Morgunblaðið - 30.03.2016, Síða 27

Morgunblaðið - 30.03.2016, Síða 27
Rósa hóf kennslu við sérdeild gagnfræðastigs í Miðbæjarskólanum árið 1951 og kenndi þar í tíu ár. Auk þess sinnti hún stundakennslu víða. Rósa og fjölskylda hennar fluttu í Söðulsholt í Eyjahreppi þar sem eig- inmaður hennar var prestur í rúman áratug. Þar ráku þau farskóla fyrir sveitina, kenndu við Laugargerðis- skóla eftir að hann var byggður og stunduðu allan tímann búskap í Söð- ulsholti með kindur, hesta, hænsni, hund og kött: „Búskapurinn var bindandi yfir heyskapartímann og auk þess gestkvæmt á heimili sóknarprestsins. En við hjónin höfð- um bæði áhuga á bústörfunum og vorum því samhent í því sem öðru í gegnum tíðina.“ Þau fluttu í Kópavog 1972 þar sem Árni var prestur í Kársnespresta- kalli 1971-91. Á þeim árum kenndi Rósa við Æfingadeild Kennaraskól- ans og var síðan endurmenntunar- stjóri KHÍ 1979-89. Þau fluttu síðan að Borg á Mýrum 1991 þar sem Árni var prestur til 1996 en þá sinnti Rósa háskólanámi í guðfræði og heimspeki við HÍ. Þau fluttu síðan aftur í Kópa- voginn þar sem þau hafa átt heima síðan. Rósa var formaður Kvenfélaga- sambands Snæfellsness, formaður Prestkvennafélags Íslands og sat í Nordisk ministerråd um skólamál. Um áhugamál segir hún að þau hjónin hafi ferðast víða og að hún hafi verið sílesandi, einkum áður fyrr: „Mér hafa alltaf þótt skemmtileg- astar og eftirminnilegastar þær bók- menntir sem lýsa framandi þjóðum og menningu.“ Fjölskylda Eiginmaður Rósu Bjarkar er Árni Pálsson, f. á Stóra-Hrauni í Kolbeins- staðahreppi 9.6. 1927, fyrrv. sókn- arprestur í Kársnesprestakalli í Kópavogi og á Borg á Mýrum. For- eldrar hans voru Páll Geir Þorbergs- son, verkstjóri í Reykjavík, og Anna Árnadóttir, húsfreyja í Reykjavík. Börn Rósu Bjarkar og Árna eru Þorbjörn Hlynur Árnason, f. 10.3. 1954, prófastur á Borg á Mýrum en kona hans er Anna Guðmundsdóttir, kennari við Menntaskóla Borgar- fjarðar í Borgarnesi, og eru synir þeirra Árni Páll Þorbjörnsson, f. 1982, og Guðmundur Björn Þor- björnsson. f. 1986; Þórólfur Árnason, f. 24.3. 1957, forstjóri í Reykjavík og fyrrv. borgarstjóri, en kona hans er Margrét Baldursdóttir tölvunar- fræðingur og eru börn þeirra Baldur Þórólfsson, f. 1985, og Rósa Björk Þórólfsdóttir, f. 1988; Anna Katrín Árnadóttir, f. 2.3. 1963, ráðgjafi hjá Advania í Reykjavík, og er dóttir hennar Kristín Manúelsdóttir, f. 1989; Árni Páll Árnason, f. 23.5. 1966, alþingismaður í Reykjavík og fyrrv. ráðherra, en kona hans er Sigrún Björg Eyjólfsdóttir flugfreyja og eru börn þeirra Bylgja Árnadóttir, f. 1984, Eyjólfur Steinar Kristjánsson, f. 1990, og Friðrik Björn Árnason, f. 1993. Systkini Rósu Bjarkar: Sólrún Þorbjörnsdóttir, f. 18.5. 1928, d. 12.9. 2006, húsfreyja, og Ragnhildur Þ. Þorbjörnsdóttir, f. 17.7. 1935, versl- unarstjóri í Reykjavík. Foreldrar Rósu Bjarkar voru Guð- ríður Þórólfsdóttir, f. 20.9. 1894, d. 8.11. 