Morgunblaðið - 30.03.2016, Síða 30

Morgunblaðið - 30.03.2016, Síða 30
Neitað um læknisaðstoð Vesturlandsréttur í Danmörku stað- festi um liðna helgi gæsluvarðhalds- úrskurð undirréttar Árósa yfir ljóð- skáldinu Yahya Hassan. Hann mun því sitja í gæsluvarðhaldi til 18. apríl nk. en hann var kærður fyrir fólsku- lega líkamsárás sem varðar allt að sex ára fangelsi, verði hann fundinn sekur. Þetta kemur fram í danska dagblaðinu Politiken. Samkvæmt fréttum danska dagblaðsins Berl- ingske er Hassan einnig kærður fyr- ir ólöglegan vopnaburð. Hassan, sem aðeins er tvítugur að aldri, var sem kunnugt er handtek- inn aðfaranótt mánudagsins 21. mars sl. grunaður um að hafa skotið fimm skotum að 17 ára pilti á stuttu færi og hæft hann annars vegar í fót- inn og hins vegar lærið. Hassan neit- ar sök, en pilturinn sem fyrir árás- inni varð tók hluta hennar upp á símann sinn og birti á lokuðum Facebook-vegg sínum þaðan sem upptakan rataði inn á vef danska dagblaðsins BT. Í frétt Politiken er haft eftir Claus Bonnez, verjanda Hassan, að hann sé vægast sagt undrandi á þeirri meðferð sem Hassan hafi hlotið, en honum hafi í framhaldinu af hand- tökunni verið neitað um nauðsyn- lega læknisaðstoð sem haft geti nei- kvæðar afleiðingar fyrir heilsu hans. Í tölvupósti sem Bonnez sendi dönsku fréttastofunni Ritzau sl. skírdag kom fram að læknir á bráða- deild Háskólasjúkrahússins í Árós- um hefði vakið athygli lögreglunnar á því að Hassan hefði átt að mæta í aðgerð daginn eftir að hann var handtekinn til að láta laga erfitt brot á hægri úlnlið sem hann hlaut í bíl- slysi nokkrum dögum áður en skot- árásin átti sér stað. Samkvæmt frétt danska dag- blaðsins Berlingske var aðgerðinni hins vegar frestað um óákveðinn tíma þrátt fyrir að lögreglan væri upplýst um hversu áhættusamt það gæti reynst og haft alvarlegar afleið- ingar fyrir heilsu Hassan. „Hann liggur í fangaklefa með mikla verki, m.a. í úlnliðnum. Hann getur ekki hirt um sig, farið á klósettið og mat- ast og hann fær ekki nauðsynlega læknisaðstoð,“ skrifar Bonnez og bætir við að skáldið hafi áhyggjur af því að missi hann hreyfigetuna í hægri hendi geti það haft afar skað- leg áhrif á rithöfundarferil hans. Að sögn Bonnez felur það í sér mannréttindabrot að neita fanga um nauðsynlega læknisaðstoð og því hafi hann ákveðið að kæra ákvörðun lögreglunnar til sérstakrar kæru- nefndar innan lögreglunnar. „Það sem gerir þetta mál einstakt er að ég hef orð læknis fyrir því að hann [Hassan] þurfi bráðnauðsyn- lega á aðgerðinni að halda. Þetta er í fyrsta sinn á mínum ferli sem lög- fræðingur sem ég rek mig á það að orð læknis séu að engu höfð,“ skrifar Bonnez. Engar nýjar fréttir af mál- inu hafa ratað í danska fjölmiðla síð- an á laugardag. Hassan hefur sjálfur ekki tjáð sig síðan 22. mars sl. en þá margbirti hann á opnum Facebook- vegg sínum eftirfarandi skilaboð: „Ég sit í gæsluvarðhaldi með brotið viðbein og brotinn úlnlið hjálp það þarf að gera aðgerð á hendinni og mig vantar hjálp hjálpið mér.“ Þess má geta að Hassan á tæplega 124 þúsund fylgjendur á Facebook og hefur að undanförnu tjáð sig mikið þar um illdeilur sínar við glæpaklík- una Black Army. silja@mbl.is Morgunblaðið/Golli Þjáður Ljóðskáldið Yahya Hassan bíður enn eftir aðgerð á hendi.  