Morgunblaðið - 30.03.2016, Page 8

Morgunblaðið - 30.03.2016, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 Róbert Marshall og nokkrir aðr-ir örvæntingarfullir þing- menn Bjartrar framtíðar og ámóta flokka í útrýmingarhættu hafa fundið „góða málið“ sem á að lyfta þeim inn á þing í næstu kosningum.    Nú leggja þeir tilað Alþingi álykti „að fela heil- brigðisráðherra að skipa starfshóp sem hefji undirbúning að áhuga- könnun og þarfagreiningu á op- inberum stuðningi við verðandi for- eldra í formi vöggugjafar sem innihaldi nauðsynjavörur fyrir ungabörn“.    Getur nokkur verið á móti þessu?Er þetta ekki afskaplega já- kvætt, að ríkið gefi öllum börnum vöggugjöf? Það hlýtur að vera gott.    Næsta mál sem þessir góðu þing-menn eru án efa með í und- irbúningi er ekki síður gott, en það hlýtur að vera að ríkið sjái öllum fyrir afmælisgjöfum til átján ára aldurs.    Er ekki óþolanndi að sumir fáirýrari afmælisgjafir en aðrir? Og er lausnin þá ekki að ríkið tryggi öllum ríkisafmælisgjöf?    Auðvitað er ríkisafmælisgjöflausnin og alger óþarfi að láta staðar numið þar; ríkið getur tekið að sér svo miklu meira af daglegu lífi fólks.    Og það er alger óþarfi að hafaáhyggjur af skattgreiðendum í þessu sambandi. Þeir halda núna eftir um það bil annarri hverri krónu sem þeir afla og geta vel lát- ið hana af hendi líka og farið á fullt framfæri ríkisins, allir sem einn. Róbert Marshall Hvað með afmælis- gjafir frá ríkinu? STAKSTEINAR Veður víða um heim 29.3., kl. 18.00 Reykjavík 0 skýjað Bolungarvík -2 léttskýjað Akureyri -4 heiðskírt Nuuk -1 upplýsingar bárust e Þórshöfn 5 alskýjað Ósló 2 skýjað Kaupmannahöfn 5 skýjað Stokkhólmur 2 heiðskírt Helsinki 1 alskýjað Lúxemborg 6 alskýjað Brussel 7 léttskýjað Dublin 6 heiðskírt Glasgow 6 upplýsingar bárust e London 8 skúrir París 7 heiðskírt Amsterdam 7 skýjað Hamborg 7 skýjað Berlín 6 heiðskírt Vín 6 skýjað Moskva -2 heiðskírt Algarve 18 heiðskírt Madríd 16 heiðskírt Barcelona 12 heiðskírt Mallorca 13 léttskýjað Róm 8 léttskýjað Aþena 15 léttskýjað Winnipeg 7 léttskýjað Montreal -5 slydda New York 10 alskýjað Chicago 3 alskýjað Orlando 27 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 30. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:51 20:14 ÍSAFJÖRÐUR 6:52 20:23 SIGLUFJÖRÐUR 6:35 20:06 DJÚPIVOGUR 6:19 19:45 Fákafeni 9 | 108 Reykjavík | Sími 553 7060 | Opið mánud.-föstud. 11-18 og laugard. 11-16 www.facebook.com/gaborserverslun Dömuskór í úrvali Gæði & glæsileiki Nýju strætómiðar Strætó eru komnir í gagnið en eftir morgundaginn, 1. apríl, verður ekki lengur hægt að nota þá gömlu. Strætó varð fyrir töluverðu tjóni á hverju ári vegna gömlu mið- anna en svindl með þá var algengt. Nýju miðarnir eiga að útrýma svindl- miðunum sem voru í notkun. Miðarn- ir eru komnir með nýtt útlit þannig að álfólía er lögð í jaðra miðanna og einn- ig í merki Strætó. Þetta er gert til að auðkenna betur miða sem gilda í vagna Strætó. Áður voru níu farmiðar í hverri örk, nú verða þeir 20. Hægt verður að nota gömlu miðana í dag og á morgun en hiann 1. apríl hættir Strætó að taka við þeim sem gjaldmiðli í vögnunum. Verður hægt að skipta gömlu miðunum til áramóta og þarf að gera það á stoppistöð Strætó í Mjódd. „Það var smá- misskilningur í byrjun að þeir myndu falla úr gildi hinn 1. apríl en þeir halda verðgildi sínu til áramóta,“ segir Jó- hannes Rúnarsson, framkvæmda- stjóri Strætó. Jóhannes segir að farþegar Strætó hafi tekið vel í breytinguna og þetta hafi valdið þeim litlu raski. „Farþegar okkar eru almennt ánægðir með þá. Þeir sem eiga gamla miða geta farið í Mjóddina og skipt þeim fyrir nýju miðana. Einfalt og þægilegt.“ Nýju strætómiðarnir í notkun  Skipta þarf strætómiðum í Mjódd  Halda verðgildi sínu til áramóta Morgunblaðið/Eva Björk Strætó Nýju farmiðarnir eru til að auðkenna betur miða sem gilda. Verkefnisstjórn 3. áfanga ramma- áætlunar mun í dag ganga frá drög- um að tillögum sínum um flokkun virkjanakosta. Drögin verða kynnt á opnum kynningarfundum sem haldnir verða víða um land fyrrihluta apr- ílmánaðar. Fyrsti kynningarfund- urinn verður í Kaldalóni í Hörpu á morgun kl. 14. Að lokinni kynningu og stuttu sam- ráðsferli vinnur verkefnisstjórn úr at- hugasemdum og efnir til nýs tólf vikna samráðsferlis. Þegar unnið hef- ur verið úr athugasemdum sem vænt- anlega berast verður tillaga lögð fyrir umhverfisráðherra. Stefnt er að því að það verði 1. september. Eftir fundinn í Hörpu verða fundir í Grindavík 6. apríl, á Kirkjubæjar- klaustri og Selfossi 7. apríl, á Stóru- Tjörnum 11. apríl, á Akureyri og í Varmahlíð 12. apríl og síðasti fund- urinn verður á Nauteyri við Ísafjarð- ardjúp 13. apríl. Á fundunum mun verkefnis- stjórnin sitja fyrir svörum að lokinni kynningu á tillögudrögum. Stefán Gíslason Tillögur kynntar  Verið að ganga frá flokkun virkjanakosta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.