Fréttablaðið - 21.01.2017, Síða 45
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra
fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi.
Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
LANDSPÍTALI ... VILTU KOMA Í LIÐIÐ!
Viltu öðlast mikla reynslu og þekkingu á hjartasjúkdómum? Við leitum
eftir öflugum hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á og vilja vinna við
bráðahjúkrun, aðallega hjartasjúklinga. Um er að ræða afar áhuga
verðan og spennandi starfsvettvang með þverfaglegri nálgun á
grein ingu, meðferð og umönnun sjúklinga með bráða hjartasjúkdóma.
Möguleikar eru á þróun í starfi, ekki síst í formi spennandi fræðslu,
námskeiða og ráðstefna.
Hjartagátt er sólarhringsdeild sem er opin alla daga vikunnar. Þar
starfa um 50 manns sem veita bráðaþjónustu við hjartasjúklinga auk
fjölbreyttrar dag og göngudeildarþjónustu. Að auki er veitt þjónusta við
aðra sjúklingahópa eftir þörfum.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Hjartagátt
Lausar eru til umsóknar námsstöður deildarlækna í skurðlækningum
við Landspítala. Starfshlutfall er 100% og veitast störfin til tveggja ára
eða samkvæmt samkomulagi. Starfsnámið er byggt upp sem grunnnám
í skurðlækningum í samræmi við marklýsingu og er góður undir bún ing
ur fyrir framhaldsnáms erlendis í sérgreinum skurðlækninga.
Vinnan fer fram á eftirtöldum deildum skurðlækningasviðs: Almennri
skurðdeild, þvagfæraskurðdeild, hjartaskurðdeild, heila og tauga
skurð deild, lýtaskurðdeild og æðaskurðdeild.
NÁMSSTÖÐUR Í
SKURÐLÆKNINGUM
Skurðlækningar
Lausar eru til umsóknar tvær stöður sérfræðilækna í svæfinga og
gjörgæslulækningum á Landspítala. Starfsstöð verður fyrst og fremst
í Fossvogi. Þar starfa um 15 sérfræðilæknar í nánu samstarfi við aðrar
fagstéttir og sérgreinar spítalans.
Í Fossvogi eru 8 skurðstofur þar sem fram fara heila og tauga, háls,
nef og eyrna, æða, lýta og bæklunarskurðaðgerðir og eru árlega gerðar
þar um 5.400 aðgerðir. Á gjörgæsludeildinni eru 7 legupláss og þar er
veitt almenn gjörgæslumeðferð og er sérhæfing í samræmi við skiptingu
sérgreina á milli húsa.
SÉRFRÆÐILÆKNIR
Svæfinga- og gjörgæslulækningar
Spennandi og lærdómsríkt starf á bráða og göngudeild Landspítala í
Fossvogi, en þar fer fram móttaka og hjúkrun sjúklinga bæði vegna
sjúkdóma og slysa.
Á deildinni starfa um 45 manns í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi
er ríkjandi og tækifæri eru til að vaxa í starfi. Deildin er opin alla daga
ársins frá kl. 8:0023:30. Unnið er á tvískiptum vöktum og er starfs
hlutfall og vinnufyrirkomulag samkomulagsatriði.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Bráða- og göngudeild
Lausar eru til umsóknar tvær stöður sérfræðilækna í kvenlækningateymi
kvenna og barnasviðs Landspítala. Um er að ræða 100% störf.
Í kvenlækningateyminu er lögð áhersla á þverfaglega samvinnu tengt
sjúkdómum í kvenlíffærum, en auk þess er náin samvinna með fæðingar
teymi Landspítala, þar sem samstarf er um læknisþjónustu utan dag vinnu
tíma með sérfræðilæknum fæðingarteymis.
SÉRFRÆÐILÆKNIR
Kvenlækningateymi
Laust er til umsóknar framtíðarstarf sérfræðilæknis í bæklunar skurð
lækning um. Starfshlutfall er 100%.
Teymi bæklunarskurðlækna telur 14 sérfræðilækna auk deildarlækna sem
vinna í nánu þverfaglegu samstarfi við aðra starfsmenn spítalans. Áhersla
er lögð á framþróun, umbætur og gott starfsumhverfi.
SÉRFRÆÐILÆKNIR
Bæklunarskurðlækningar
Hjúkrunarfræðingar/ hjúkrunarnemar óskast til starfa á kven
lækninga deild 21A Landspítala. Um er að ræða tvö störf í vaktavinnu
vegna afleysinga og til lengri tíma.
Á kvenlækningadeild starfar samhent teymi starfsmanna sem veitir
fjölþætta heilbrigðisþjónustu allan sólarhringinn. Deildin, sem er í senn
göngu, dag og legudeild, sinnir bráðatilfellum kvensjúkdóma sem og
konum með góðkynja og illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum.
Í boði er spennandi, krefjandi og líflegt starfsumhverfi, góður starfsandi
og fjölbreytt tækifæri til faglegrar þróunar.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR/
HJÚKRUNARNEMI
Kvenlækningadeild
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á HEIMASÍÐU LANDSPÍTALA;
WWW.LANDSPITALI.IS/MANNAUDUR
OG STARFATORGI; WWW.STARFATORG.IS
2
1
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
0
3
-8
2
E
C
1
C
0
3
-8
1
B
0
1
C
0
3
-8
0
7
4
1
C
0
3
-7
F
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K