Bjargarlaus í fangaklefanum 260mmVeltisög Multi-sög fylgir með í kaupunum Kr. 150.000,- með VSK Model LF1000 Sagarblað 260 mm Sagdýpt 90° 70 mm Sagdýpt 45° 48 mm Afl inn 1650 W Þyngd 36 kg ÞÓR FH REYKJAVÍK: Krókháls 16 Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 Umfangsmikil og metnaðarful ráð- stefna um menningu og gildi hennar verður haldin á Hólum í Hjaltadal á fimmtudag og föstudag. Meðal þeirra sem taka til máls eru Illugi Gunn- arsson, mennta- og menningar- málaráðherra, Solveig Lára Guð- mundsdóttir vígslubiskup, Katrín Jak- obsdóttir, Jón Ólafsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Guðni Tómasson, Fríða Björk Ingv- arsdóttir, Ólafur Rastrick, Mar- grét Hallgríms- dóttir, Arnar Eggert Thoroddsen, Guðmundur Oddur Magnússon, Ólöf Kristín Sigurðardóttir og Sigtryggur Baldursson. Allt sannkallað þunga- viktarfólk í menningarlífinu. Meðal listamanna sem koma fram má síðan nefna feðgana Halldór og Þórarinn Eldjárn, Skagfirska kammerkórinn, Katrínu Gunnarsdóttur dansara, Berglind Maríu Tómasdóttur flautu- leikara og leikhópinn Kriðpleir. Guðbrandsstofnun skipuleggur ráðstefnuna í samstarfi við Bandalag íslenskra listamanna, Listaháskóla Íslands, Þjóðminjasafnið og Ís- lensku- og menningardeild Háskóla Íslands með áherslu á menning- arfræði. Solveig Lára vígslubiskup er stjórnarformaður Guðbrandsstofn- unar en hún er samstarfsverkefni þjóðkirkjunnar, Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. „Starfsemi Guðbrandsstofnunar er þríþætt,“ segir hún. „Við höldum eina ráð- stefnu á ári, erum með fræðafundi tvisvar í mánuði á veturna og þá stöndum við fyrir sumartónleikum alla sunnudaga yfir sumarið. Stofn- unin heldur utan um menningar- starfsemi á Hólum.“ Fyrir tveimur árum var ákveðið að stofnunin stæði fyrir fjórum ráð- stefnum sem allar hefðu sömu yf- irskrift: Hvernig metum við hið ómetanlega. „Í fyrra var undirtitill ráðstefn- unnar „Náttúran og auðlindirnar“, og var hún haldin í samstarfi við Orkustofnun, Náttúruverndarráð og Ferðamálastofu. En núna er undirtit- illinn „Menningin“,“ segir hún og bætir vð að samstarfið við undirbún- inginn hafi verið skemmtilegt. Í undirbúningsnefndinni með stjórn stofnunarinnar eru Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listahá- skólans, Benedikt Hjartarsson sem stýrir deildinni um hagnýta mening- armiðlun við H.Í., Kolbrún Halldórs- dóttir, sem er forseti Bandalags ís- lenskra listamanna, og Anna Lísa Rúnarsdóttir frá Þjóðminjasafninu. Ólík sjónarhorn á menningu Þegar spurt er um markmið ráð- stefnunnar, segir Solveig Lára það fyrst og fremst vera að skapa samtal milli þessara ólíku hópa. „Það gerðist svo skemmtilega í fyrra, þegar við vorum að tala um náttúruna og auð- lindirnar. Þá myndaðist ákveðin orka sem ég er sannfærð um að er enn að einhverju leyti að bera ávöxt. Tilgangurin nú er fyrst og fremst að ná þessu samtali, ekki að svara spurningunni hvernig við metum hið ómetanlega, en allir fyrirlesararnir eru beðnir um að tala um þetta efni. Engum er falinn sérstakur vinkill og það verður spennandi að heyra hversu ólík sjónarhorn koma frrá þessum ólíku þátttakendum. Öll ávörp eru tíu mínútur og svo eru jafn langar umræður á eftir.