbraut 20, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 24. mars 2016. Minningarathöfn verður haldin í Langholtskirkju 31. mars 2016 klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. . Bergljót Gunnarsdóttir, Hilmar Eyjólfsson, Erna Halldórsdóttir, Sunna Dís Ingibjargardóttir, Hrönn Hilmarsdóttir, Heimir Haraldsson, Hörður Eyjólfur Hilmarsson, Milena Nadoeva, Hugrún B. Haraldsdóttir, Ottó G. Eiríksson, Hrafnhildur B. Haraldsdóttir, Hannes J. Hafstein og frændsystkini.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.