Morgunblaðið - 30.03.2016, Page 31
AFP / Yale University Art Gallery
Meistaraverk Rómað málverk Vincents van Gogh af kaffihúsi í Arles.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur
úrskurðað að eitt af meistara-
verkum málarans Vincents van
Gogh, „Le café de nuit“ frá 1888,
verði ekki afhent afkomanda rúss-
nesks safnara sem átti verkið á sín-
um tíma en það var gert upptækt í
rússnesku byltingunni 1917, ásamt
ýmsum öðrum eigum hans.
Málverkið, sem van Gogh málaði
í Arles í Frakklandi, hefur um ára-
bil verið sýnt í Listasafni Yale-
háskóla. Úrskurður réttarins eyddi
síðustu von Frakkans Pierre Ko-
nowaloff til að heimta verkið sem
var á sínum tíma í eigu fjölskyldu
hans. Málverkið er metið á um 200
milljónir dala, um 25 milljarða kr.
Kaffihúsið kyrrt í Yale
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016
Framúrskarandi vinkona erfyrsta bókin í Napólí-fjórleik Elenu Ferrante,dularfulls rithöfundar sem
lítil deili eru vituð á fyrir utan að við-
komandi skrifar bækur sem hafa
fengið feikigóðar viðtökur víða um
heim og hafa sumir jafnvel talað um
Ferrante sem einn besta rithöfund
samtímans. Bókin kom út á ítölsku
2011 og í íslenskri þýðingu síðasta
haust og nú er næsta bókin í flokkn-
um einnig komin út hér á landi, Saga
af nýju ættarnafni.
Reyndar er þýðingin á titli bók-
arinnar, Framúrskarandi vinkona,
nokkuð blekkjandi, því undirrituð hélt
að þar væri vísað til einhverrar sem
væri svo óskaplega góð vinkona. Svo
er ekki, heldur virðist vinkonan ein-
faldlega afburðamanneskja í hverju
því sem hún tekur sér fyrir hendur. Á
ítölsku heitir bókin L’amica geniale
eða Bráðsnjalla vinkonan sem nær
kjarna bókarinnar miklu betur.
En hvað um það.
Aðalpersónurnar eru
vinkonurnar Elena sem
er dóttir dyravarðar og
skósmiðsdóttirin Lila
sem alast upp í Napólí á
6. áratugnum. Þetta er
harður heimur, ofbeldi
bæði andlegt og lík-
amlegt er sjálfsagt í
samskiptum og sá vinn-
ur sem gengur lengra.
Algjört frumskógarlög-
mál.
Báðar vilja þær kom-
ast út úr hverfinu og
velja hvor sína leiðina til þess. Elena
stendur sig vel í námi og velur
menntabrautina í óþökk foreldra
sinna og margra annarra í samfélagi
þar sem stúlkur eru metnar eftir því
hversu snemma þær gifta sig. Lila
velur aðra leið, sem er augljóslega í
algerri mótsögn við eðli hennar.
Elena er sögumaðurinn og sagan
er sögð frá hennar sjónarhóli í
fyrstu persónu. Vinátta þeirra Lilu
er vissulega innileg, en á sama tíma
mörkuð öfund og samkeppni. Frá
upphafi dregst Elena að Lilu eins og
fluga að ljósi; Lila er einfaldlega
öðruvísi, hún kærir sig kollótta um
þær óskráðu reglur sem gilda í sam-
félaginu heldur býr til sínar eigin og
þegar líður á nær áhrifavald hennar
til sífellt fleiri. „Þetta kvöld varð
okkur ljóst að staða
Lilu var að breytast.
(…) Það stafaði frá
henni bjarma sem var
eins og þungt kjafts-
högg framan í fátækt
hverfisins.“ (261).
Þetta er einfaldlega
ein sú allra skemmti-
legasta og best skrifaða
bók sem undirrituð hef-
ur lesið lengi. Ferr-
ante, hver sem það nú
er, býr yfir sérlega
mikilli frásagnargáfu –
persónugalleríið í
þessu úthverfi Napólíborgar er ein-
stakt og sagnagleðin með ólíkindum.
