Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Blaðsíða 28
Fyrir 6-8
olía til steikingar
3 pressuð hvítlauksrif
4 dl soðnar svartbaunir, t.d. Rapunzel lífrænar baunir
1 sæt kartafla, skorin í litla bita
1 meðalstór rauðlaukur
3 gulrætur, skornar í litla bita
sítrónusafi úr ½-1 sítrónu
Mexíkó-kryddblanda
kóríander-lauf eftir smekk, söxuð
Ef notaðar eru þurrar baunir er gott að setja þær í bleyti yfir nótt. Þær
eru síðan soðnar í um 40 mínútur, kældar og notaðar í réttinn. Það er
einnig hægt að kaupa svartbaunir í dós.
Hitið olíuna á pönnu og léttsteikið hvítlaukinn og rauðlaukinn. Setjið
gulrætur og sæta kartöflu út í og látið malla í smá stund. Blandið saman
við sítrónusafa og örlitlu vatni. Setjið baunirnar út í og að lokum krydd-
blönduna. Gott að hræra í og mauka baunirnar aðeins með sleifinni.
Maukið á að vera ögn blautt. Að lokum er ferskum kóríander blandað
saman við.
Svartbaunamauk
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2016
MATUR
Við vorum að elda svona mat í vetur á starfsbrautinni og okkurlíkaði þetta svo vel að ég ákvað að leyfa öðrum að prufa. Éghef áhuga á grænmetisréttum og vegan-réttum og langar að
sýna að það er hægt að gera svo margt annað með grænmeti en að
saxa það og sjóða. Það er hægt að gera það sama við grænmeti og
dýraafurðir. Það er mjög spennandi. Svo finn ég að mér líður miklu
betur af þessum mat,“ segir Guðfinna sem bauð samstarfskonum
sínum úr Menntaskóla Kópavogs í veglegt matarboð.
Skipulögðu göngu yfir mexíkómatnum
Guðfinna bauð upp á marga grænmetisrétti ásamt tortilla-kökum og
var allt unnið frá grunni. Guðfinna dásamar grænmetið sem nú er í
boði. „Það er svo gott að skipta um gír núna þegar sumarið er komið
og allt þetta ferska grænmeti er komið í búðir,“ segir hún og ákvað
að hafa mexíkóskt þema að þessu sinni. Í veislunni var mikið spjallað
og hlegið en einnig var stofnaður gönguhópur. Þær lögðu drög að
því að ganga Leggjabrjót á næstunni. „Þetta var mjög skemmtileg
veisla en hún var gerð í samstarfi við Innnes sem styrkti okkur
skvísurnar, en ég er mjög hrifin af þeirra vörum,“ segir Guðfinna.
Eygló Ingólfsdóttir lánaði heimilið til veislunnar og aðstoðaði Guðfinnu Guðmunds-
dóttur sem sá um matreiðsluna.
Veislugestir voru spenntir að prófa réttina hennar Guðfinnu.
Bragð af
Mexíkó
Guðfinna Guðmundsdóttir, matreiðslu-
meistari og kennari á matvælasviði
Menntaskólans í Kópavogi, eldaði mexí-
kóska grænmetisrétti fyrir samkennara
sína. Sumarkvöldið var fagurt og
maturinn ferskur og ljúffengur.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Fyrir 6-8
2 dl íslenskt bankabygg soðið samkvæmt leiðbeiningum
á poka
2 dl olífuolía
grænmetiskraftur, gerlaus
1dl sólþurrkaðir tómatar smátt saxaðir
1dl soðnar nýrnabaunir
1dl soðnar kjúklingabaunir
1 stk grænt epli smátt saxað
1 dl saxaðar döðlur
1 dl saxaðar apríkósur
Blandið þessu saman í skál. Síðan má setja allar
gerðir af ristuðum hnetum og fræjum. Einnig má
setja fleiri tegundir af baunum og líka smátt saxað
grænmeti eftir smekk.
Byggsalat