Morgunblaðið - 30.03.2016, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Brynjar afléttir þagnarbindindi
2. Blaðamannalistinn fer í rannsókn
3. Séreign getur myndast með arfi
4. Ráðleggur Sigmundi að segja …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Píanóleikarinn Sunna Gunnlaugs
kemur fram með félögum sínum í Tri-
bute tríói á tónleikum Jazzklúbbsins
Múlans í kvöld kl. 21 á Björtuloftum í
Hörpu. Þau munu leika tónlist eftir
lagahöfundinn Magnús Eiríksson í
djassbúningi. Markmið tríósins er að
hylla helstu meistara íslenskrar dæg-
urtónlistar, eins og segir í tilkynn-
ingu. Ásamt Sunnu eru meðlimir
tríósins Leifur Gunnarsson sem leik-
ur á bassa og trommuleikarinn Krist-
ofer Rodriguez Svönuson.
Múlinn er á sínu 19. starfsári en
hann er samstarfsverkefni Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna (FÍH) og
Jazzvakningar og heitir í höfuðið á
Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var
heiðursfélagi og verndari Múlans.
Tribute tríó leikur
lög Magnúsar
Fjallkonan eftir Ingibjörgu Hjart-
ardóttur er komin út í Þýskalandi
en bókin kom út fyrir jól hér á
landi í fyrra. Fjallkonan er fjórða
skáldsaga Ingibjargar og hafa allar
bækur hennar verið gefnar út í
Þýskalandi af forlaginu Salon Lite-
ratur Verlag og hlotið
góðar viðtökur. Í Fjall-
konunni vakna
minningar
bernskuáranna af
dvala og varpa um
leið ljósi á æv-
intýralegt lífs-
hlaup heims-
konunnar
Ríkeyjar.
Fjallkona Ingibjargar
komin út í Þýskalandi
Á fimmtudag Vaxandi austanátt. Stöku él sunnanlands, en bjart-
viðri um landið norðan- og vestanvert. Austan 10-20 um kvöldið,
hvassast með suðurströndinni og snjókoma á Suðausturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 5-13 m/s sunnanlands og snjókoma
með köflum. Hægari vindur í öðrum landshlutum og yfirleitt þurrt
og bjart veður. Hiti frá frostmarki syðst, niður 12 stiga frost.
VEÐUR
Haukar tryggðu sér sæti í
undanúrslitunum í Dom-
inos-deild karla í körfu-
knattleik eftir sigur á Þór í
æsispennandi framlengdum
leik í Þorlákshöfn í gær-
kvöld. Stjörnumenn náðu að
knýja fram oddaleik þegar
þeir höfðu betur gegn
Njarðvíkingum suður með
sjó. Oddaleikurinn fer fram í
Garðabæ en allir leikirnir í
einvíginu hafa unnist á úti-
velli. »2-3
Haukar komnir
í undanúrslitin
Undanúrslit Íslandsmóts kvenna í
körfuknattleik hefjast í kvöld þegar
Haukar taka á móti Grindavík á Ás-
völlum og Snæfell og Valur
eigast við í Stykkishólmi.
Álitsgjafi Morgunblaðs-
ins að þessu sinni, Mar-
grét Kara Sturludóttir úr
Stjörnunni, reiknar með
því að Haukar og Snæfell
komist áfram og muni
spila til úrslita en
vinna þarf þrjá leiki í
undanúrslitum til að
komast í úrslit. »4
Undanúrslitin hefjast
hjá konunum í kvöld
Haukar eru áfram með eins stigs for-
skot á toppi Olís-deildar kvenna í
handknattleik en Haukar lögðu Val á
heimavelli í gærkvöld. Haukar eru
stigi á undan Gróttu þegar tvær um-
ferðir eru eftir en Grótta burstaði
Fjölni. Fram komst upp í þriðja sætið
með sigri gegn Fylki og Stjarnan er
komin í 4. sætið eftir öruggan sigur á
Selfyssingum. »2
Haukar með eins stigs
forskot á toppnum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Bíllinn er listagripur og mér er í
mun að honum verði til frambúðar
búinn sá sess sem honum ber. Mér er
annt um þennan bíl og þegar aldurinn
færist yfir og heilsan farin að bila vil
ég koma honum í öruggar hendur,“
segir Sverrir Andrésson á Selfossi.
Hann hefur nú sett á sölu bíl sem
hann smíðaði í kringum aldamótin,
það er nákvæm eftirgerð Thomsens-
bílsins sem var fyrsti bíllinn á Íslandi.
