Fréttablaðið - 21.01.2017, Side 37

Fréttablaðið - 21.01.2017, Side 37
| ATVINNA | LAUGARDAGUR 21. janúar 2017 7 Löggiltur fasteignasali Rótgróin fasteignasala sem hefur mikil umsvif í fasteignasölu auglýsir eftir lögg. fasteignasala til starfa. Æskilegt er að viðkomandi hafi víðtæka reynslu af sölu- og leigumiðlun fasteigna, bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Góð föst laun í boði. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf umsækjenda berist á netfangið box@frett.is fyrir 5. febrúar nk. merkt Löggiltur 2101 Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Ert þú Smjattpatti? Smjattpatti ehf. sér um rekstur mötuneyta Tækniskólans, sem eru þrjú talsins. Við leitum að aðstoðarmanni/konu í 100% starf frá 1.febrúar 2017. Starfið er fjölbreytt og snýst meðal annars um undirbúning, útkeyrslu og afgreiðslu á hádegismat, samlokugerð, afgreiðslu á kassa og frágang. Vinnutími er 8-16 alla virka daga. • Íslenskukunnátta skilyrði. • Ökuskírteini skilyrði. • Reynsla af mötuneytisstörfum æskileg. Ferilskrá sendist til kokkur(hjá)gmail.com. Upplýsingar í síma 822-8577 (Heimir) eða 895-1605 (Ingunn) Árvekni Fagsviðsstjóri plöntueftirlits Matvælastofnun óskar eftir að ráða háskólamenntaðann einstakling með fagþekkingu á plöntum og plöntusjúkdómum í starf fagsviðsstjóra plöntueftirlits á markaðsstofu MAST í Reykjavík. Um fullt starf er að ræða. Hæfnikröfur Umsækjendur skulu hafa háskólamenntun í plöntusjúkdómum, líffræði, búvísindum eða aðra menntun sem talin er henta í starfið. Góð fagþekking á plöntum og plöntusjúkdómum er nauðsynleg. Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur. Gerð er krafa um færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku ásamt góðri almennri tölvukunnáttu. Góð framkoma og lipurð í samskiptum, nákvæm og fagleg vinnubrögð ásamt getu til að starfa sjálfstætt eru áskilin. Helstu verkefni og ábyrgð Hlutverk fagsviðsstjóra er að hafa yfirumsjón með málum er lúta að skráningu og eftirliti með inn- og útflutningi plantna og plöntuafurða, eftirlit með kartöfluútsæði og sáðvöru ásamt eftirliti með viðarumbúðum vegna útflutnings. Meðal verkefna er skjala- og vöruskoðun vegna innflutnings plantna og plöntuafurða, útgáfa vottorða vegna útflutnings á plöntum, sýnataka og eftirlit vegna innflutnings á sáðvöru á markaði, einnig eftirlit með fyrirtækjum vegna framleiðslu á plöntum og viðarumbúðum, skoðanir og eftirlit með innlendri ræktun á kartöfluútsæði auk almennrar stjórnsýslu á þessu sviði. Nánari upplýsingar um starfið er að finna á vef Matvælastofnunar og í síma 530-4800. Umsókn þarf að fylgja prófskírteini, starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og skýr rökstuðningur fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur fyrir starfið. Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar n.k. www.mast . is Framsækni TraustGegnsæi Matvælastofnun sinnir stjórnsýslu, eftirliti, fræðslu og þjónustu við sjávarútveg, landbúnað, fyrirtæki og neytendur í þeim tilgangi að stuðla að heilbrigði og velferð dýra, heilbrigði plantna og öryggi, heilnæmi og gæðum matvæla. Hjá stofnuninni starfa 90 starfsmenn. Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 manns með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Árleg framleiðsla er um 310.000 tonn af hágæða áli. HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is SPENNANDI SUMARSTÖRF HÆFNISKRÖFUR:• 18 ára og eldri • Öryggisvitund, heiðarleiki og stundvísi • Góð samskiptahæfni • Dugnaður og sjálfstæði • Bílpróf er skilyrði • Verkfræðinemar, iðnnemar og iðnaðarmenn eru sérstaklega hvattir til að sækja um Við leitum að metnaðarfullu og skemmtilegu fólki í fjölbreytt og eftirsótt sumarstörf í álverinu á Grundartanga. Í boði er dagvinna og vaktavinna við framleiðslu, raf- og vélvirkjun og fleira. Öll störfin henta jafnt körlum og konum. Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Árangurstengd laun sumarfólks við framleiðslu eru um 525.000 krónur á mánuði fyrir fullt starf. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu. Umsóknum skal skilað inn rafrænt á www.nordural.is fyrir 12. febrúar 2017. Nánari upplýsingar veitir Helga Björg Hafþórsdóttir í síma 430 1000. Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði heitið. www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi 2 1 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 9 6 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 0 3 -7 9 0 C 1 C 0 3 -7 7 D 0 1 C 0 3 -7 6 9 4 1 C 0 3 -7 5 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.