Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Page 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Page 13
Guðni Th. Jóhannessonmælist með 50,9 prósentsfylgi í nýrri skoð- anakönnun Gallups sem birt var í vikunni og hefur því enn töluvert forskot á keppinauta sína til emb- ættis forseta Íslands. Halla Tómasdóttir er hástökkvari vikunnar en hún mælist nú í annarri könnuninni í röð með fylgi í kringum 12,5 prósent og virðist mikill byr vera með kosningabaráttu hennar. Davíð Oddsson og Andri Snær halda sínu fylgi en Davíð mælist nú með 16,4 prósent fylgi og Andri Snær með 15,5 prósent. Aðrir frambjóðendur mælast með miklu minna fylgi í könnunum en í könnun Gallups er Sturla Jónsson með 2,7 prósenta fylgi, Elísabet Jökulsdóttir með 1,1 prósents fylgi, Ástþór Magnússon með 0,5 pró- senta fylgi, Guðrún Margrét Páls- dóttir með 0,3 prósenta fylgi og 0,2 prósent styðja Hildi Þórðardóttur. Tapað tæpum 20 prósentum Guðni Th. Jóhannesson hefur mælst með afgerandi forustu í öllum skoð- anakönnunum sem birtar hafa verið sl. mánuð. Fylgi hans hefur þó minnkað töluvert frá því sem mest var og munar nú tæpum 20 prósent- um á fylgi hans eins og það mælist í könnunum í dag og fylgi hans snemma í maí. Stefanía Ósk- arsdóttir, dósent við stjórn- málafræðideild Háskóla Íslands segir forskot Guðna á aðra fram- bjóðendur þó hafa haldist meðan innbyrðis hlutföllin hafa breyst hjá hinum þremur. Þá óttast hún að kjörsókn verði dræm vegna mikilla yfirburða Guðna í skoðanakönn- unum. „Það er alltaf hætta á því þegar skoðanakannanir sýna mikla yfir- burði að kjörsóknin verði frekar dræm,“ sagði Stefanía og bendir á að ekki skipti þá máli hvort fólk styðji Guðna eða ekki. „Það er minni hvati til að mæta ef frambjóðandinn hefur mikið forskot. Það verður ekki mikill áróður fyrir því að hvert atkvæði skipti máli og ekki jafnmikil smölun.“ Telur fylgið ekki breytast Stefanía bendir á að fylgi fyrir for- setakosningar breytist sjaldan mik- ið síðasta mánuðinn fyrir kosningar og segist ekki eiga von á miklum breytingum núna. „Það hefur sýnt sig að yfirburðir Guðna hafa lítið breyst. Það er ekki óvenjulegt að fylgi hreyfist lítið síð- asta mánuðinn fyrir forsetakosn- ingar. Í lok apríl 2012 var Þóra með um 49 prósent fylgi en fylgi Ólafs var um 35 prósent. Um miðjan maí fór fylgi Ólafs langt fram úr Þóru og frá þeim tímapunkti var Ólafur allt- af yfir í könnunum. Þátttakan í þeim kosningum varð svo frekar dræm, eða 69 prósent,“ segir Stefanía. Eina konan í baráttunni Halla Tómasdóttir er eina konan sem virðist eiga raunhæfa mögu- leika í baráttunni um embætti for- seta Íslands en framan af var stuðn- ingur við framboð hennar lítill. Höllu hefur þó tekist að snúa vörn í sókn og mældist í fyrsta sinn með tveggja stafa tölu í þjóðmálakönnun Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands þar sem 12,3 prósent aðspurðra sögðust styðja hana. Þá hlaut hún 12,5 prósenta fylgi í nýrri könnun Gallups. Áhugavert er að Guðni nýtur langmests fylgis meðal kvenna eða 60 prósenta samkvæmt könnun Fé- lagsvísindastofnunar en aðeins 14 prósent kvenna styðja Höllu. Davíð og Andri Snær fá báðir 11 prósenta fylgi meðal kvenna. Karlmenn styðja síður Guðna en Davíð nýtur meiri stuðnings karlmanna en kvenna. Þá vekur athygli að þótt dreifing í stuðningi sé nokkuð jöfn hjá flestum frambjóðendum eftir launatekjum kjósenda sker Andri Snær sig úr. Hann nýtur mests fylgis meðal ein- staklinga með minna en 200 þúsund krónur á mánuði, eða 25 prósenta, en minnst meðal fólks með meiri laun en 600 þúsund krónur, eða 8 prósenta fylgis. Aðferðafræðin sambærileg Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofn- unar Háskóla Íslands, segir að- ferðafræði skoðanakannana svipaða hjá helstu aðilum s.s. MMR, Gallup og Félagsvísindastofnun. „Flestir safna í einhvers konar panel líkt og við gerum, þ.e. með til- viljunarúrtaki úr þjóðskrá.“ Spurð um nákvæmni kannana segir Guðbjörg erfitt að segja ná- kvæmlega til um slíkt. „Það er erfitt að segja hvað reyn- ist best en það hefur almennt reynst nákvæmast að vera með blandaða nálgun t.d. bæði panel og símakönn- un. Hóparnir geta verið aðeins öðru- vísi eftir því hvort við skoðum panel í gegnum netið eða hringjum beint í fólk.“ Eldra fólk líka spurt um afstöðu Því hefur verið haldið fram að eldra fólk taki síður þátt í könnunum og oft séu einstaklingar eldri en 70 ára jafnvel ekki spurðir um afstöðu. Guðbjörg segir þetta ekki alveg rétt því misjafnt sé milli könnunaraðila hvar mörkin eru dregin. „Í okkar panel eru engin aldurs- takmörk og fólk allt upp í 90 ára að taka þátt. Ég vil ekki fullyrða hvernig þetta er annars staðar en það er ekki óþekkt að mörk séu dregin við einhvern aldur.“ Spurð að lokum um svarhlutfall og vikmörk í könnunum segir Guð- björg eðlilegt að vikmörk séu um þrjú prósent og svarhlutfallið þurfi ekki að skipta öllu máli. „Svarhlutfallið er í kringum 50 prósent í þeim könnunum sem eru gerðar á stuttum tíma en það hefur sýnt sig að þó við gefum okkur lengri tíma og hækkum svarhlut- fallið er niðurstaðan svipuð. Vand- inn er að við getum ekki reiknað skekkjuna út frá minna svarhlut- falli.“. Lítil spenna miðað við kannanir Búast má við að kosningaþátttakan verði dræm í forsetakosningunum þann 25. júní nk., að mati stjórnmálafræðings Íslendingar velja sér nýjan forseta eftir tæpa viku og verður áhugavert að sjá hvort kannanir í aðdraganda kosninga reynast réttar. Morgunblaðið/Eggert 19.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Nú gefst þér kostur á að mæta snemma og hafa tímann fyrir þér því innritun hefst nú 2 og 1/2 tíma fyrir flug. Fáðu þér hressingu og kíktu í búðir og njóttu þess að geta tekið lífinu með ró. Fjöldi verslana og veitingastaða bíða þín í betri flugstöð. 1 6 -1 4 4 0 - H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 1 vika TIL KOSNINGA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.