Morgunblaðið - 23.05.2016, Page 32
MÁNUDAGUR 23. MAÍ 144. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. „Hélt ég væri að ruglast“
2. Ástþór kærir Láru Hönnu
3. Þyrlu hlekktist á á …
4. Ólafur Ólafsson var í þyrlunni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á morgun klukkan 16.30 hefst
dagskrá með Lenu Gorelik, rúss-
nesk-þýskum gestarithöfundi í
Reykjavík bókmenntaborg, og Önnu
Láru Steindal, höfundi bókarinnar
Undir fíkjutré, á Kaffislipp Icelandair
Hotel Reykjavík Marina við Mýr-
argötu. Konurnar lesa úr verkum sín-
um og spjalla um reynslu sína
tengda málefnum flóttamanna auk
þess sem þær svara spurningum og
ræða við gesti.
Lena fjallar um dvölina á Íslandi,
æskureynslu sína sem flóttamaður í
Þýskalandi og sýn á málefni flótta-
manna á Íslandi. Anna Lára segir frá
bókinni Undir fíkjutré, sem er um
erfiðleika hælisleitandans Ibrahem
Al Danony Mousa Faraj sem kom til
Íslands sem flóttamaður 2002. Ibra-
hem ólst upp í Líbíu undir stjórn
Gaddafis en flúði það-
an í leit að frelsi. Í
bókinni er saga
hans rakin, ferðin
til Íslands og lífið
sem tók við hér á
landi.
Dagskráin fer
fram á ensku.
Málefni flóttamanna
með augum gestsins
Á þriðjudag Sunnan 8-15 m/s og rigning, einkum V-lands, en
þurrt og bjart veður fyrir norðan og austan. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast
NA-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Dálítil
rigning með köflum, fyrst SV-lands, en léttskýjað á NA- og A-landi.
Hiti 6 til 14 stig.
VEÐUR
Nýliðar Víkings Ólafsvík
máttu þola sitt fyrsta tap í
Pepsi-deildinni á tímabilinu
þegar þeir steinlágu fyrir
Fjölni, 5:1. Valur burstaði
nýliða Þróttar, 4:1, Víkingar
gerðu góða ferð til Eyja og
lögðu heimamenn, 3:0, og
Breiðablik hafði betur í
stórleik gærkvöldsins, en
liðið bar sigurorð af KR-
ingum. Í kvöld eigast
Stjarnan og FH við í Garða-
bæ. »2-8
Fyrsti tapleikur-
inn hjá Ólsurum
Louis van Gaal hefur að öllum lík-
indum stjórnað Manchester United í
síðasta sinn, en fullyrt er að José
Mourinho leysi hann af hólmi. Van
Gaal kveður þá Manchester-liðið með
titli, en liðið varð enskur bikarmeist-
ari í 12. sinn með því að vinna Crystal
Palace í úrslitaleik á Wembley. »4
Bikarinn bjargar ekki
Louis van Gaal
Andri Þór Björnsson úr GR og Þórdís
Geirsdóttir úr GK fögnuðu sigri á
fyrsta stigamóti í Eimskipsmótaröð-
inni, en þau báru sigur úr býtum á
Egils Gull-mótinu sem fram fór á
Strandarvelli á Hellu. Sigur Andra
Þórs var mjög öruggur, en hann sigr-
aði með sex högga mun. Þórdís hafði
hins vegar betur í bráðabana á móti
Karen Guðnadóttur. »8
Andri og Þórdís unnu
fyrsta stigamótið
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sviðslistahópnum 16 elskendum
hefur verið boðið að taka þátt sem
fulltrúar Íslands á Norrænum sviðs-
listadögum sem haldnir verða í Fær-
eyjum 24.-28. maí nk. Þema sviðs-
listadaganna í ár er gagnvirkni -
áhorfendaþátttaka og voru 16 elsk-
endur því beðnir um að endurvekja
sýninguna IKEA-ferðir, sem var síðast
sýnd fyrir átta árum og vakti athygli
fyrir nýstárlega nálgun á leiklistar-
formið, framúrstefnuleg efnistök og
fyrir að spá hruni íslenska hagkerfis-
ins.
16 elskendur sýna
á hátíð í FæreyjumSkúli Halldórsson
sh@mbl.is
Litríkt var um að litast í kjallara
Safnahússins við Hverfisgötu þeg-
ar blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins litu þar við í gær-
dag. Voru þar saman komin börn
og foreldrar þeirra til að hanna og
búa til sinn eigin flugdreka í svo-
kallaðri flugdrekasmiðju.
Ef vel var að gáð mátti sjá
marga fallega dreka fæðast í hug-
um barnanna áður en þeir öðluð-
ust líf og fengu að hefja sig á loft í
taumi sínum úti í sólskininu.
Farsælt samstarf fyrir húsið,
börnin og listkennslunema
Flugdrekasmiðjan var sú fjórða
og síðasta í röð slíkra smiðja, en
þær Arite Fricke og Kristín Þóra
Guðbjartsdóttir hafa undanfarna
mánuði staðið fyrir sams konar
smiðjum fyrir börn, ásamt Jó-
hönnu Bergmann, safnkennara
Þjóðminjasafnsins.
Eru smiðjurnar hluti sérstaks
samstarfsverkefnis Þjóðminja-
safnsins og listkennsludeildar
Listaháskóla Íslands, en Arite og
Kristín Þóra eru nemendur við
deildina.
Jóhanna segir samstarfið, sem
hófst í byrjun árs, hafa heppnast
virkilega vel.
„Listkennslunemar fá tækifæri
til að spreyta sig, börnin fá góða
afþreyingu og kennslu og við fáum
góð not fyrir húsnæðið í stað þess
að það standi autt,“ segir Jó-
hanna.
Flugdrekar ekki
bara leikföng
Þá segir Arite að flugdrekar séu
ekki aðeins skemmtileg leikföng.
Þannig hafi þeir í gegnum tíðina
einnig verið notaðir til fiskveiða,
til að knýja áfram báta eða til
þess að miðla skilaboðum.
Drekar barnanna tóku á loft
Hugmyndirnar
öðluðust líf og
flugu um loftin blá
Morgunblaðið/Ófeigur
Blíðviðri Að smiðjunni lokinni lá leið barnanna á Arnarhól, þar sem þau leyfðu hinum litríku drekum að fljúga. Sól-
in lék við borgarbúa þennan sunnudag og líklega er vart hægt að óska eftir betra veðri til drekaflugs hér á landi.
Leikin Kristín Þóra aðstoðaði börnin við drekasmíðina. Arnarhóll Ætli Ingólfur Arnarson hafi flogið dreka?