Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Blaðsíða 6
Fyrsta konan til að leiða karlalið á toppinn 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2016 Fjórir af hverjum fimm þjálf- urum í landsliðum kvenna í Evrópu eru karlar, samkvæmt nýrri skýrslu UEFA. Tekin var saman tölfræði frá öllum að- ildarlöndum og kom þá í ljós að aðeins 20% þjálfara lands- liðanna, bæði aðalliða og yngri landsliða kvenna, eru konur. Þetta er athygli vert í ljósi þess að sigursælustu lið- um í kvennaknattspyrnu síð- ustu ára hefur verið stýrt af kvenþjálfurum. Þýskaland og Bandaríkin hafa nánast skipst á að hljóta helstu titla í kvennaknattspyrnu og hjá báðum þessum liðum eru konur þjálfarar. Að- eins einu sinni frá árinu 2000 hefur karlþjálf- ari stýrt kvenna- landsliði til sigurs á stórmóti. Kvenkyns þjálfarar í karllæg-um heimi knattspyrnunnareru ekki margir. Ekki virðist skipta máli hvort um er að ræða karlalið eða kvennalið, stærstur hluti þjálfaranna eru karlar. Knattspyrnuþjálfarinn Chan Yu- en-ting braut því blað í íþróttasög- unni á dögunum þegar hún varð fyrsta konan til að stýra karlaliði í efsta sætið í efstu deild í heimalandi sínu Hong Kong. Yuen-ting var raun- ar fyrsta konan í heiminum til að ná þessum árangri og fékk því símtal frá Heimsmetabók Guinness skömmu eftir sigurinn. Þess má geta að landslið kvenna í Hong Kong er númer 69 á heimslista FIFA en karlaliðið er númer 143 á sambærilegum lista yfir karlalands- lið. Það er því ef til vill eðlilegt að draga þá ályktun að karlarnir geti lært heilmikið af konunum. Sá eftir ákvörðuninni í fyrstu Yuen-ting er aðeins 27 ára gömul og þjálfar liðið Eastern sem er meðal þeirra sterkustu í Hong Kong. Hún tók við liðinu á miðju tímabili í desem- ber á síðasta ári þegar þáverandi þjálfari hætti og flutti til Kína. „Ég sá eftir því í fyrstu að hafa tekið að mér starf aðalþjálfara liðsins. Ég var hrædd. Ég hélt að ég væri ekki nógu góð til að leiða eitt besta liðið í Hong Kong. Mig skorti reynslu en klúbb- urinn, starfsfólkið og fram- kvæmdastjórinn hvöttu mig áfram og studdu mig.“ Spurð um árangur Yuen-ting í við- tali við Guardian segir fyrrverandi FIFA-stjórnarmeðlimurinn Moya Dodd frá Ástralíu að hann komi sér hreint ekki á óvart. Konur vandfundnar í karlaboltanum „Árangur hennar kemur mér ekki á óvart. Konur skila almennt ár- angri sem þjálfarar þegar þær fá tækifæri,“ segir Dodd án þess að hika og bendir á máli sínu til stuðn- ings að sigrar kvenþjálfara séu mun fleiri en fjöldi þeirra ætti að gefa til kynna. „Við sjáum þetta í kvennabolt- anum, þar hafa öll lið sem hafa unnið helstu titla nema einn frá árinu 2000 verið með konu sem þjálfara jafnvel þótt meirihluti þjálfara séu karlar.“ Í karlaboltanum eru konur vand- fundnar sem þjálfarar og fá sjaldan tækifæri. Chan Yuen-ting vonar að velgengni sín verði öðrum innblástur og hvetji fleiri karlalið til að meta konur að verðleikum og velja þjálfara óháð kyni. „Kannski get ég orðið gott for- dæmi.En það fer mikið eftir menn- ingunni. Það er mikið jafnrétti milli karla og kvenna í Hong Kong. Við er- um jöfn. Ég er ung og ég er kona en klúbburinn veitti mér tækifæri.“ Það er eftir talsverðu að slægjast að komast að í karlaboltanum sem þjálfari, enda eru launin þar margföld á við það sem gerist hjá þjálfurum kvennaliða. Moya Dodd kveðst viss um að velgengni Chan Yuen-ting hvetji aðrar konur til að falast eftir þjálfarastöðum karlaliða. Chan Yuen-ting, þjálfari félagsliðsins Eastern í Hong Kong, leiddi lið sitt til sigurs í efstu deild- inni þar í landi á dögunum. AFP Stuðningurinn sem Yuen-ting fann frá yfirmönnum East- ern klúbbsins skipti hana miklu máli. Yuen-ting ræðir við leikmenn Eastern á æfingu í maí síðastliðnum. AFP Konur stýra konum til sigurs ERLENT EYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is ’ Árangur hennar kemur mér ekki á óvart. Konur skila almennt árangri sem þjálfarar þegar þær fá tækifæri. Moya Dodd FRAKKLAND SAINT-ÉTIENNE Evrópumót karla í knattspyrnu er nú í algleymingi í Frakklandi. Íslenska landsliðið er eins og kunnugt er að taka þátt í mótinu í fyrsta skiptið og hófu þeir leik í Saint-Étienne á þiðjudaginn. Þar gerðu þeir jafntefli við sterkt lið Portúgals og voru tæplega átta þúsund íslenskir stuðningsmenn á vellinum. Íslendingar leika aftur í dag, laugardag, gegn Austurríkismönnum sem töpuðu fyrir Ungverjalandi í fyrsta leik sínum. KAMBÓDÍA ANGKOR WAT Fornleifafræðingar hafa fundið rústir af heilu borgunum gröfnum undir frumskógi í nágrenni Angkor Wat-hofsins í íu. ÁstralskiKambód ornleifafræðingurinnf dr. Damian Evans kynnti fundinn á mánudaginn í grein í tímaritinu Journal of Archaeological Science. Þar var greint frá fjölda borga á svæðinu sem voru í blóma á öldunum 900 og 1400. Fræðimenn telja þetta þéttustu byggð síns tíma og að veldi Khmeranna hafi verið hið stærsta í heiminum á 12. öld. PÓLLAND VARSJÁ Til stendur að Atlantshafsbandalagið (NATO) sendi fjögur fjölþjóðleg herfylki til Eistlands, Lettlands, Litháens og Póllands vegna vaxandi hernaðarógnar frá Rússlandi. Þetta NATO, á blaðamannafundi í vikunni. Fram kom á fundinum að endanleg ákvörðun í þessum efnum yrði tekin á leiðtogafundi NATO íVarsjá, höfuðborg Póllands, í byrjun næsta mánaðar. BANDARÍKIN ORLANDO Mannskæðasta skotárás í sögu Bandaríkjanna átti sér stað á skemmtistaðnum Pulse í Orlando aðfaranótt sunnudags. Omar Mateen drap þar 49 manns og særði 53 aðra með árásarriffli áður en hann féll í skotbardaga við lögreglu. Pulse var einna helst sóttur af LGBT- fólki, þ.e. samkynhneigðum, tvíkynhneigðum og transfólki en Mateen ól með sér mikið hatur í garð LGBT-samfélagsins að sögn föður hans.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.