Undirvagn og annað úr Suzuki
Það var árið 1904 sem Dethlev
Thomsen, konsúll og kaupmaður í
Reykjavík, flutti inn bíl, sem var
þýskur og af gerðinni Cudell. Til
kaupanna – fyrir 111 árum – naut
Thomsen tilstyrks Alþingis. Tilgang-
urinn með þessu öllu var að reyna hve
vel bílar, sem þá voru kallaðir mót-
orvagnar, hentuðu við íslenskar að-
stæður. Sannast sagna reyndist
Thomsens-bíllinn ekki sem skyldi,
enda var eintakið tæpast nógu gott
og hér engir vegir sem heitið gátu.
Aðallega hestvagnabrautir. Endirinn
varð því sá að bíll Thomsens var seld-
ur úr landi árið 1908. Hin raunveru-
lega bílaöld á Íslandi gekk svo í garð
nokkrum árum síðar.
„Það var alltaf eitthvað við sögu
Thomsens-bílsins sem heillaði mig og
að smíða eftirgerð hans var ögrandi
viðfangsefni sem ég velti lengi fyrir
mér. Ég tók því til allar myndir af
bílnum sem ég fann og setti mig með
góðra manna hjálp í samband við
menn í Þýskalandi sem þekktu til
svona bíla. Svo hófst ég handa, en
þetta tók nokkur ár,“ segir Sverrir
um bílinn. Til smíðinnar notaði hann
hjólabúnað, undirvagn og annað úr
litlum Suzuki-sendiferðabíl árgerð
1993 og lagði yfirbygginguna þar á.
Stássgripur eða sviðsmynd í bíó
„Já, um dagana hef ég smíðað all-
marga bíla svo sem Willys-jeppa og
fleiri góða. Þetta verkefni var samt
alveg sérstakt og í þetta fór mikil
vinna þar sem að mörgu var að
hyggja. Ég notaði vélina úr Suzuki-
bílnum en á ytra byrðinu er allt líkt
því sem var hjá Thomsen, en ég bætti
þó við ljósum og öðru,“ segir Sverrir
sem lauk smíðinni árið 2001.
Thomsens-bíllinn er í dag til sýnis í
bíla- og flugminjasafni Einars Elías-
sonar á Selfossflugvelli, en stundum
hefur verið farið í bíltúra, svo sem á
17. júní, við fornbílasýningar og önn-
ur slík tilefni. Þá var bíllinn lengi
stássgripur hjá Bílasölu Selfoss sem
Sverrir rak um áratugaskeið. Í dag er
fyrirtækið í eigu Rögnvaldar Jóhann-
essonar sem er með bílinn til sölu.
„Þetta væri fínn bíll í tengslum við
ferðaþjónustu eða stássgripur. Því
verða nýir eigendur annars að ráða,“
segir Sverrir að síðustu.
Thomsens-bíllinn er til sölu
Endurgerður
fyrsti mótorvagn á
Íslandi er falur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Selfoss Sverrir Andrésson við Thomsensbílinn og með pappaútgáfu af faktornum, sem bíllinn er kenndur við.
Víða hefur verið sagt frá Thomsens-bílnum, meðal annars í grein sem
Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerðarmaður skrifaði í Morgunblaðið sum-
arið 1994. Um það leyti gerðu Hjálmtýr, Finnbogi Hermannsson og fleiri
heimildarmynd um upphaf bílaaldar á Íslandi. Konsúll Thomsen keypti bíl
var heiti myndarinnar en sú lína er fengin úr ljóði eftir Þórarin Eldjárn. Í
greininni segir Hjálmtýr að tiltækar heimildir vísi á að bíllinn hafi verið
smíðaður á miðju ári 1901 – hafi því verið um það bil þriggja ára er hann
var fluttur hingað til lands. „Bíllinn var þá orðinn úreltur, líktist fremur
hestvagni en bifreið,“ segir í greininni. Þar er einnig vitnað til ökuferða
sem farnar voru á bílnum í tilraunaskyni, meðal annars suður í Hafnar-
fjörð og austur fyrir fjall. „Hestar fælast lítið sem ekkert fyrir mótor-
vagninn,“ sagði Thomsen. Niðurstaðan í grein Hjálmtýs er annars sú að
undirbúningur þessa ævintýris hafi ekki verið sem skyldi og því hafi upp-
haf bílavæðingar á Íslandi verið á brauðfótum.
Fremur hestvagn en bifreið
KONSÚLL THOMSEN KEYPTI BÍL, ORTI ÞÓRARINN ELDJÁRN