1980, húsfreyja í Reykjavík, og Þorbjörn Guðlaugur Bjarnason, f. 14.7. 1895, d. 8.11. 1971, pípulagn- ingameistari í Reykjavík. Úr frændgarði Rósu Bjarkar Þorbjarnardóttur Rósa Björk Þorbjarnardóttir Dómhildur Þórarinsdóttir vinnuk. á Seljalandi í Hörgslandshreppi Ólafur Ólafsson Ragnhildur Ólafsdóttir vinnuk. á Seljalandi í Hörgslandshreppi Þórólfur Jónsson b. á Dalshöfða í Fljótshverfi Guðríður Þórólfsdóttir húsfr. í Rvík Ragnhildur Þórarinsdóttir húsfr. á Blómsturvöllum Jón Magnússon b. á Blómsturvöllum í Fljótshverfi Jón Einarsson hreppstj. í Mundakoti á Eyrarbakka Björn Karel Þórólfsson dr. í málvísindum Ólöf Jónsdóttir húsfr. í Seglbúðum Helgi Jónsson b. í Seglbúðum Jón Helgason fyrrv. alþm. og ráðherra í Seglbúðum Jón Óttar Ragnarsson fyrsti sjónvarpsstj. Stöðvar 2 Erna Ragnarsdóttir innanhússarkitekt Kristín Símonardóttir húsfr. í Gröf Þorlákur Jónsson b. í Gröf í Skaftártungu Ragnhildur Þorláksdóttir húsfr. á Heiði Bjarni Einarsson b. á Heiði á Síðu Þorbjörn G Bjarnason pípulagningam. í Rvík Einar Bjarnason b. á Heiði á Síðu Ragnar í Smára forstj. og útg. í Rvík Jón Jónsson b. í Seglbúðum Ragnhildur Jónsdóttir húsfr. á Heiði Með langömmubarni Rósa Björk með Kristján Árna Júlíusson. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 Málfríður fæddist á Arnar-vatni í Mývatnssveit 30.3.1927. Foreldrar hennar voru Sigurður Jónsson, skáld og bóndi á Arnarvatni, og k.h., Hólm- fríður Pétursdóttir, húsfreyja. Hálf- bróðir Sigurðar var Jón, alþingismað- ur. í Múla, faðir Árna, alþingismanns frá Múla, föður Jónasar, rithöfundar og alþingismanns, og Jóns Múla tón- skálds. Sigurður var sonur Jóns Hin- rikssonar, skálds á Helluvaði, og Sig- ríðar Jónsdóttir frá Arnarvatni. Bróðir Jóns var Olgeir, langafi Guð- mundar Bjarnasonar, fyrrv. ráðherra. Hólmfríður var dóttir Péturs Jóns- sonar, alþingismanns og ráðherra, bróður Kristjáns, háyfirdómara, al- þingsmanns og ráðherra, Steingríms alþingismanns og bæjarfógeta á Akureyri, og Rebekku, móður Har- alds Guðmundssonar ráðherra, og ömmu Jóns Sigurðssonar, fyrrv. ráð- herra. Hálfsystir Péturs var Sigrún, móðir Steingríms Steinþórssonar for- sætisráðherra. Pétur var sonur Jóns, alþingismanns á Gautlöndum Sig- urðssonar og Solveigar, systur Bene- dikts, afa Geirs Hallgrímssonar for- sætisráðherra. Solveig var dóttir Jóns, ættföður Reykjahlíðarættar Þorsteinssonar. Móðir Hólmfríðar var Þóra Jónsdóttir frá Grænavatni. Eiginmaður Málfríðar var Har- aldur Jónsson, bóndi á Jaðri í Reykja- dal og eignuðust þau sjö börn. Málfríður lauk kvennaskólaprófi í Reykjavík 1947, var húsfreyja á Jaðri 1948-92, ráðskona á sumrum hjá Vegagerð ríkisins 1968-85, aðstoðar- ráðskona við Kristnesspítala á vetr- um 1981-85 og í fullu starfi 1985-87. Hún var kennari við grunnskóla Reykdæla 1967-79, bókavörður við Amtsbókasafnið á Akureyri 1992- 2001. Málfríður var alþingismaður Norð- urlands eystra 1987-91 fyrir Samtök um kvennalista, landskjörin vara- þingmaður þar 1984 og 1986 og for- maður þingflokks Samtaka um kvennalista 1990-91. Hún sat í Vest- norræna þingmannaráðinu 1989-91. Málfríður lést 28.12. 