Einn Helsingi - 01.03.1946, Side 44
42
EINN HELSINGI
ég muni bera allvel skyn á allt, sem
þessum málum viðkemur, gegnum
reynslu og kynni, ef almannarómur-
inn hefir nokkurn tíma stigið inn
fyrir ykkar þröskuld með nafn mitt a
vörum. Og iivaða ávinning gæti ég
borið úr býtum i þessari baráttu og
beiningaferðalagi annan en þann, sem
þið gætuð unnt hverjum einum, hve
aumur eða illur sem væri, að finna
hug sínum svölun í því að hafa borið
gæfu til að skapa eða styrkja eittiivað
það, sem til góðs mætti verða. Sú löng-
un býr innst i hverju brjósti, þrátt
fyrir allar mannanna gerðir.
Og ef þið aðeins verðið við þessari
ósk minni að hugsa um þetta svolitla
stund, þótt það liggi utan við hring-
ekju daglegs lífs ykkar, þá vænti <g
alls góðs fyrir gott málefni. Og þá
verður upplag ritsins, þótt 5—6000 séu,
fljótt að seljast eða mikill hluti þess —
það mikill, að þið að minnsta kosti þá
fengjuð tækifæri til að sjá draum
verða að tilraun, sem þið þá gætuð
tekið ákvörðun um, hvort væri styrkt-
arverð eða ekki, samkvæmt eigin at-
hugun.
En það, sem ég óttast eitt saman, cr
það, hve margir ykkar látið aðeins
augun hvarfla yfir iínurnar, og ritið
svo hverfa i pappirskörfuna eða rusla-
skrínuna, án þess að láta hugann
hvarfla frekar þar og án þess að
hafa raunverulega látið hugann snerta
það, sem ég þar hefi skrifað. — Þið
verðið mörg, sem það gerið. En þið
gerið það ekki öll, á því byggist traust
mitt, og því hefi ég vogað r'aunar
miklu meiru en ég má við — og f
trúnni á ykkur, sem færri verðið, hefi
ég skrifað þetta bréf til þjóðarsystkina
minna.
3. september 1946.
Steindór Sigurðsson.
Gjörið svo vel og útfyllið eftirfarandi Pöntunarseðil, ef þér viljið
styrkja það málefni, sem fyrir útgefanda ritsins vakir
...........................................MMMMMMMMMIIMMIIlllllII111111II111MllIIMMIIIM ■ M
| STEINDÓR SIGURÐSSON,
| Kristneshæli I
Sendið mér „Eirm helsingja" 1. heiti
I .........eintök (til sölu (ée&n póstkröíu) \
Strikið yiir það, sem ekki á að vera
I Naín ............................................................................................ |
i C
| }
i Heimilisiané .................................................................................... i
j s
Í*4j|||lll»IIIIIIIIIIHIIIMHIIIIII»IIIIIIIIIIIIMIIIIIHIIIIII*limill*IIMIMIMIIMIIIIII»MIIIMIMMIIMIMMIMIMIlMH»l»»IIIIUI»||i;