Morgunblaðið - 23.05.2016, Side 15

Morgunblaðið - 23.05.2016, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2016 www.fr.isSylvía G. Walthersdóttir Löggiltur fasteignasali Salvör Davíðsdóttir Nemi til löggildingar fasteignasala María K. Jónsdóttir Nemi til löggildingar fasteignasala FRÍTT VERÐMAT ENGAR SKULDBINDINGAR HRINGDU NÚNA 820 8081 sylvia@fr.is Sjöfn Ólafsdóttir Skrifstofa Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við gerum hvað við getum til að endurheimta kassana tvo,“ sagði Ab- dul Fattah al-Sisi, forseti Egypta- lands, er hann ræddi við fjölmiðla í fyrsta sinn eftir að farþegaþota flug- félagsins EgyptAir hrapaði í Mið- jarðarhaf aðfaranótt fimmtudagsins 26. maí síðastliðinn. Vísar forsetinn í máli sínu til flug- rita vélarinnar sem veitt geta rann- sakendum mikilvægar upplýsingar um síðustu mínútur flugsins. Leitar- menn hafa fundið farangur og ýmsa hluti úr vélinni, s.s. sæti og björg- unarvesti, en að sögn fréttaveitu AFP fundust hlutirnir um 290 km norðan við borgina Alexandríu. Er nú m.a. notast við kafbát við leitina að flugritunum tveimur. Farþegaþotan, sem er af gerðinni Airbus A320, var á leiðinni frá París til Kaíró þegar hún hrapaði með 66 manns innanborðs. Á meðal þeirra voru 56 farþegar, þar af 30 frá Egyptalandi, 15 frá Frakklandi, tveir frá Írak auk níu frá jafnmörg- um löndum. Í áhöfn vélarinnar voru sjö manns auk þriggja öryggisvarða. Greindu hita og reyk um borð Flugmálaráðherra Egyptalands hefur sagt að líklegra væri að þotan hefði hrapað vegna hryðjuverks en vélarbilunar, en al-Sisi segir ekki hægt að fullyrða neitt að svo stöddu. Rannsakendur segja að fáeinum mínútum áður en flugvélin féll stjórnlaust í sjóinn hafi tölvubúnað- ur hennar greint hita og reyk á nokkrum stöðum í vélinni. Að sögn breska ríkisútvarpsins (BBC) var gefin viðvörun klukkan 02:26 að staðartíma um að ein af rúð- um flugstjórnarklefans væri að of- hitna og að reykur væri inni á salerni fyrir aftan klefann. Um mínútu síðar var tilkynnt um reyk í rými fyrir flugrafeindabúnað, en það er stað- sett undir flugstjórnarklefanum. Í kjölfarið var tilkynnt að önnur rúða í flugstjórnarklefanum væri að hitna um of. Því næst byrja, að sögn BBC, tölvukerfi vélarinnar að hrynja eitt af öðru. Þegar hér er komið sögu var klukkan 02:28. John Cox, sérfræðingur í bruna um borð í flugvélum, segir í samtali við BBC tímalínuna, frá því að til- kynnt er um hita og reyk og þar til vélin skellur í hafið, óvenjulega. „Tímalínan er í kringum sjö mín- útur sem er mjög langur tími ef um er að ræða sprengju, einkum öfluga. En ef um er að ræða eld um borð þá er tíminn ekki nægjanlega langur.“ Enn á huldu hvað leiddi til þess að þota EgyptAir fórst  Kafbátur leitar að flugritum vélarinnar  Merki bárust um hita og reyk AFP Sorg Ættingjar og vinir þeirra sem voru um borð í farþegaþotu flugfélagsins EgyptAir sem hrapaði í Miðjarðarhaf fjölmenntu á minningarathöfn sem haldin var í gær. Enn er óljóst hvað olli því að flugvélin fórst. Síðari umferð forsetakosninga í Austurríki fór fram í gær og stóð valið á milli Norbert Hofer, frambjóðanda Frelsisflokksins (FPÖ), og Alex- ander Van der Bellen, fyrrverandi leiðtoga Græn- ingja. Fyrstu útgönguspár, sem birt- ar