Morgunblaðið - 30.03.2016, Page 13
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hestakona „Ég gaf þeim aldrei færi á að hætta við en þær reyndu það,“ segir Ragnheiður Samúelsdóttir, stolt af
sínum konum. Ragnheiður er reiðkennari og fer fyrir Töltgrúppunni, fjölmennum hópi hestakvenna.
af sjálfri mér að hafa fylgt þessu eft-
ir,“ segir Ragnheiður, sem naut
dyggrar aðstoðar Lilju Sigurðar-
dóttur. Í þessu samhengi vísar hún
til gagnrýnisradda sem voru flestar
á þá leið að það væri ómögulegt að
búa til atriði með jafnmörgum knöp-
um og raun ber vitni. Það er ekki
einfalt að búa til prógramm með
flottum töltslaufum og leggja þær á
minnið en hvort tveggja var vel af
hendi leyst.
Tónlist og stuð á æfingum
Að stýra öllum þessum fjölda
kvenna segir Ragnheiður að hafi
gengið býsna vel enda kraftmiklar
og áhugasamar hestakonur á ferð
sem voru alltaf tilbúnar að mæta á
æfingu, jafnvel seint á kvöldin. Í
töltgrúppunni eru ríflega 80 konur
en 62 gátu tekið þátt í sýningunni að
þessu sinni. Þær hafa hist einu sinni
í viku að jafnaði í vetur. Æfingarnar
hafa verið fjölmennar eftir því. „Ég
lagði ríka áherslu á að leggja öll nöfn
kvennanna á minnið en ekki kalla
„hey þú“. Maður á að sýna fólki virð-
ingu svo því líði vel og nái árangri,“
segir Ragnheiður. Tónlist notaði hún
einnig mikið. „Tónlistin er mögnuð
leið til að kenna fólki. Það kemur inn
svo mikill kraftur og geislandi orka,“
segir Ragnheiður um stuðið á æfing-
unum. Snjallsímatæknin kemur
einnig að góðum notum í kennslunni
og er óspart nýtt. „Við tökum upp
allar æfingar. Þær fara svo heim
með myndböndin og laga það sem
þarf fyrir næsta tíma. Það er ekki
bara tíminn og kennslan heldur
einnig heimavinna.“
Allar konur í hestamannafélag-
inu Spretti eru velkomnar í Tölt-
grúppuna. „Það sem ég hugsaði með
þennan hóp er að hafa hann opinn
fyrir allar konur sem geta riðið tölt
og hafa kjark og þor. Ég vildi ekki
handvelja inn í hópinn heldur leyfa
öllum að vera með og njóta sín,“ seg-
ir Ragnheiður sem hefur starfað
sem reiðkennari í fjölda ára en hún
segist aldrei hafa séð svona mikinn
árangur. Til að ná þessum árangri
þurfi góða samvinnu, halda þurfi
réttum takti, hraða og einbeitingu til
að leysa verkefnið. Þegar fór að
styttast í sýninguna örlaði á spennu í
hópnum. „Ég gaf þeim aldrei færi á
að hætta við en þær reyndu það,“
segir Ragnheiður og hlær, stolt af
sínum konum.
Ragnheiður segir mikilvægt að
allir finni sér sinn farveg í hesta-
mennskunni. „Mér finnst það á
hendi svo fárra aðila að fá að vera
eitthvað í hestamennskunni en ef við
ætlum að kveikja áhuga þurfa fleiri
að fá pláss. Það vilja allir vera með
og fá hrós,“ segir Ragnheiður.
Næsta mál á dagskrá hjá Ragn-
heiði og Töltgrúppunni er að halda
áfram að æfa nýtt prógramm. Í
framhaldinu verður starfið kynnt
fyrir öðrum hestamannafélögum og
hver veit nema fleiri svona flott sýn-
ingaratriði eigi eftir að líta dagsins
ljós.
Töltslaufur Hluti af prógramminu
sem þær þurftu að leggja á minnið.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016
Borgarbókasafn Reykjavíkur og
Myndlistaskólinn í Reykjavík í sam-
starfi við Nexus standa fyrir mynda-
sögusamkeppni og -sýningu fyrir fólk
á aldrinum 10-20+ ára. Í tilkynningu
segir að samkeppnin sé helguð tiltek-
inni myndasöguhetju og -þema. Að
þssu sinni er þemað „Eitraðar konur“
en árið 1966 birtist í fyrsta sinn
háskakvendið og umhverfisverndar-
sinninn Poison Ivy og velgdi Batman
undir uggum. Þetta flagð undir fögru
skinni fagnar því fimmtíu ára afmæli
árið 2016.
Dómnefnd skipa Sunna Sigurðar-
dóttir teiknari, Sirrý (Margrét Lárus-
dóttir) myndasöguhöfundur og Björn
Unnar Valsson bókmenntafræðingur.
