Morgunblaðið - 20.04.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2016
Vefþjóðviljinn segir ekkert nýttað fréttamenn taki hægri-
menn öðrum tökum en vinstri-
menn og tekur tvö dæmi.
Annað er um fréttir Morgun-blaðsins „af undarlegu
eignarhaldi þess húsnæðis þar sem
Samfylkingin hefur aðsetur sitt.
Eigendur, eða eigendur eig-
endanna, hússins virðast vera
óskráð félög sem ekki er vitað
hverjir stjórna og litlar upplýs-
ingar eru veittar um málin.“
Og Vefþjóðviljinn segir að„menn ættu að velta fyrir sér
hvernig Ríkisútvarpið léti ef ein-
hver annar flokkur ætti í hlut. Ef
huldufélög ættu Valhöll eða ættu
félög sem segðust eiga félög sem
sögð væru eiga húsnæði Fram-
sóknarflokksins, hversu margar
mínútur liðu þar til fréttastofan í
Efstaleiti fengi flog?“
Hitt dæmið er af því hvernigÁrni Páll Árnason komst
upp með að halda því fram að
ríkisstjórnin „hefði hefnt sín á nú-
verandi umboðsmanni vegna góðr-
ar frammistöðu hans í „lekamál-
inu“. Þess vegna hefðu fjár-
veitingar til hans verið skornar
niður.
Enginn fréttamaður spurði for-mann Samfylkingarinnar
hvernig þessi kenning hans um
refsingar og hefnd kæmi heim og
saman við þá staðreynd að
Tryggvi Gunnarsson var endur-
kjörinn umboðsmaður Alþingis til
fjögurra ára í desember síðast-
liðnum.“
Þetta eru óneitanlega umhugs-unarverðar ábendingar.
Ólíkt tekið á
hægri og vinstri
STAKSTEINAR
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Alls verða grásleppuútgerðum um
allt land endurgreiddar tæplega 80
milljónir króna vegna veiðigjalda frá
október 2012 til október 2015 í sam-
ræmi við dóm Hæstaréttar 28. jan-
úar sl. Við þessa upphæð bætast
vextir, en alls eiga 384 aðilar rétt á
endurgreiðslunni og er meðal-
fjárhæð á hvern þeirra tæplega 207
þúsund krónur.
Fiskistofa hefur lokið við bak-
færslu á þessum gjöldum og eru þau
tilbúin til endurgreiðslu hjá inn-
heimtumönnum ríkissjóðs auk
vaxta. Ef sá sem á rétt á endur-
greiðslu á útistandandi gjöld hjá inn-
heimtumönnum ríkissjóðs verða þau
skuldajöfnuð áður en til endur-
greiðslu kemur.
Er tékki á leiðinni?
Það var Halldór fiskvinnsla á
Bakkafirði sem stefndi ríkinu og var
fjallað um dóminn á heimasíðu
Landssambands smábátaeigenda í
byrjun febrúar undir ofangreindri
millifyrirsögn. Málið snerist um að
eigendur fiskvinnslunnar, Áki H.
Guðmundsson og Hilma Hrönn
Njálsdóttir, voru ósátt við að þurfa
að greiða veiðigjald af afla sem feng-
inn var við grásleppuveiðar.
Óánægja þeirra laut að misræmi
milli krókaaflamarks- og aflamarks-
báta. Bátum sem höfðu veiðileyfi í
aflamarki var gert að greiða veiði-
gjald en útgerðum krókaaflamarks-
báta ekki.
Hæstiréttur féllst á þau rök fisk-
vinnslunnar að álagning veiðigjalda
á aflamarksbáta bryti í bága við
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Var því dómi Héraðsdóms snúið við.
Ríkinu var gert að greiða Halldóri
fiskvinnslu ehf. 871.718 krónur auk
tveggja milljóna króna í máls-
kostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.
Grásleppuút-
gerðir fá tæp-
ar 80 milljónir
Álagning veiðigjalda á aflamarks-
báta braut í bága við jafnræðisreglu
Veður víða um heim 19.4., kl. 18.00
Reykjavík 4 rigning
Bolungarvík 1 léttskýjað
Akureyri 5 skýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 5 alskýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 15 skúrir
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 7 skúrir
Glasgow 8 skýjað
London 12 léttskýjað
París 12 léttskýjað
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 12 skýjað
Vín 12 skýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 10 skúrir
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 17 heiðskírt
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -5 léttskýjað
Montreal 3 skúrir
New York 16 alskýjað
Chicago 9 alskýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:36 21:18
ÍSAFJÖRÐUR 5:30 21:34
SIGLUFJÖRÐUR 5:12 21:17
DJÚPIVOGUR 5:03 20:50
Samningur á milli sjávarútvegs-
fyrirtækja á Austurlandi og Há-
skólans á Akureyri um að Háskól-
inn taki að sér umsjón með starfi
Sjávarútvegsskólans var undir-
ritaður nýlega. Skólinn er ætlaður
nemendum sem nýlokið hafa 9.
bekk grunnskóla og er markmið
hans að miðla þekkingu í sjávar-
útvegi til nemenda í sjávarbyggð-
um og á nærliggjandi svæðum.
Á þessu ári verður kennt á sex
stöðum á Austurlandi en stefnt er
að því að kenna víðar á komandi
árum. Kennslustaðir á sumri kom-
andi verða Neskaupstaður, Seyðis-
fjörður, Fáskrúðsfjörður, Eski-
fjörður, Vopnafjörður og Höfn.
HA tekur við umsjón sjávarútvegsskólans
Hvorki utanríkisráðuneytið né
ríkislögreglustjóri hafa fengið upp-
lýsingar um Íslending sem á að hafa
gengið til liðs við samtökin sem
kennd eru við Ríki íslams, ef marka
má skjöl frá samtökunum sem lekið
var til vestrænna fjölmiðla. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem Íslendingur
er sagður tilheyra samtökunum.
Bandaríska fréttastöðin NBC og
fleiri fjölmiðlar birtu fréttir upp úr
skjölunum sem liðhlaupi úr Ríki ísl-
ams stal og lak til þeirra um
helgina. Þar kemur meðal annars
fram að Íslendingur hafi skráð sig í
samtökin á árunum 2013 til 2014.
Urður Gunnarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi utanríkisráðuneytisins,
sagði mbl.is í gær að ráðuneytinu
hefðu engar upplýsingar borist um
Íslending sem tilheyrði hryðju-
verkasamtökunum. Sömu upplýs-
ingar fengust frá embætti ríkislög-
reglustjóra.
Ekki vitað um ISIS-liða
HVAÐ HENTAR
ÞÍNU STARFSFÓLKI?
Hjá okkur færðu ljúffengan mat
úr fyrsta flokks hráefni.
• Fjölbreytta rétti úr fiski, kjöti og grænmeti.
• llmandi og nýbökuð brauð, rík af korni og fræjum.
• Gómsætar súpur, lagaðar með hollustu að leiðarljósi.
• Brakandi fersk salöt og ávexti.
• Við komum til móts við ykkar óskir
Hringdu og leitaðu tilboða
Sími 515 0702 og 515 0701
kryddogkaviar@kryddogkaviar.is