Morgunblaðið - 10.05.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016
Fáðu
garðsláttinn
í áskrift
og slakaðu á í sumar
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Framkvæmdir eru langt komnar við Canopy
Reykjavík – city center og er stefnt að opnun
hótelsins um miðjan júní. Þar verða 112 herbergi.
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Icelandair Hotels, segir um 130 manns vinna
að framkvæmdinni á þessu stigi.
„Við áformum að opna hótelið um miðjan júní.
Eins og gengur í svona framkvæmd er mikið eftir.
Hver dagur á þessu stigi er drjúgur. Það eru marg-
ir að vinna við að láta þetta allt ganga saman. Það er
verið að vinna á ólíkum stöðum í byggingunni. Við
erum lengst komin með Smiðjustíginn og svo fylgja
hin húsin á eftir.“
Margir vildu starfa á hótelinu
Magnea Þórey segir eftirspurn eftir störfum á
hótelinu hafa verið meiri en framboðið. Ekki hafi
þurft að leita út fyrir landsteinana að fólki.
„Það hefur gengið mjög vel að ráða fólk. Við
erum búin að ráða í öll störf. Það munu um 60
manns starfa á hótelinu. Það var mikill áhugi á með-
al Íslendinga og við gátum valið úr umsóknum.“
Spurð hvaða störf séu í boði segir Magnea Þórey
að annars vegar sé um að ræða hótelstörf. Þá störf í
bókun, gestamóttöku og þrifum. Hins vegar verði
stór veitingastaður á hótelinu. Þangað hafi verið
ráðnir þjónar, kokkar og vaktstjórar.
Nafnið á staðnum hefur ekki verið opinberað.
Innangengt verður frá veitingastaðnum á Hverfis-
götu og verður þaðan hægt að ganga inn á torg á
Hljómalindarreitnum. Hann afmarkast af Hverfis-
götu í norðri, Klapparstíg í austri, Laugavegi í
norðri og Smiðjustíg í vestri. Magnea segir upp-
bygginguna á svæðinu mjög spennandi. „Markmið-
ið er að gæða þetta svæði lífi og borgaryfirvöld hafa
mikinn metnað til að vinna með rekstraraðilum til
að skapa iðandi mannlíf við torgið.“
Hverfisgatan mun taka lengri tíma
Magnea Þórey segir framkvæmdir við endur-
bætur á lögnum á Smiðjustíg hafa orðið til tafar.
„Það hefur aðeins tafið fyrir okkur að borgin
stendur samhliða í götuframkvæmdum á Smiðju-
stíg. Það var jafnframt verið að bjóða út fram-
kvæmdir á hluta Hverfisgötunnar. Það verður því
ekki allt klárt þegar við opnum. Sá hluti sem snýr að
Smiðjustígnum verður það þó. Hverfisgatan mun
taka lengri tíma. Þá ætlum við okkur að vera komin
eins langt með torgið á reitnum, það er að segja
gamla Hjartagarðinn, og okkur framast er unnt,“
segir Magnea Þórey. Hún segir bókanir líta ágæt-
lega út á nýja hótelinu. Icelandair-hótelin eru jafn-
framt að byggja 50 herbergja lúxushótel á Hafnar-
stræti og er stefnt að opnun þess 2017.
Lúxushótel á lokastigi
Tölvumynd/ARKþing/Sigurður Hallgrímsson
Hótelið Canopy Reykjavík – city center verður opnað um miðjan júnímánuð
Tölvumynd/Innanhúshönnun/Björgvin Snæbjörnsson/Apparat
Ljóðahornið Setustofa með arni verður inni af gestamóttökunni á jarðhæð.
Safn íslenskra ljóða á ýmsum tungumálum mun prýða veggina á hótelinu.
Breytir um svip Svona mun hótelið líta út séð frá Smiðjustíg. Austan við
húsið sem er fyrir miðju verður torg þar sem boðið verður upp á veitingar.
Kaffihús Þegar gengið er inn á jarðhæð er komið
inn í gestamóttöku og kaffihús á sama stað.
Tölvumynd/Apparat
● Fremur litlar sviptingar voru í Kaup-
höllinni fyrsta viðskiptadag vikunnar og
stóð úrvalsvísitalan nánast í stað.
Lækkaði vísitalan um 0,03% í 2,5 millj-
arða króna viðskiptum. Mest hækkaði
gengi hlutabréfa í Össuri, um 3,1% í 29
milljóna króna viðskiptum. Langmest
viðskipti vorum með hlutabréf í Marel,
eða fyrir liðlega einn milljarð króna.
