Fréttablaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 56
BYGG býður þér til starfa
Rafvirkjar
Framtíðarstarf, öll vinna við nýlagnir
Atvinnuhúsnæði og Íbúðabyggingar. Mikil
mælingavinna framundan. Upplýsingar veitir
Guðmundur Sölvi S: 693-7329
gudmundur@bygg.is
Verkamenn
Vantar vana verkamenn í vinnu.
Framtíðarstarf í boði, upplýsingar veitir
Hörður Már S:693-7320, hordur@bygg.is
www.bygg.is
BYGG byggir á 32 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG)
hefur á undanförnum árum byggt yfir 3.000
glæsilegar íbúðir á almennum markaði. Fyrirtækið
hefur einnig byggt íbúðir fyrir Félag eldri borgara
og húsnæðisnefndir í Reykjavík og Kópavogi.
Hjá fyrirtækinu starfa nú um 200 manns og er
meðalstarfsaldur hár. Öll verkefni fyrirtækisins eru
á höfuðborgarsvæðinu. Hjá fyrirtækinu er öflugt
starfsmannafélag. Traust atvinna í boði.
Umsóknarfrestur er til 3. febrúar nk.
Skila skal umsóknum á skrifstofu
Húnavatnshrepps, Húnavöllum, 541 Blönduós,
eða með að senda umsókn í tölvupósti á
netfangið einar@hunavatnshreppur.is.
Stefnt skal að því að viðkomandi hefji störf
frá og með 1. apríl 2017 eða eftir nánara
samkomulagi.
Nánari upplýsingar:
Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri
í síma 452 4661 og 842 5800.
Húnavatnshreppur
Húnavatnshreppur er á Norðurlandi vestra
og er sveitarfélagið um 3822 km2 að stærð.
Á Húnavöllum er starfræktur leikskóli,
grunnskóli og sundlaug. Húnavellir eru 18 km
frá Blönduósi.
Húnavatnshreppur
hunavatnshreppur.is
Umsjónarmaður eigna
Húnavatnshrepps
Húnavatnshreppur óskar efir að ráða aðila til að hafa umsjón
með eignum sveitarfélagsins.
Starfssvið:
• Umsjónarmaður eigna Húnavatnshrepps, heyrir undir
sveitarstjóra Húnavatnshrepps og hefur starfsstöð á
Húnavöllum.
Í starfinu felst meðal annars:
• Eftirlit, stjórnun og vinna við viðhald allra eigna
Húnavatnshrepps og B deilda félaga þess í samræmi
við fjárveitingar hverju sinni.
• Yfirferð á eignum sveitarfélagsins og B deilda félaga þess við leigjendaskipti.
• Yfirumsjón á nýframkvæmdum sveitarfélagsins og úttektir á þeim.
• Dagleg stjórnun verklegra framkvæmda á vegum
sveitarfélagsins eða B deilda félaga þess.
• Áætlunargerð fyrir hverja eign sveitarfélagsins og B deildar
félaga þess í samvinnu við sveitarstjóra.
• Annað það sem sveitarstjóri felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í löggiltri iðngrein, (Meistarapróf er kostur) eða próf í tæknigreinum, sem nýtist í starfi.
• Menntun og/eða reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg.
• Reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og
fjárhagsáætlanagerð er æskileg.
• Reynsla af verklegum framkvæmdum er nauðsynleg.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg.
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni er
mikilvæg.
• Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og hæfni í
mannlegum samskiptum er mikilvæg.
Verk- eða tæknifræðing
Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða verk- eða tæknifræðing
á umhverfissvið stofnunarinnar. Starfið felst í umsjón og viðhaldi
bergmálsmæla til kortlagningar hafsbotnsins svo og vinnu við
frumúrvinnslu gagna á sjó og í landi. Nauðsynlegt er að viðkomandi
taki þátt teymisvinnu í rannsóknaleiðöngrum þar sem söfnun gagna
fer fram.
Um er að ræða mjög sérhæfð mælitæki, svo sem fjölgeislamæli
(MultiBeam Echo Sounder, MBES), sem notast til kortlagningar
hafsbotns, og jarðlagamæli (Sub Bottom Profiler, SBP) sem gefur
upplýsingar um jarðlög neðan hafsbotns. Auk þess eru notuð
ýmis jaðartæki við mælingarnar. Umsækjandi þarf að tileinka sér
notkun sérhæfðs hugbúnaðar við úrvinnslu gagna. Um er að ræða
spennandi starf með miklum vaxtarmöguleikum. Umsækjandi þarf
að geta unnið sjálfstætt og hafa ríkan vilja til þess að kynna sér þá
mælitækni sem um ræðir.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að hafa menntun í verk- eða tæknifræði, hæfni
til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu og vera góður í mannlegum
samskiptum. Í umsókn skulu vera upplýsingar um menntun (afrit af
prófskírteinum) og fyrri störf, ásamt nöfnum tveggja meðmælenda
sem leita má til varðandi frekari upplýsingar.
Um er að ræða fullt starf og heyrir staðan undir sviðsstjóra umhverfis.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og
viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar n.k. og æskilegt er að
umsækjandi geti hafið störf sem fyrst, ekki seinna en 1. mars 2017.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun, starfsreynslu
og nöfnum tveggja meðmælenda skulu sendar á póstfangið
umsokn@hafogvatn.is eða á skrifstofu Hafrannsóknastofnunar,
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Konur, jafnt sem karlar eru hvattar til að
sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri
(kristin.helgadottir@hafogvatn.is) og Héðinn Valdimarsson,
sviðsstjóri umhverfissviðs (hedinn.valdimarsson@hafogvatn.is).
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er
stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna og gegnir
auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun
auðlinda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi
við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur auk
aðalstöðva í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð,
tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 170 starfsmenn í þjónustu sinni.
Ísteka óskar eftir fólki í
eftirfarandi störf:
Rannsóknarstofa
Starfssvið:
Mælingar, skýrsluskrif, þrif og önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
Reynsla af rannsóknarstofuvinnu æskileg. Góð skrif- / málfærni
í íslensku og ensku, samskiptahæfileikar, nákvæmni, sjálfstæð
vinnubrögð, sveigjanleiki og reglusemi.
Menntunarkröfur:
Umsækjandi þarf að hafa menntun á sviði raunvísinda.
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast sendar á bryndis@isteka.com
Framleiðsludeild
Starfssvið:
Lyfjaframleiðsla, þrif, skýrsluhald.
Hæfniskröfur:
Góð skrif- / málfærni í íslensku, samskiptahæfileikar, sjálfstæð
vinnubrögð, sveigjanleiki og reglusemi.
Reynsla af störfum í matvæla- eða lyfjaframleiðslu er kostur
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast sendar á sigsig@isteka.com
Umsóknarfrestur er til 1.febrúar 2017
Hjá Ísteka ehf. er unnið við þróun og framleiðslu á próteinlyfjum (biologics)
og mælisettum (diagnostic kits) fyrir erlenda markaði. Starfsemin er GMP
vottuð og framleiðsluferlar og starfshættir samþykktir af lyfjastofnunum
út um allan heim, m.a. af FDA í USA.
Ísteka er á lista Creditinfo um framúrskarandi fyrirtæki.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
2
1
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
0
3
-6
A
3
C
1
C
0
3
-6
9
0
0
1
C
0
3
-6
7
C
4
1
C
0
3
-6
6
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K