Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Side 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Side 22
Grái liturinn gefur svefn- herberginu hlýlegt yfirbragð. Glæsileg uppstilling á snyrtiborðinu. Heimilið er hlýlegt og fallega innréttað. Ljósið er frá Tom Dixon en Sylvía hefur mikinn áhuga á innanhúss- hönnun og er dugleg að finna hugmyndir á Pinterest. Morgunblaðið/Eggert Sylvía Briem, einn af stofnendum bloggsíðunnar femme.is, starfar semDale Carnegie-þjálfari en ásamt því er hún að leggja lokahönd á nám íheilsumarkþjálfun en hún hefur einnig lokið grunnnámi í NLP- fræðum. Emil er atvinnuflugmaður en vinnur við flugumsjón hjá WOW air. „Ég er mjög breytileg þegar það kemur að stíl, ég er fljót að fá leið á hlutum og breyti því reglulega. Þess vegna kaupi ég ýmist frekar ódýra hluti sem að mega þá bara fara í Rauða krossinn eða gjöf til ein- hvers sem að myndi nýta betur þá hluti,“ útskýrir Sylvía sem er jafnframt dugleg að fá hugmyndir fyrir heimilið sem hún síðan framkvæmir á fallegan hátt. „Það er fyndið að segja frá því að áður en ég fer að sofa þá innrétta ég íbúðir til að sofna... Það er mín hugleiðsla. Ég ætti kannski að fara að íhuga að gera þetta að atvinnu, mér finnst þetta svo skemmti- legt.“ Aðspurð hvar parið kaupi helst inn á heimilið nefnir Sylvía verslanirnar NORR11 og Söstrene Gröne. „IKEA er náttúrlega líka í miklu uppáhaldi hjá mér þrátt fyrir að Emil gæti alveg kleprað þegar ég nefni búðina á nafn.“ Sylvía segir jafnframt grunn íbúðarinnar, eins og málningu, gólfefni og annað slíkt eitthvað sem að hún velji klassískt og hrátt en þegar það kemur að hlutum þá kaupir hún ýmislegt sem að henni finnst fallegt þá stundina, bæði hönnun og ódýrt. „Mér finnst mikilvægt að hugsa, þegar það snýr að mér, hvort ég muni fá leið á þessu, en eins og áður sagði eru hlutirnir fljótir að breytast og ég er þessi fluga sem fær virkilega fljótt leið á hlutum og vill þá oft breyta mikið til,“ útskýrir Sylvía. Hún segist sækja mestan innblástur til vina og fjölskyldu þegar kemur að heimilinu. „Ég verð að viðurkenna að ég er forfallinn Pinterest-fíkill og oft er erfitt Sylvía Briem hefur búið sér og fjölskyldu sinni notalegt heimili. Breyti heimilinu reglulega Sylvía Briem Friðjónsdóttir býr ásamt Emil Þór Jó- hannssyni, kærasta sínum, og eins árs syni þeirra, Sæmundi, í fallegri íbúð í Reykjavík. Sylvía hefur áhuga á innanhússhönnun og er afar dugleg að finna og framkvæma flottar lausnir á heimilinu. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Skemmtilegt horn í stofunni. Falleg hilla sem Sylvía útbjó úr kryddhillu í barnaherberginu. HÖNNUN Íslenski sjávarklasinn, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Íslensk ný-orka hafa efnt til samkeppni og leitast eftir hugmyndum um hvernig dragamegi úr umhverfisáhrifum skipaútgerðar. Frekari upplýsingar er að finna á vef- síðunni www.atvinnuvegaraduneyti.is en frestur rennur út hinn 1. september. Hugmyndasamkeppni um vistvænt skip 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2016 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.