Fréttablaðið - 21.01.2017, Side 72

Fréttablaðið - 21.01.2017, Side 72
Árið 2000 vann George W. Bush, f r a m b j ó ð a n d i R e p ú b l i k a n a , sigur á varaforset­anum og Demó­kratanum Al Gore í bandarísku forsetakosningunum. Kosningarnar voru hnífjafnar og  úrslit réðust  ekki fyrr en eftir langa endurtalningu og kærumál fyrir dómstólum. Demókratar voru ævareiðir. Handvömm í fram­ kvæmd kosninga, óskiljanlegir kjör­ seðlar, gallaðar talningarvélar og hlutdrægni ríkisstjórans á Flórída, bróður mótframbjóðandans, var allt talið hafa haft áhrif á úrslitin. Reið­ astir voru stuðningsmenn Gores þó í garð eins manns: Ralphs Nader. Glæpur Naders var að voga sér að bjóða sig fram í kosningunum fyrir hönd Græningjaflokksins og það sem meira var – að hreppa nærri 2,9 milljónir atkvæða eða um 2,75%. Nader var fordæmdur fyrir að færa Bush yngri sigurinn á silfurfati. Munurinn á Bush og Gore í Flórída var rétt rúmlega 500 atkvæði svo vissulega má færa rök fyrir því að án Naders, sem fremur sótti atkvæði sín til vinstri en hægri, hefðu kosn­ ingarnar farið á annan veg. Sjálfur hefur Nader alltaf borið af sér sakir og bent á að Demókratar hafi fyrst og fremst getað sjálfum sér um kennt. Gore hafi mistekist að vinna heimaríki sitt Tennessee og þótt vissulega hafi nokkur hluti flokksbundinna Demókrata kosið Nader hafi þeir verið miklu fleiri sem hlupu í fang erkióvinanna í Repúblikanaflokknum. Skoðana­ kannanir leiddu einnig í ljós að meirihluti kjósenda Naders sagðist hafa setið heima fremur en að ljá frambjóðendum stóru flokkanna atkvæði sitt, einkum ungt fólk. Illindin í tengslum við úrslitin 2000 beina gjarnan athyglinni frá því hvílíkt afrek það var í raun að hljóta hartnær þrjár milljónir atkvæða hjá fulltrúa smáflokks sem hafði aðeins úr brotabroti kosninga­ sjóða stóru framboðanna að spila. Skýringarinnar var öðru fremur að leita í miklum vinsældum fram­ bjóðandans og persónutöfrum. Mælskusnilldin gerði það að verk­ um að kjósendur voru til í að líta fram hjá ýmsum sérviskulegum þáttum í fari hans, þar á meðal frek­ ar luralegum klæðaburðinum – en Nader gekk til að mynda alltaf í eins skóm eftir að hafa keypt tólf pör á útsölumarkaði fjörutíu árum fyrr. Annað í háttum hans var í sama stíl. Hann lifði spart, bjó í lítilli íbúð og fór flestra sinna ferða með almenn­ ingssamgöngum sem óneitanlega stakk í stúf í bandarískum stjórn­ málum þar sem auðkýfingar takast á. Tortryggni í garð kerfisins Ferill Naders er langur og glæstur. Dauðinn á hjólum Foreldrar hans voru innflytjendur frá Líbanon  og sendu  soninn til mennta við bestu háskóla. Hann nam við Princeton og Harvard og útskrifaðist að lokum þrátt fyrir að hafa raunar drepleiðst námið. Eftir heimshorna­ flakk og blaðamennsku í fáein ár fékk Nader brenn­ andi áhuga á neytenda­ málum. Ungt menntafólk í Bandaríkjunum var í vaxandi mæli farið að setja spurningamerki við stór­ fyrirtæki landsins. Að þess mati stjórnuðust fyrirtækin ekki af samfélagslegri ábyrgð heldur hreinni gróðafíkn. Nader sökkti sér í rann­ sóknir á bílaiðnaðinum, sem var einhver