voru í gærkvöldi, bentu til þess að afar mjótt væri á mununum, en báð- ir frambjóðendur mældust með um 50% fylgi. Tilkynnt verður um sig- urvegara forsetakosninganna í dag. Hofer, sem segist vera miðjumað- ur, hefur verið gagnrýndur af and- stæðingum sínum, einkum vegna stefnu hans í málefnum innflytjenda og hælisleitenda. AUSTURRÍKI Niðurstaða kosning- anna kynnt í dag Kosið Mjótt var á munum í gær. Afganska leyniþjónustan segir Mullah Akhtar Mansour, leiðtoga talibana í Afganistan, hafa fallið í drónaárás Bandaríkjahers á bíla- lest hans í suðvesturhluta Pakist- ans, við landamæri Afganistans. Mansour varð leiðtogi talibana í júlí í fyrra og tók hann við af Mullah Mohammad Omar, sem féll í árás bandamanna árið 2013. „Það var búið að fylgjast náið með Mansour í nokkurn tíma áður en gerð var árás þar sem hann var í bifreið ásamt nokkrum víga- mönnum,“ hefur AFP eftir afg- önskum öryggissveitum. AFGANISTAN Staðfesta dauða leiðtoga talibana Binali Yildirim, samgönguráðherra Tyrklands og nánum samstarfsmanni forseta landsins, hefur verið veitt um- boð til að mynda nýja ríkisstjórn sem forsætisráðherra eftir að Ahmet Davutoglu sagði af sér embætti. Recep Tayyip Erdogan Tyrklands- forseti veitti Yildirim áðurnefnt um- boð á fundi í forsetahöllinni eftir að AKP-flokkurinn hafði kosið hann nýj- an formann flokksins á landsfundi sem haldinn var í gær. Fréttaveita AFP greinir frá því að Yildirim, sem er sextugur að aldri, hafi verið sá eini sem bauð sig fram í formannsembættið á landsfundinum og hlaut hann alls 1.405 atkvæði frá þeim 1.470 fulltrúum sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Davutoglu tilkynnti afsögn sína snemma í maí. Ástæðan er sögð sú að hann njóti ekki lengur stuðnings Er- dogans forseta, en hann hefur lýst yf- ir andstöðu við áformum forsetans um að auka völd forsetaembættisins með stjórnarskrárbreytingum. Talið er að Yildirim muni ekki beita sér gegn þeim. Yildirim verður forsætisráðherra  Erdogan forseti veitti umboð í gær AFP Handaband Erdogan forseti (t.h.) og Yildirim í forsetahöllinni í gær. Rússneskar og sýrlenskar flugsveit- ir gerðu í gær loftárásir á skotmörk tengd vígasveitum nærri Aleppo, stærstu borg Sýrlands. Fréttaveita AFP greinir frá því að um sé að ræða mikilvæga birgðaleið, en þetta eru umfangsmestu loftárásir Rússa frá því í febrúar síðastliðnum. „Rússneskar og sýrlenskar orr- ustuþotur héldu úti minnst 40 árás- arferðum á veginn Castello,“ hefur AFP eftir talsmanni mannréttinda- samtaka þar í landi. Vegur þessi er sagður mikilvæg birgðaleið fyrir uppreisnarmenn norðan við borgina. Í Aleppo er ástandið hins vegar sagt skelfilegt. Hafa um 300 almenn- ir borgarar látið þar lífið undanfar- inn mánuð, en uppreisnarhópar hafa, samkvæmt AFP, haldið úti linnu- lausum sprengju- og skotárásum á þau hverfi sem lúta stjórn hersveita Bashars al-Assad Sýrlandsforseta. Vinna ekki með Rússum Ráðamenn í Moskvu hafa lagt til sameiginlegar loftárásir Rússa og Bandaríkjamanna á skotmörk tengd íslamistum í Sýrlandi. Bandaríkja- menn útiloka hins vegar slíkt sam- starf og segja markmið árása Rússa vera að styrkja stöðu Assads. Harðar loftárásir Rússa við Aleppo

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.