Fréttablaðið - 21.01.2017, Qupperneq 84
18:55ALLA DAGASPORTPAKKINN
SPORTPAKKINN
Í OPINNI DAGSKRÁ
TónlisT
sinfóníutónleikar
★★★★★
Sibelius, Tsjajkovskí og Kaija Saariaho
í flutningi Sinfóníuhljómsveitar
Íslands.
Stjórnandi: Anna-Maria Helsing.
Einleikari: Kari Kriikku.
Eldborg í Hörpu
Fimmtudaginn 19. janúar
Einleikskonsert á dagskrá Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands felur í sér að
að einleikarinn og stjórnandinn
ganga saman fram fyrir áheyrendur.
Þeir hneigja sig og byrja svo tón-
listarflutninginn. Á tónleikunum
á fimmtudagskvöldið var þessu
öðruvísi farið. Maður spurði sig
hvort eitthvað væri að. Nánast öll
ljós voru slökkt eins og það væri raf-
magnslaust. Aðeins stjórnandinn,
Anna-Maria Helsing, kom fram á
sviðið. Einleikarinn, Kari Kriikku
klarinettuleikari sást hvergi. Var
hann týndur?
Hljómsveitin byrjaði að spila.
Þetta voru dularfullir hljómar,
ómstríðir og afstrakt. Allt í einu
kvað við skerandi öskur í fjarska.
Röddin var rám og ómennsk, eins og
úr bíómynd sem fjallar um andsetn-
ingu. Þarna var klarinettuleikarinn
kominn. Hann sást þó ekki fyrst um
sinn, en loks birtist hann, baðaður
ljósi. Hvílík innkoma! Einleikarinn
stóð ekki bara kyrr eins og á venju-
legum tónleikum, heldur valsaði
um salinn, gekk spilandi meðfram
áheyrendum og fór svo upp á svið.
Hann snerist gjarnan í hringi og lyfti
stundum höndunum eins og hann
ætlaði að kasta klarinettunni hátt
í loft upp. Þrátt fyrir tilburðina var
leikur hans þó í alla staði fókuser-
aður, glæsilegur og tæknilega pott-
þéttur.
Konsertinn var eftir Kaiju Saari-
aho, finnskt samtímatónskáld. Verk
hennar eru dulúðug og myrk, og eru
oft afar áhrifamikil. Tónsmíðin hér
var frábær. Hún er innblásin af sex
veggteppum sem voru ofin í upphafi
sextándu aldar og hanga í Miðalda-
safninu í París. Þau eru einhver stór-
kostlegustu listaverk miðalda og
tákna skilningarvitin, þessi fimm
sem við þekkjum og svo það sjötta.
Rétt eins og veggteppin voru
kaflar konsertsins sex. Tónlistin var
misáköf, en þrungin ólíkum blæ-
brigðum eftir því um hvaða skiln-
ingarvit var fjallað. Af og til tóku tré-
blástursleikarar hljómsveitarinnar
þátt í leikritinu, þeir stóðu upp, einn
á eftir öðrum og beindu hljóðfærum
sínum að einleikaranum um leið og
þeir spiluðu. Hann svaraði í sömu
mynt, þetta var eins og samræða
þar sem mikið gekk á.
Lokakaflinn um sjötta skilningar-
vitið var magnaður. Þá gengu all-
margir strengjaleikarar hægt út af
sviðinu og inn á ganginn meðfram
áheyrendabekkjunum. Spilandi
ofurveikt. Þeir voru eins og svefn-
genglar eða uppvakningar. Ólguna í
tónlistinni hafði lægt, sama kyrrláta
hendingin var endurtekin í sífellu,
áleitin og dáleiðandi. Stemningin
var eins og atriði í The Walking
Dead!
Annað á efnisskránni var hefð-
bundnara, Elskhuginn eftir Sibelius
og sjötta sinfónían eftir Tsjajkovskíj.
Það fyrrnefnda rann ljúflega niður.
Þetta er eins konar forleikur í þrem-
ur stuttum köflum, tónlistin er blíð-
leg og nostalgísk. Hljómsveitin gerði
henni ágæt skil. Leikurinn var vand-
virknislegur og gæddur viðeigandi
innileika. Sinfónían eftir Tsjajkovskí
var mun stórbrotnari, allt frá þung-
lyndislegu upphafi og niðurlagi
upp í brjálæðislega hápunkta inn á
milli. Túlkun hljómsveitarstjórans
var sannfærandi, hamslaus og djörf.
Spilamennskan var örugg og fag-
mannleg, en þrungin gríðarlegum
ástríðum – akkúrat eins og hún átti
að hljóma. Maður hálfpartinn dans-
aði út í náttmyrkrið á eftir.
Jónas Sen
niðursTaða: Dásamlegur einleiks-
konsert með tilkomumikilli sjónrænni
vídd og grípandi sinfónía gerðu þetta að
sérlega ánægjulegum tónleikum.
Andsetni klarinettuleikarinn
Kari Kriikku klarinettuleikari. “Þrátt fyrir tilburðina var leikur hans þó í alla staði fókuseraður, glæsilegur og tæknilega pott-
þéttur,” segir í dómnum. Mynd/nordicPHoto/GEtty
Save the Children á Íslandi
2 1 . j a n ú a r 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r40 M e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
menning
2
1
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
0
3
-2
A
0
C
1
C
0
3
-2
8
D
0
1
C
0
3
-2
7
9
4
1
C
0
3
-2
6
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K