Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Blaðsíða 34
Það er mikið huggulegra að borða matinn undir berum himni heldur en inni á stífum veitinga- stað. Tompkins Square Park í East Village er einkar róman- tískur og þá má einnig nefna til sögunnar Prospect Park í Brook- lyn. Tilvalið er að kneyfa eilitla brjóstbirtu í formi öls með mat- num og sammælist fólk yfirleitt um að lagerbjórinn Rolling Rock sé þar bestur. Hægt er að fjár- festa í kassa með tólf slíkum í lyfjaversluninni Duane Reade sem gnótt er af á eyjunni. Tólf bjóra kassi fer þar á um eitt þúsund íslenskar krónur og því ljóst að þar er kostugur díll á ferð. Kaninn er þó strangtrúaður þegar kemur að áfengi og er meðal annars bannað að svolgra í sig djöflaseyð- inu undir berum himni. Vinsælt er því að láta lítið á alkóhólinu bera með því að koma því fyrir í brún- um pappírspokum eða með því að hella því í tómar gosdósir. Löggan þekkir vel til tilboðsins á 99 Cent Pizza og röltir því yfirleitt grun- ferðalangurinn getur því vel gert sér glaðan dag í borginni. Bjór í gosdósum New York er að sjálf- sögðu stútfull af mat- arperrum með Michelin-bónera enda stórborg og því ákveðin mið- stöð slíks runks. Það er hins vegar mikið hagstæðara fyrir ferðalang- inn að fara í matvöruverslunina Westside Market, sem er dreifð víðsvegar um Manhattan, og dýfa sér í salatbarinn. Það vill nefnilega svo til að barinn verður talsvert ódýrari þegar líða tekur á kvöldin og ekki skemmir fyrir að flestar eru búðirnar opnar allan sólar- hringinn. Einnig eru Halal-vagnar á nær hverju einasta horni þar sem hægt er að fá falafel og annað skyndifæði á rúmar þrjú hundruð krónur. Það mikilvægasta þegar verslað er við slíka vagnsala er að biðja um nóg af hvítu sósunni. Hún gerir gæfumuninn. Svo má ekki gleyma öllum pítsusneiða- sjoppunum en þar ber helst að nefna 99 Cent Pizza sem finna má víða. Þar má meðal annars fá þrjár sneiðar og gosdós á undir fimm hundruð krónum en slíkt súpertilboð hlýtur að kitla fátæka ferðamanninn. Það þarf ekki að taka smálánupp á margar milljónirþegar land er lagt undir fót. Þó standa margir í þeirri trú að þeir einu sem geti skemmt sér almennilega í steypufrumskógi New York séu þeir sem hafa efni á því að sveifla sér á milli skýja- kljúfa með marglitan kokteil í annarri og Broadway-miða í hinni. Það er mikill misskiln- ingur. Vissulega er smekkur manna misjafn en það verður þó að segjast að margt það sem borgin hefur upp á að bjóða er ódýrt ef ekki fríkeypis. Fátæki Listin að skemmta sér ódýrt í New York Það þarf ekki endilega mikinn pening til að njóta stórborgarferða og er New York þar engin undantekning. Ef sneitt er fram hjá túristagildrum má finna ódýr undur steypufrumskógarins. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is Steypufrumskógurinn er þéttur á Manhattan-eyju en hverfin á henni þó mjög ólík. Halal-vagnarnir eru víða og er hvíta sósan sem sett er á falafelið mjög góð. Í Lower East Side-hverfinu má víða finna mjög skemmtileg götulistaverk. Neðanjarðarlestakerfi borgarinnar er einkar gott og auðvelt í notkun. Það má oft finna ódýran mat í Westside Market. FERÐALÖG New York er þekkt fyrir pítsur og slíkar sjoppur á nærhverju horni. 99 Cent Pizza er þar ofarlega á blaði sem og júmbó-sneiðin sem fæst í Koronet Pizza. Pítsusneiðin 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2016 Sjá útsölustaði á www.heggis.is SILKIMJÚKAR hendur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.