2015. Merkir Íslendingar Málfríður Sigurðardóttir 90 ára Guðrún Kristmannsdóttir 85 ára Björn Sæmundsson Rósa Björk Þorbjarnardóttir 75 ára Eygló Yngvadóttir Jón Erlings Jónsson Jón Oddur Kristófersson Þrúður Jónheiður Hjaltadóttir 70 ára Ásgerður Ragnarsdóttir Friðrik Sveinn Kristinsson Helga Sigurbjörg Gunnarsdóttir Högni Skaftason Sigmundur Þórisson Sigríður Herdís Guðmundsdóttir Sigtryggur Jóhannsson 60 ára Anna Steinunn Jónsdóttir Jónas Rafn Jónsson Nikolajs Pavluks Ólafur Jónsson Sigrún Harðardóttir Silvija Leimane Sybil Gréta Kristinsdóttir Valborg Röstad Þórunn Ósk Kristjánsdóttir 50 ára Amprai Phonsaksai Andrzej Jan Zaczynski Einar Ólafur Erlingsson Halldór Brynjarsson Hákon Guðbjartsson Jóna Steindórsdóttir María Peters Sveinsdóttir Ósk Anna Gísladóttir Rósa Þorleifsdóttir Sigríður Guðmundsdóttir Sigurbjörn Þ. Guðmundsson Unnur Berg Elfarsdóttir Vala Garðarsdóttir Þórhallur M. Kristjánsson 40 ára Agnar Árni Stefánsson Andri Sigurgeirsson Anna Rún Frímannsdóttir Berglind Eir Magnúsdóttir Bragi Þorsteinsson Dawid Karol Samp Eydís Elva Þórarinsdóttir Eysteinn Ingólfsson Hafsteinn Lúðvíksson Halldór Steinar Sigurðsson Helgi Jóhannesson Huiyan Yu Marco Steinberg Margrét Matthíasdóttir Óskar Arnórsson Páll Hjaltalín Árnason Soffía Guðbjörg Þórðardóttir Stella Mjöll Aðalsteinsdóttir Sverrir Bjarnason 30 ára Björgvin Jónsson Geirný Ómarsdóttir Guðlaug María Magnúsdóttir Iulian-Marian Grecu Joanna Chalustowska Kamil Giersa Marek Zbigniew Paszek Ólafur Þór Berry Rannveig Gísladóttir Sigríður Ásta Björnsdóttir Þóra Matthíasdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Þóra ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BA-prófi í lögfræði frá HÍ, stundar nú MA-nám í lög- fræði og er jafnframt í fæðingarorlofi. Maki: Ragnar A. Guð- mundsson, f. 1984, sölu- stj. hjá Skaginn Þrír X. Börn: Óskar Helgi, f. 2013, og Þórunn, f. 2015. Foreldrar: Þórunn Ey- vindsdóttir, f. 1966, og Matthías Sveinsson, f. 1963. Þóra Matthíasdóttir 30 ára Sigga Ásta ólst upp á Akureyri, býr þar, lauk B.Ed.-prófi frá KHÍ og starfar hjá Lostæti, veislu- og veitingaþjónustu. Maki: Arnar Kr. Hilmars- son, f. 1983, pípari. Börn: Viktoría Rós Arn- arsdóttir, f. 2004, og Hilmar Marinó Arnarsson, f. 2012. Foreldrar: Júlíana Þ. Lár- usdóttir, f. 1947, og Björn Þórleifsson, f. 1947, d. 2003. Sigríður Ásta Björnsdóttir 30 ára Rannveig ólst upp á Blönduósi, býr í Reykja- vík, lauk prófum frá tísku- skólanum FIDM í Los Ang- eles og starfar við bún- ingahönnun og -gerð fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Systkini: Arndís, f. 1979, Halla, f. 1979, og Stefán Örn, f. 1989. Foreldrar: Þórdís Baldursdóttir, f. 1954, og Gísli Guðmundsson, f. 1953. Þau eru búsett í Reykjavík. Rannveig Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.