allra mikil­ vægasta framleiðslugrein Bandaríkjanna á árunum eftir seinni heimsstyrjöld­ ina. Gríðarlegur vöxtur í bílaeign var að hluta afleið­ ing aukins kaupmáttar en áherslan á einkabílinn átti sér einnig flóknari ástæður. Heimsstyrjöldinni var ekki fyrr lokið en Bandaríkjastjórn var farin að búa sig undir mögu­ lega stórstyrjöld við Sovétríkin. Yfirmenn bandaríska herliðsins í Evrópu dáðust mjög að hraðbrauta­ kerfi því sem nasistar höfðu komið upp í Þýskalandi. Hraðbrautirnar höfðu haldist akfærar allt stríðið á meðan auðvelt reyndist að setja járnbrautarsamgöngur úr skorðum með loftárásum. Uppbygging þjóð­ vegakerfis á kostnað járnbrauta og almenn bílaeign varð þannig hluti af þjóðaröryggisstefnu ekki síður en spurning um lífsstíl. Hinu nýja tæknikerfi fylgdu þó fórnir. Eftir því sem bílunum fjölg­ aði á götunum og hraðinn jókst urðu alvarleg bílslys algengari. Þúsundir Bandaríkjamanna fórust í umferðinni á ári hverju og sömu sögu var að segja í öðrum löndum. Þetta mikla mannfall vakti þó furðu lítil viðbrögð í fyrstu. Flestir virtust líta svo á að há dánartíðni væri óumflýjanlegur fylgifisk­ ur þeirra þæginda sem bíllinn hefði í för með sér. Meðal bifreiðafram­ leiðenda var það viðhorf ríkjandi að slysatíðnina mætti einkum skýra með lélegum vegum og slökum ökumönnum. Lausnin væri því að herja á hið opinbera að bæta vegalagningu og efla öku­ kennslu. Á meðan enginn aðili taldi það sérstaklega í verkahring sínum að sinna umferðaröryggis­ málum og fækka slysum var ekki von á miklum framförum. Að lokum fór þó svo að bandaríski herinn tók málið upp á sína arma. Tölfræðingar hersins höfðu veitt því athygli í Kóreustríð­ inu hversu dýrkeypt bílslysin væru hernum. Áætlað var að fleiri her­ menn létust í umferðaróhöppum en á vígvellinum. Þegar yfirmönnum Bandaríkja­ hers var gert ljóst hversu mikið fé tapaðist vegna bílslysa var auðvelt að sannfæra þá um nauðsyn þess að fjármagna rannsóknir. Á næstu árum var því ráðist í ýmsar rann­ sóknir og þróunarstarf með styrkj­ um frá hernum, meðal annars á því hvort gera mætti bíla öruggari með einföldum tæknilegum lausnum. Þótt kaldhæðnislegt kunni að virð­ ast urðu rannsóknir á vegum hersins því grunnurinn að frægð friðarsinn­ ans og andófsmannsins Naders. Njósnir og undirferli Lögfræðingurinn ungi pældi í gegnum ókjörin öll af rannsóknum á umferðaröryggi og málsskjölum úr tugum eða hundruðum mála­ ferla gegn bifreiðaframleiðendum vegna slysa. Hann komst fljótlega að þeirri niðurstöðu að stóru banda­ rísku bílaverksmiðjurnar hefðu vís­ vitandi sniðgengið öryggismál til að spara fé og bæru þar með ábyrgð á gríðarlegum fjölda dauðsfalla. Nader skrifaði bókarhandrit upp úr athugun sinni og hóf svo gönguna á milli útgefenda. Undirtektir voru í fyrstu dræmar. Efnið var talið tækni­ legt og einn útgefandinn kvaddi höfundinn með þeim orðum að verkið myndi varla höfða til ann­ arra en tryggingasölumanna. Að lokum beit þó eitt forlagið á agnið og bókin Unsafe at Any Speed kom út árið 1965. Ritið varð óvænt metsölubók og skaut höfundinum upp á stjörnu­ himininn. Reiðibylgja reis meðal almennings, sem var stórkostlega misboðið framferði bílaframleið­ enda. Versta útreið fékk þó bíllinn Chevrolet Corvair. Hann var raunar aðeins ein margra bifreiðategunda sem gagnrýndar voru í bókinni, en varð þó alræmdastur – ef til vill vegna þess að um hann var fjallað í fyrsta kafla. Dæmin sem Nader tók um hörmuleg slys í Corvair­bílum voru að sönnu sláandi, þótt þau væru fæst glæný og framleiðandinn hefði raunar bætt úr ýmsum verstu göll­ unum. Það breytti þó engu um það að orðspor vörumerkisins var í rúst og árið eftir hætti verksmiðjan fram­ leiðslu á tegundinni. Til að bíta höfuðið af skömminni greip Chevrolet til þess ráðs að ráða einkaspæjara til að fylgjast með Ralph Nader í þeirri von að grafa upp einhvern óhroða sem dregið gæti úr trúverðugleika hans. Gekk fyrirtækið svo langt að fá vændis­ konur til að reyna að draga hann á tálar til að ná vafasömum ljós­ myndum og kúga höfundinn þannig til hlýðni. Þau svikráð snerust ræki­ lega í höndum auðhringsins þegar stjórnendur hans voru neyddir til að viðurkenna ráðabruggið eiðsvarnir frammi fyrir þingnefnd. Í kjölfarið höfðaði Nader einkamál, fékk háar skaðabótagreiðslur frá verksmiðj­ unum og notaði þær til að stofna samtök og rannsóknarsetur á sviði neytendaverndar. Upplýsingarnar í bókinni neyddu stjórnmálamenn til að grípa til aðgerða. Útkoman varð stórhert löggjöf og reglugerðir sem skylduðu framleiðendur til að breyta hönnun og bæta við bíla sína ýmiss konar búnaði sem áður var valkvæður. Dæmi um það voru öryggisbelti, en árið 1968 urðu þau skyldubún­ aður í bandarískum bílum. Þá voru liðin tíu ár frá því að sænski bif­ reiðaframleiðandinn Volvo hafði byrjað að setja belti í alla sína bíla. Raunar lá sökin ekki alfarið hjá bifreiðaverksmiðjunum heldur líka hjá almenningi sem var afar tregur til að nota bílbelti. Þannig höfðu Ford­verksmiðjurnar freistað þess á sjötta áratugnum að leggja áherslu á öryggismál í auglýsingum á sama tíma og Chevrolet hélt sínu striki og sýndi þrýstnar fyrirsætur liggja á bílhúddum í sínum auglýsingum. Afleiðingin varð sú að neytendur drógu þá ályktun að bílarnir frá Ford hlytu að vera háskalegri úr því að alltaf var verið að auglýsa öryggis­ búnað, en Chevrolet seldi sem aldr­ ei fyrr. Átta ár eru liðin frá því að Ralph Nader reyndi síðast að verða forseti, en fyrir fáeinum misserum komst hann aftur í fréttirnar eftir að hafa opnað fyrsta safnið í Bandaríkj­ unum sem helgað er dómsmálum á sviði neytendaverndar. Og meðal helstu sýningargripa er vitaskuld heillegt eintak af Chevrolet Corvair. Gekk fyrir- tækið svo lanGt að fá vændis- konur til að reyna að draGa hann á tálar. 2 1 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r28 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð saga til næsta bæjar stefán Pálsson skrifar um merkan báráttu- ham. 2 1 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 9 6 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 0 3 -5 B 6 C 1 C 0 3 -5 A 3 0 1 C 0 3 -5 8 F 4 1 C 0 3 -5 7 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.