Morgunblaðið - 10.05.2016, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 10.05.2016, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2016 FERÐASUMAR 2016 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, miðvikud. 23.maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is | Sími: 569-1105 SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur 27.maí gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um Ferðasumarið 2016. Í blaðinu verður viðburðardagatal sem ferðalangar geta flett upp í á ferðalögumum landið og séðhvað er umað vera á því svæði semverið er að ferðast um í. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Alls kyns tækni tengd vinnunni gæti komið þér úr jafnvægi í dag; tölvur bila hugsanlega, rafmagnið fer eða eld- varnarkerfið fer af stað. Ráddu krossgát- una og fáðu þér kaffibolla. 20. apríl - 20. maí  Naut Það vefst fyrir þér að ganga frá máli sem þér hefur verið falið að leiða til lykta. Einbeittu þér að pípulögnum, úrgangi og geymslusvæðum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki undan lönguninni til eyðslusemi heldur haltu fast um budduna. Gefstu ekki upp því þolinmæði þrautir vinnur allar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert að brjótast í þeim málum sem þér finnast þér ofvaxin. Ekki láta ein- hvern annan sannfæra þig heldur skaltu íhuga valkostina vandlega. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hlutirnir gætu ekki gengið betur í vinnunni. Mundu að reiðin er eyðandi afl og enginn þess virði að þú skemmir sjálfan þig hennar vegna. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er tími til að breikka líf þitt og bæta við umhyggju fyrir öðrum. Seinna muntu líta aftur til dagsins í dag og hugsa: Gerðist þetta? 23. sept. - 22. okt.  Vog Fólk lítur þig jákvæðum augum í dag því það sér góðlegar og umhyggjusamar hliðar hennar. Nú færðu það borgað. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt öðrum lítist hreint ekki á fyrirætlanir þínar máttu ekki láta það draga úr þér kjarkinn. Gefðu þér góðan tíma til þess að meta aðstæður. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér finnst fáránlegt af fólki að röfla yfir hlutum sem í raun aldrei gerðust. Reyndu að sýna þolinmæði. 22. des. - 19. janúar Steingeit Enginn gefur þér tíma fyrir sjálf- an þig, þess vegna þarftu bara að búa þér hann til. Láttu nokkra daga líða svo þú ná- ir að framkalla skýrari mynd af stöðu mála. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er ástæðulaust að ganga með eitthvert steinbarn í maganum frá fornri tíð. Herskár hugur þinn er gæfur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Óþekktur aðdáandi gæti sent þér blóm, kort eða gjafir. Hlustaðu á það sem hinn aðilinn hefur að segja áður en þú tek- ur afstöðu. Sama gildir um flotta hluti, áhugaverða og heillandi. Í síðustu viku hitti ég karlinn áLaugaveginum fyrir utan Ráð- húsið. Hann hallaði höfðinu eilítið, skotraði augunum út á Tjörnina og sagði: Þar er kjói, kría, lóa, spói – og þoka. Við Tjörnina er basl og busl, – og borgarstjórinn tínir rusl – í poka. Helgi R. Einarsson sendi mér þessar limrur, „Bessastaðabræð- inga“ fyrir helgi: Jesús var lagður í jötu og Jogvan ólst upp í Götu, en Álftanes – Óli er vor ástsæli sjóli, þótt skriplaði aðeins á skötu. Bessastaðabúið er bágt og trausti rúið er. Skattakveisa, skömm og hneisa. Allt nú öfugsnúið er. Og þessi limra varð óvart til seg- ir Helgi: Lævís og lipur er’ún limran og blessuð ver’ún. Kitlar landann og kætir fjandann. Kemur og síðan fer’ún. Og fyrir helgina velti Fía