Morgunblaðið - 30.03.2016, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 30.03.2016, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 Maður á þrítugs- aldri, sem hlaut stungusár fyrir utan stúdenta- garðana við Sæ- mundargötu að- faranótt 6. mars sl., var út- skrifaður af gjör- gæsludeild Land- spítalans í síð- ustu viku. Hlaut hann lífshættulega áverka í árásinni og var honum um tíma haldið sofandi. Játning liggur fyrir í málinu og er gerandanum haldið í gæsluvarð- haldi. Hann neitar að hafa ætlað að valda manninum fjörtjóni. Maðurinn hlaut stungusár neð- arlega á baki sem olli rispu á lunga og fór djúpt inn í lifrina. Útskrifaður eftir stunguárás Stúdentagarðar við Sæmundargötu. Ferðamenn við Dyrhólaey virtu við- vörunarskilti og hindranir að vett- ugi, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd sem Henry Páll Wulff, yfir- maður markaðsmála hjá Arctic Ad- ventures, tók á sunnudag. „Við vorum á ferð með hóp um helgina og komum að Dyrhólaey á sunnudag,“ segir Henry Páll. „Skiltin eru skýr og það er búið að girða af þann hluta sem fólk á ekki að fara yfir á. En fólk horfir ein- faldlega framhjá skiltunum og hlustar ekki á viðvaranir – það virðist ekki láta neitt stoppa sig í að ná réttu myndinni.“ Hissa á krafti öldunnar Henry Páll segir sama vanda blasa víða við um Suðurland. „Nýju skiltin í Reynisfjöru virðast til dæmis vera hunsuð og það sama á við um Gullfoss og Jökulsárlón. Fólk horfir framhjá öllum aðvör- unum og er svo hissa á því hve öld- urnar geta verið sterkar.“ Hjá Arctic Adventures útskýri þeir hættuna vel fyrir farþegum sínum og fólk taki því almennt vel. „Ég hef aldrei verið með ferða- mann sem var varaður við ein- hverju en svaraði „já, en ég vil bara taka mynd“. Alltaf sé hægt að benda ferðamönnum á góða útsýn- isstaði fyrir myndatöku án þess að fara yfir hindranir. „Þess vegna verð ég líka svekkt- ur þegar maður er að biðja ferða- menn, sem ekki tilheyra manns eig- in hópi, að fara vinsamlegast ekki yfir viðvörunarlínuna og þeir hunsa það fullkomlega.“ Farið inn á hættuleg svæði Ljósmynd/Henry Páll Wulff Hætta Ferðamenn við Dyrhólaey fóru yfir hindrun og hunsuðu skilti.  Ferðamenn við Dyrhólaey virða viðvaranir að vettugi Lögreglumenn á Suðurnesjum könnuðu yfir páskahátíðina ökurétt- indi leigubifreiðastjóra á bifreiða- stæðinu við komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Er skemmst frá því að segja að allir voru með sitt á hreinu og höfðu tilskilin ökuréttindi og akstursheimildir í lagi. Kváðust þeir ánægðir með þetta framtak lög- reglu, segir í frétt frá lögreglunni á Suðurnesjum. „Sama máli gegndi um þá sem flytja fólk til og frá flugstöðinni í at- vinnuskyni. Þegar þeirra réttindi voru könnuð reyndist allt í besta lagi. Við eftirlit með umferð um flug- hlað og umhverfis flugstöðina var akstur ökumanna til fyrirmyndar og engin tilefni til afskipta. Loks var lögregla með eftirlit með skemmti- stöðum í umdæminu um páskahátíð- ina og þar fór allt vel fram,“ segir í fréttinni. Allir voru með allt á hreinu á Suðurnesjum Einungis hafa verið gerðir þjónustusamn- ingar við 7 af 74 öldrunarheim- ilum í landinu. Ríkisendur- skoðun telur í nýju áliti mik- ilvægt að hraða samningum við heimilin. Árið 2013 benti Ríkisendur- skoðun á að velferðarráðuneytið hefði einungis gert þjónustusamn- inga við 8 af 73 öldrunarheimilum í landinu. Stofnunin hvatti ráðu- neytið til að bæta úr þessu og efla eftirlit sitt með þjónustu og rekstri heimilanna. Samningagerð við öldrunarheimili og eftirlit með þjónustu þeirra og rekstri eru nú lögbundin verkefni Sjúkratrygg- inga Íslands. Samkvæmt upplýs- ingum þaðan liggja fyrir drög að rammasamningi við hjúkrunar- heimilin. Samið við 7 af 74 hjúkrunarheimilum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.