Vinnuaðferðin er algerlega frjáls
og verkin geta hvort sem er verið
myndasaga eða stök mynd með
myndasöguþema eða mynd sem
tengist myndasögum á einhvern hátt.
Þátttakendur skulu skila verkunum
á Borgarbókasafnið í Grófinni,
Tryggvagötu 15, í umbúðum merkt-
um: „Eitraðar konur 2016“. Síðasti
skiladagur er 13. apríl 2016. Fylgja
skal fullt nafn, fæðingarár, síma-
númer og tölvupóstfang.
Upplýsingar veitir Björn Unnar
Valsson, bjorn.unnar.valsson-
@reykjavik.is. Einnig í síma 411-6100.
Sýningin verður á Reykjavíkurtorgi
í Borgarbókasafninu í Grófinni, við
Tryggvagötu. Hún verður opnuð laug-
ardaginn 30. apríl kl. 15 og stendur
út maímánuð.
Við opnun sýningarinnar verða úr-
slit samkeppninnar tilkynnt og verð-
laun afhent við hátíðlega athöfn.
Nú er lag að vera með!
Endilega …
Háskakvendi Poison Ivy fagnar fimmtugsafmæli á þessu ári, en hún er
umhverfissinni. Hér er Uma Thurman í hlutverki þessarar eitruðu konu.
… takið þátt í myndasögu-
samkeppni um eitraðar konur
Hér gefur að líta hina tíu ára jap-
önsku „beagle“-tík Purin, en hún er
einkar lagin við að halda jafnvægi á
jógabolta. Hún skaut öðrum hvuttum
ref fyrir rass í fyrra þegar hún varð
heimsmeistari í því að vera fljótust
allra hunda að ferðast tíu metra á
bolta. Ótrúlegt hvað hægt er að
kenna ferfætlingunum.
Hundar keppa í ýmsum kúnstum
AFP
Purin Snillingur í að rúlla á bolta.
Heimsmeistari
í jafnvægislist
Síðumúla 11 - Sími 568-6899 - Opið virka daga: 8 til 18; Laugardaga 10 til 14 - www.vfs.is
21.990
Verð
Hjólatjakkur 3T
Stöðugur hjólatjakkur sem lyftir 52cm,
lægsta staða 14,5cm.
Burðarþol 3 tonn.
TJ T83001
Þvottakar 20 Gallon
Þvottakar sem hentar vel fyrir þrif á varahlutum
og verkfærum.
TJ TRG4001-20
Til í fleiri stærðum
Sandblásturskassi
Flottur sandblásturskassi sem hentar vel á
verkstæðið. Vinnupláss: 60x84x63cm.
TJ TRG4222
Til í fleiri stærðum
22.990
Verð
69.900
Verð
Kapaltromla 25m
Lengd 25m, leiðir 3G1,5 H05VV-F
BR 1099150027
6.990
Verð
Digital rennimál
150mm, 0,02mm skekkja
TO YT7201
4.990
Verð
Vélagálgi 1 Tonn
Hámarkshæð 2000mm,
lægstahæð 25mm.
Burður 1 Tonn
TJ T31002
Til í fleiri stærðum
49.900
Verð
Sem betur fer eru heimsins lönd eins
misjöfn og þau eru mörg, og það
sama gildir um golfvelli sem finna má
um víða veröld. Umhverfi þeirra er
ólíkt eftir löndum og dýralíf einnig,
og einmitt þess vegna sækir fólk í að
ferðast um heiminn til að spila á nýj-
um golfvöllum, það er gaman að
skipta um umhverfi í golfíþróttinni.
Í borginni Jinja í Úganda er að
finna hinn ágætasta golfvöll, Jinja
Club er hann kallaður, níu holu fall-
egur völlur á bökkum Nílar. Þar er
einnig innan girðingar vinsæl sund-
laug og eins er hægt að fara í tennis
og skvass. Notalegur bar og veitinga-
staður er við golfhúsið og unaðslegt
að kæla sig þar á heitum dögum eftir
golfhring. En afar sérstaka reglu er
að finna efst á því blaði sem spilarar
fá við komuna: Þar stendur að ef fót-
spor eftir flóðhest á „greeninu“ hef-
ur áhrif á legu kúlunnar eða að-
stæður til að slá kúluna, þá megi
færa hana til. Hér áður voru flóðhest-
ar algengir gestir á þessum golfvelli,
og komu þeir frá ánni Níl, en nú hefur
þeim fækkað og sjást þeir sjaldan. Þó
gildir reglan um flóðhestasporin enn,
ef vera skyldi …
Gaman í golfi í Úganda
AFP
Flóðhestar Þeir voru algengir gestir á golfvellinum í Jinja hér áður fyrr.
Sérstakar reglur um spor
flóðhesta gilda á golfvellinum