Morgunblaðið - 10.05.2016, Qupperneq 13
Fögnuður Sigríður Ýr og Mike kampakát með lyklana að mótorfáknum sem ber þau þvert yfir Bandaríkin.
dag, stoppa á áhugaverðum stöðum,
til dæmis í þjóðgörðum og skemmta
okkur í fallhlífa- og teygju- og trjá-
stökki og takast á við áskoranir af
ýmsu tagi.“
Og nei, Sigríður Ýr hefur aldrei
á ævinni tekið slík stökk, eða stýrt
mótorhjóli svo nokkru nemi. Þau
verða á einu hjóli, Mike stýrir og Sig-
ríður Ýr verður í aftursætinu. „Ég
þarf að hanga í honum að minnsta
kosti sex tíma á dag og því hef ég lagt
sérstaka áherslu á armbeygjur í
ræktinni auk þess sem ég hef hjólað á
hverjum degi til að vera sem best lík-
amlega á mig komin. Mike hugsar um
ferðina sem ævintýraferðamennsku,
en ég frekar sem skemmtun og
áskorun að öllu leyti, líka í tengslum
við mat og næringu. Við tökum
hvorki með okkur aukafatnað né mat
eða eldunartæki. Þar sem við ætlum
ekki að borða á veitingastöðum, sem
eru ábyggilega ekki á hverju strái á
stórum svæðum, verður spennandi að
vita hvernig okkur tekst til. Sér-
staklega í ljósi þess að ég borða ekki
dýraafurðir og Mike er grænmet-
isæta og Bandaríkin eru höfuðvígi
kjötneyslu í heiminum,“ segir Sigríð-
ur Ýr, sem ætlar að láta sig hafa það
að vera í sömu fötunum alla ferðina.
„Ekki þekkileg tilhugsun, en áskorun
í sjálfu sér,“ bætir hún við.
Stefna á heimsmet
Hugmyndir þeirra um mótor-
hjólaferðalagið, sem upphaflega átti
að vera vikulangt skemmtiferðalag til
að fagna útskrift Sigríðar Ýrar, fóru
smám saman á flug. Vika dugði eng-
an veginn fyrir allt sem þau langaði
til að gera auk þess sem ævintýra-
legar frásagnir Mike af sínum fyrri
ferðum leystu ævintýraþrá Sigríðar
Ýrar úr læðingi. „Mike eltir drauma
sína og hefur náð miklum árangri
sem „expedition athlete“, eins og þeir
kallast á ensku, sem safna styrkjum –
oftast fyrir einhvern málstað – og
leggja á sig ýmsar mannraunir á
ferðalögum. Mér finnst þetta
heillandi lífsstíll og langaði einfald-
lega til að fara með honum í svona
ferðalag – og vonandi fleiri í framtíð-
inni.“
Í spjalli okkar kemur fram að
þau eru með fleiri ferðalög á teikni-
borðinu og stefna að heimsmeti,
hvorki meira né minna. Þau hafa þeg-
ar ráðfært sig við heimsmetabók Gu-
inness um útfærsluna, en markmiðið
er að hjóla tiltekna vegalengd á vasa-
hjóli. Hvar og hvenær liggur þó ekki
ljóst fyrir ennþá.
Sigríður Ýr segir að þau Mike
eigi mörg áhugamál sameiginleg,
þeim finnist gaman að syngja saman,
bæði spili á ukulele og geri jógaæf-
ingar saman svo fátt eitt sé talið. Bú-
seta hvors þeirra í sinni heimsálfunni
setji vitaskuld strik í reikninginn, en
þau eigi eftir að huga betur að þeim
málum. Stefnan núna sé að fara í sem
flest ferðalög saman. Mótorhjólaferð-
in er í þágu mannúðar en er líka, eins
og hún áður sagði, prófraun á sam-
bandið og áskorun á öllum sviðum,
ekki síst þolinmæðina. „Við getum
lent í vondu veðri og alls konar
óvæntum hrakningum; orðið alltof
heitt eða kalt, blaut og svöng,“ segir
Sigríður Ýr, sem hræðist ekki neitt.
Mótorfákurinn
Nánari upplýsingar:
Sigríður Ýr og Mike safna áheit-
um fyrir samtökin Seeds of Peace
í fjáröflunarátakinu Miles for
Peace: crowdrise.com/miles-for-
peace/fundraiser/globalmikereid
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016
Hringbraut-miðlun ehf. | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um
starfsemi fyrirtækja innan Haga hf.
og viðtali við forsvarsmenn þeirra
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ
Heimsókn til Haga
– þriðji og síðasti hluti
í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá
Hringbrautar kl. 20.30 í kvöld.
• Debenhams er fyrsta og eina ”Department Store” á Íslandi
• Aðföng dreifa gríðarlegumagni af matvöru til allra verslana
Hagkaupa og Bónus 7 daga í viku
• Bananar efh er stærsti innflytjandi og dreifandi á ávöxtum og
grænmeti á Íslandi
• TopShop – tískuverslun sem þjónar nýjum straumum í tísku
hverju sinni
Á dagskrá
Hringbrautar
í kvöld kl. 20.30
Á heimasíðu Mike Reids kemur fram að sumarið 2014
hafi hann ásamt japönskum félaga sínum róið á kajak
frá Suður-Kóreu til Japans. Eftir það hafi ekki orðið aft-
ur snúið. Hann ákvað að stíga út fyrir þægindaram-
mann, segja upp stöðu sinni sem enskukennari í Yama-
guchi í Japan og gera ferðalög að lífsstíl sínum og
lifibrauði. „Ég komst fljótlega að raun um að það var ekki bara hafið sem
heillaði mig, heldur líka allir krókar og kimar fjarlægra borga og menning-
arheima,“ segir hann. Að sögn Sigríðar Ýrar gengur Mike vel að fá styrkt-
araðila, en milli leiðangra vinni hann líka brjálæðislega mikið og taki að
sér alls kyns störf, t.d. sé hann núna hjólasendill fyrir veitingahús og hjóli
með matarsendingar til borgarbúa víðsvegar í Fíladelfíu. „Um 80 kíló-
metra á dag, sem er góður undirbúningur fyrir ferðina okkar,“ segir hún.
www.globalmikereid.com
Lífsstíll og lifibrauð
FERÐAGARPURINN MIKE REID