á Sandi því fyrir sér á Leirnum hvort orti Móse eða Ólafur þessa: Í Gósenlandi er fólkið vanda vafið vantar trú og felur auðinn sinn. „Eg mun leiða ykkur yfir hafið ókeypis, ef fæ ég stuðning þinn. Síðan bætti Fía við að hún hefði ætlað að yrkja um alla frambjóð- endur til forseta, en þeir væru bara svo margir: Guðni mun geðjast öllum glettin er Elísabet. Andri er alveg á fjöllum en Ólafi slær fleiri met. En síðan breyttist staðan og Valdimar Gunnarsson orti á sunnu- daginn: Frá því er sagt í fornri bók (finnst sumum vera heillaspá) hve djarflega steininn Davíð tók og dúndrað’ í Golíat, svo hann lá. Nú er vetur að lina tökin um allt land og kominn tími til. Það gæti skaðað orðspor og ímynd landsins ef við létum þessi harðindi viðgang- ast lengur. Það gæti jafnvel frést alla leið til Panama þar sem þeir ku hafa svo gott veður. Höfum vetri gjaldið greitt græðir ljúfi blærinn. Vísur dreifast vítt og breitt, og víðar en á Leirinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Rusl, skrýtnir fuglar og fleira gott Í klípu ÞAÐ VAR FRÁBÆRT AÐ GETA FARIÐ AFTUR Í VINNUNA. JAFNVEL ÞÓ AÐ ÞAÐ ÞÝDDI INNBROT UM MIÐJA NÓTT, AÐ ROTA ÖRYGGISVÖRÐ, OG ÞURFA AÐ SITJA VIÐ SKRIFBORÐ EFTIRMANNSINS. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞETTA ER OFNSTEIKTUR KALKÚNN. FJAÐRIRNAR URÐU PÍNU SVARTAR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... fáguð! ÉG ÆTTI AÐ FARA Á FÆTUR ÞAÐ ÞARF STÓRAN KÖTT TIL AÐ VIÐURKENNA ÞEGAR HANN HEFUR GERT MISTÖK ÉG HEF EKKI BRJÓST Í MÉR TIL AÐ LEIÐA HJÁ MÉR ÞESSA ÖRVÆNTINGARFULLU NÁÐARBEIÐNI… ÉG MUN EKKI STELA FRÁ ÞESSUM MANNI! GERIÐ ÞIÐ ÞAÐ Þó að fólk hafi komið að máli viðVíkverja skal tekið strax fram í upphafi að hann er ekki á leiðinni í forsetaframboð. Frekar kemur til greina að sækjast eftir embætti for- manns húsfélagsins, enda hefur komið í ljós að eiginkona núverandi formanns hefur átt fé á afrétti í Hruna sem talið var fram í bókhaldi húsfélagsins sem frádráttarbært fé til skatts. Djók! x x x Víkverji telur verk að vinna fyrirNeytendastofu eða þar til bæra aðila í eftirliti með talningarvélum. Á þetta einkum við um mynttalning- arvélar bankanna og dósatalningar- vélar Endurvinnslunnar. Víkverji hefur lent í því oftar en einu sinni að þessar vélar hafa svindlað á honum. Hefur kannski ekki munað miklum fjárhæðum en það safnast þegar saman kemur. x x x Nýverið fór Víkverji í banka meðslatta af klinki. Betri helming- urinn á heimilinu hafði tvítalið mynt- ina og skrifað hjá sér töluna. Þegar Víkverji kom heim með kvittun úr vélinni kom í ljós að hún sýndi 200 krónum minna en talning frúarinnar sýndi. Þannig hefur þetta verið í nokkur skipti í vetur en frúin hefur samviskusamlega haldið utan um fjáröflunarstarf í ónefndu félagi. x x x Víkverji treystir talningu betrihelmingsins betur en einhverrar maskínu úti í bæ og hefur áhyggjur af því að bankarnir séu að hafa fé af fólki í stórum stíl með þessum hætti. Tæknin getur stundum gert betur en mannshöndin en í þessu efni telur Víkverji að gjaldkerum bankanna sé betur treystandi til að telja pen- ingana. x x x Víkverji fer reglulega í Endur-vinnsluna með dósir og flöskur og passar vel upp á að þær séu heilar og óbeyglaðar, eins og krafa er gerð um. Stundum munar nokkrum ein- tökum á talningu vélarinnar og Vík- verja en hann hefur ekki nennt að gera mál úr því. Á því kann þó að verða breyting því enginn skal svína á Víkverja! víkverji@mbl.is Víkverji Himinninn er himinn Drottins en jörðina gaf hann mannanna börn- um. (Sálm. 115:16)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.