Það er ekkert verið að fegra eitt eða
neitt; öfund, ofbeldi, lygar og aðrir
mannlegir lestir eru í forgrunni í
þessari heillandi sögu sem endar á
svo mikilli ögurstundu að það er ekki
annað í stöðunni en að grípa strax í
næstu bók.
Að lokum er hér vinsamleg ábend-
ing til lesenda: Endilega gefið ykkur
tíma til að lesa listann yfir helstu per-
sónur í upphafi bókarinnar. Það get-
ur reynst erfitt að henda reiður á
þeim öllum, ekki síst vegna þess að
sumar ganga undir nokkrum nöfn-
um, eins og t.d. heitir Lila í raun
Rafaella og allir, nema Elena (sem er
kölluð Lenuccia eða Lenu), kalla
hana Linu.
Napólí Framúrskarandi vinkona er fyrsta bókin í Napólí-fjórleik Elenu Ferrante, dularfulls rithöfundar sem lítil
deili eru vituð á fyrir utan að viðkomandi skrifar bækur sem hafa fengið feikigóðar viðtökur víða um heim.
Fegurðin í ljótleikanum
Skáldsaga
Framúrskarandi vinkona bbbbn
Eftir Elenu Ferrante.
Bjartur - Neon 2015. 330 bls.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Út er komið nýtt
tölublað Þjóð-
mála - Tímarits
um stjórnmál og
menningu. Með-
al efnis er grein-
in „Atlagan að
séreignastefn-
unni“ eftir rit-
stjórann Óla
Björn Kárason.
Björn Bjarnason skrifar Ritstjórn-
arbréf, um stjórnarskrá, pírata sem
rífast og Samfylkinguna í sárum;
Ólafur Egilsson skrifar grein um
fundarhamar Ásmundar Sveins-
sonar sem Íslendingar gáfu Samein-
uðu þjóðunum; Frosti Sigurjónsson
fjallar um rökin fyrir því að skilja að
starfsemi viðskiptabanka og fjár-
festingabanka; og Bjarni Jónsson
fjallar um hlýnun jarðar, orsakir og
viðbrögð mannkyns sem hann segir
röng. Þá er til að mynda fjallað um
dómarann Antonin Scalia, alþjóð-
legan gjaldmiðil á Íslandi og Björn
Bjarnason fjallar um bók Gunnars
Þórs Bjarnasonar, Þegar siðmenn-
ingin fór fjandans til.
Ný og fjöl-
breytileg
Þjóðmál
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Mið 30/3 kl. 19:30 61.sýn Lau 9/4 kl. 19:30 65.sýn Fim 28/4 kl. 19:30 69.sýn
Fim 31/3 kl. 19:30 62.sýn Fim 14/4 kl. 19:30 66.sýn Fös 29/4 kl. 19:30 70.sýn
Fös 1/4 kl. 19:30 63.sýn Fös 15/4 kl. 19:30 67.sýn
Lau 9/4 kl. 15:00 64.sýn Sun 24/4 kl. 15:00 68.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Sun 10/4 kl. 19:30 Lokasýn
"Sýningin er sigur leikhópsins alls og leikstjórans..."
Hleyptu þeim rétta inn (Stóra sviðið)
Lau 2/4 kl. 19:30 8.sýn Lau 16/4 kl. 19:30 11.sýn
Fös 8/4 kl. 19:30 10.sýn Lau 23/4 kl. 19:30 13.sýn
Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu.
Um það bil (Kassinn)
Sun 3/4 kl. 19:30 21.sýn Sun 10/4 kl. 19:30 23.sýn
Fim 7/4 kl. 19:30 22.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 24.sýn
Síðustu sýningar!
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Sun 3/4 kl. 13:00 10.sýn Sun 10/4 kl. 13:00 11.sýn
Æsispennandi fjölskyldusýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Sun 3/4 kl. 19:30 24.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 26.sýn
Mið 6/4 kl. 19:30 25.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 27.sýn
Síðustu sýningar!
Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari)
Fös 1/4 kl. 20:00 56.sýn Lau 2/4 kl. 20:00 58.sýn
Fös 1/4 kl. 22:30 57.sýn Lau 2/4 kl. 22:30 59.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 30/3 kl. 19:30 9.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 11.sýn Mið 27/4 kl. 19:30 13.sýn
Mið 6/4 kl. 19:30 10.sýn Mið 20/4 kl. 19:30 12.sýn
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Mið 30/3 kl. 20:00 6.k Lau 30/4 kl. 20:00 15.s Mið 25/5 kl. 20:00
Fim 31/3 kl. 20:00 aukas. Þri 3/5 kl. 20:00 Fim 26/5 kl. 20:00
Fös 1/4 kl. 20:00 aukas. Mið 4/5 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00
Lau 2/4 kl. 20:00 7.k Fim 5/5 kl. 20:00 Lau 28/5 kl. 20:00
Sun 3/4 kl. 14:00 aukas. Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Sun 29/5 kl. 20:00
Mið 6/4 kl. 20:00 8.k Lau 7/5 kl. 14:00 Þri 31/5 kl. 20:00
Fim 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Mið 1/6 kl. 20:00
Fös 8/4 kl. 20:00 9.k Sun 8/5 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00
Lau 9/4 kl. 20:00 aukas. Þri 10/5 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00
Sun 10/4 kl. 14:00 aukas. Mið 11/5 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00
Mið 13/4 kl. 20:00 10.k Fim 12/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00
Fim 14/4 kl. 20:00 11.k Fös 13/5 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00
Fös 15/4 kl. 20:00 aukas. Lau 14/5 kl. 14:00 Mið 8/6 kl. 20:00
Lau 16/4 kl. 20:00 12.k Þri 17/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00
Mið 20/4 kl. 20:00 13.k Mið 18/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00
Fim 21/4 kl. 20:00 14.k Fim 19/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00
Fös 22/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/5 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00
Lau 23/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 14:00 Mið 15/6 kl. 20:00
Sun 24/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00
Fim 28/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/5 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00
Fös 29/4 kl. 20:00 aukas. Þri 24/5 kl. 20:00
Leikhúsmatseðill frá kl 18 í forsalnum, tónlist og kokteilar
Auglýsing ársins (Nýja sviðið)
Lau 16/4 kl. 20:00 Frums. Fös 22/4 kl. 20:00 4.sýn Fim 28/4 kl. 20:00 7.sýn
Mið 20/4 kl. 20:00 2.sýn Lau 23/4 kl. 20:00 5.sýn Lau 30/4 kl. 20:00 8.sýn
Fim 21/4 kl. 20:00 3.sýn Mið 27/4 kl. 20:00 6.sýn Fim 5/5 kl. 20:00 9.sýn
Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur e. Tyrfing Tyrfinsson
Njála (Stóra sviðið)
Sun 3/4 kl. 20:00 29.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 30..sýn Sun 17/4 kl. 20:00 síð. sýn.
Síðustu sýningar
Vegbúar (Litla sviðið)
Lau 2/4 kl. 20:00 35.sýn Fös 8/4 kl. 20:00 36.sýn Lau 16/4 kl. 20:00 37.sýn
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 29/4 kl. 20:00 106.sýn Fös 20/5 kl. 20:00 108.sýn
Fim 12/5 kl. 20:00 107.sýn Lau 28/5 kl. 20:00 109.sýn
Kenneth Máni stelur senunni
Illska (Litla sviðið)
Lau 9/4 kl. 20:00 Mið 20/4 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 20:00
Fim 14/4 kl. 20:00 Lau 23/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins
Made in Children (Litla sviðið)
Fös 1/4 kl. 20:00 frums. Fim 7/4 kl. 20:00 3.sýn Fös 15/4 kl. 20:00 5.sýn
Sun 3/4 kl. 20:00 2.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 4.sýn
Hvernig gera börnin heiminn betri?
NJÁLA – „Drepfyndið“★★★★★, AV – DV