“ Hverja telur Solveig Lára vera kostina við að stefna þátttakendum á ráðstefnu sem þessa heim að Hólum, í stað þess að halda hana í þéttbýli? „Þá myndi ráðstefnan eflaust hverfa inn í ýmislegt annað sem er á döfinni,“ svarar hún. „Hér verða þátttakendur á staðnum allan tím- ann. Markmið Guðbrandsstofnunar er að efla menningarstarfsemi á Hól- um. Við fáum þessa umræðu heim í hérðað og kynnum staðinn í leiðinni fyrir öllu þessu fólki; það er ótvíræð- ur kostur – og það eru spennandi dagar framundan.“ Hinir ólíku listamenn verða með forvitnileg atriði og hefur Elísabet Indra Ragnarsdóttir, hjá menningar- húsinu Mengi, sett saman þann hluta dagskrárinnar. Fulltrúar heimamana verður Skagfirski kammerkórinn, enda „er kóramenningin í Skagafirði engu lík,“ segir Solveig Lára. „Í lokin verður dagskráin tekin saman, bæði í tali og í teikningum; listakonurnar Lóa Hjálmtýsdóttir og Rán Flygering munu teikna ráð- stefnuna – það verður mikið að gera hjá þeim allan tímann!“ efi@mbl.is „Það eru spennandi dagar framundan“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hólastaður Áhrifafólk í menningarlífinu mun ræða þar gildi menningar. Solveig Lára Guðmundsdóttir  Rætt á Hólum um menningu og mat á hinu ómetanlega Í fyrsta skipti í það 21 ár sem breska útvarpsstöðin Classic FM hefur stað- ið fyrir könnun meðal hlustenda sinna um vinsælustu tónverk sög- unnar lyftir Ludwig van Beethoven sér upp fyrir Wolfgang Amadeus Mozart, sem fellur í annað sætið. Útvarpsstöðin birtir lista yfir þau 300 tónverk sem hlustendur stöðv- arinnar kunna best að meta og sam- kvæmt The Guardian tóku 170.000 manns þátt í kosningunni, sem gerir þetta viðamestu skoðanakönnunina um klassíska tónlist. Beethoven er höfundur 19 af þessum 300 verkum en Mozart á 16. Síðustu þrjú ár hafa tónskáldin verið hnífjöfn, átt jafn- mörg verk á listanum, en þar áður átti Mozart ævinlega vinninginn. Haft er eftir einum af þulum út- varpsstöðvarinnar, John Suchet, að hann telji auknar vinsældir verka Beethovens nú tengjast því að þau hafi talsvert verið notuð í kvikmynd- um, til að mynda hafi sjöunda sin- fónían verið notuð með áhrifaríkum hætti í The King’s Speech. „En tónlist hans er annars dáð um allar jarðir; það er sama á hvaða götuhorn maður kæmi, í hvaða landi sem er, allt- af myndi einhver þekkja til verka Beethovens.“ Það nýrra tón- verka sem komst hæst á listann er verk sem Yuzo Koshiro og Ryuji Iuchi sömdu fyrir tölvuleikinn Shenmue en það er eitt ellefu verka á listanum sem eru sam- in fyrir eða notuð í tölvuheimum. John Williams er vinsælasta lifandi tónskáldið, í 44. sæti listans, og telja útvarpsmenn það tengjast vinsæld- um tónlistar hans í nýju Star Wars- kvikmyndinni. Vinsælasta kvik- myndatónsmíðin er þó tónlist How- ards Shore úr Hringadróttinssögu en hún situr í 28. sæti. Á toppi listans situr hins vegar, í sjöunda skipti síðan 1996, The Lark Ascending eftir Ralph Vaughan Williams. Beethoven sigrar Mozart í fyrsta skipti í vinsældakosningu í Bretlandi Ludwig van Beethoven Sigur Rós og John Grant eru meðal listamanna sem troða upp á Glastonbury-hátíðinni á Eng- landi síðustu vikuna í júní. Tilkynnt hefur verið að LCD Soundsystem, sem er aftur komin fram á sjónarsviðið eftir hlé, komi fram, sem og meðal annarra Muse, Adele, Coldplay, PJ Harvey, Elect- ric Light Orchestra, ZZ Top, Art Garfunkel, New Order, Underworld og Cyndi Lauper. Sigur Rós og John Grant á Glastonbury John Grant

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.