Hækkuðu bréf félagsins um 0,6%. Þá
hækkuðu bréf í Fjarskiptum um 2,0%
og Símanum um 1,6%. Mest lækkuðu
bréf í Reitum um 0,9% og TM um 0,7%
í litlum viðskiptum.
Allt með kyrrum kjörum
í Kauphöll í upphafi viku
Gengisskráning 9. maí 2016
Kaup Sala Mið
DOLLARI 122,55 123,13 122,84
STERLINGSPUND 177,02 177,88 177,45
KANADADOLLARI 94,77 95,33 95,05
DÖNSK KRÓNA 18,741 18,851 18,796
NORSK KRÓNA 14,965 15,053 15,009
SÆNSK KRÓNA 15,045 15,133 15,089
SVISSN. FRANKI 126,3 127 126,65
JAPANSKT JEN 1,1339 1,1405 1,1372
SDR 173,16 174,2 173,68
EVRA 139,44 140,22 139,83
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 173,3199
Heimild: Seðlabanki Íslands
Farþegum flug-
félagsins Wow air
fjölgaði um 102% í
apríl í ár saman-
borið við apríl í
fyrra. Á sama tíma
fór sætanýting fé-
lagsins úr 75% í
87%. Alls hefur
flugfélagið flutt
um 273 þúsund
farþega á árinu, sem er 114% aukning
frá sama tíma í fyrra. Stefnir félagið
að því að auka sætaframboð sitt um
127% á þessu ári í 1,9 milljón sæti.
„Það er nokkuð ljóst að Wow air á
stóran þátt í þeirri fjölgun ferðamanna
sem hefur verið nú á þessu ári og þá
sérstaklega fjölgun bandarískra ferða-
manna yfir vetrarmánuðina,“ segir
Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi, í
tilkynningu frá félaginu.
Farþegum
Wow fjölgar
Skúli
Mogensen
114% aukning
fyrstu 4 mánuðina
● Vöruskiptahalli
við útlönd jókst á
fyrsta ársfjórðungi
og mældist hann
25 milljarðar
króna, að því er
fram kemur í
Hagsjá Landsbank-
ans. Kemur þar
fram að samdrátt í
útflutningi á milli
ára megi fyrst og
fremst reka til minni útflutnings-
verðmæta af stóriðjutengdum útflutn-
ingi. Eru það sérstaklega útflutnings-
verðmæti áls sem hafa áhrif en þau
drógust saman um 26,4 milljarða á milli
ára. Auk þess dróst útflutningur á kísil-
járni saman og útflutningsverðmæti
sjávarafurða voru 7,4 milljörðum minni
en í fyrra. Samdráttur útflutnings-
verðmæta sjávarafurða skýrist af
slæmri loðnuvertíð. Lægra olíuverð í
heiminum mildar þó gjaldeyris-
útstreymið á ársfjórðungnum.
Lægra álverð hefur
áhrif á vöruskiptajöfnuð
Vöruskiptahalli
jókst í upphafi árs.
STUTTAR FRÉTTIR ...
Rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja torveldar
þeim að ná fram stærðarhagkvæmni í sama mæli
og annars staðar í Evópu. Hefur það neikvæð áhrif
á lífskjör þar sem framleiðni fyrirtækja eykst sam-
hliða vexti þeirra. Þetta er meðal efnis í skoðun Við-
skiptaráðs sem birt var á vefsíðu samtakanna í gær.
Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til þess að styrkja
forsendur fyrir vexti minni fyrirtækja með einfald-
ara regluverki, auk þess sem bent er á að aukin
stærðarhagkvæmni, sjálfbærar launahækkanir og
minni fleygur á milli vinnuveitanda og launþega
myndi bæta rekstrarumhverfi minni fyrirtækja
hérlendis.
Við alþjóðlegan samanburð kemur í ljós að
stærri fyrirtæki hafa að meðaltali 177 starfsmenn
hér á landi samanborið við 253 starfsmenn erlendis.
Hér á landi er framleiðni vinnuafls um 45% meiri í
stærri fyrirtækjum en þeim minni. Í Evrópu-
sambandsríkjunum er þessi munur 57%. Hins veg-
ar virðist sem stærðarhagkvæmni gæti ekki hjá
meðalstórum fyrirtækjum umfram þau smærri hér
á landi, ólíkt því sem þekkist innan Evrópusam-
bandsins. Að mati Viðskiptaráðs benda þessar
staðreyndir til að eitthvað í rekstrarumhverfi inn-
lendra fyrirtækja torveldi þeim að ná fram stærð-
arhagkvæmni í sama mæli og annars staðar í Evr-
ópu.
Stærri fyrirtæki gætu bætt lífskjör
Viðskiptaráð telur rekstrarumhverfi hér á landi torvelda stærðarhagkvæmni