Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Síða 29
Fyrir 6-8 1 dós grísk jógúrt 1 stk agúrka, skræld og rifin smátt og safinn kreistur úr gúrkunni pressaður hvítlaukur eftir smekk safi úr ½ sítrónu salt og nýmalaður pipar Öllu hrært saman. Raita-sósa 19.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Fyrir 6-8 3 stk avokadó, innihaldið stappað með gaffli smá rauðlaukur tómatur smá gúrka paprika vorlaukur graslaukur kóríander 2 hvítlauksrif salt og pipar safi úr ½ sítrónu Notið smá af smátt söxuðum rauðlauk, tómötum, gúrku og papriku eftir smekk og setjið í skál með stappaða avakadóinu. Gott er að setja nýjan vorlauk og graslauk úr garðinum ef hann er til. Setjið út í ferskan, smátt saxaðan kórían- der og rífið tvö hvítlauksrif út í. Kreistið safann úr ½ sítrónu og saltið og piprið. Guacamole ’Ég hef áhuga á grænmet-isréttum og vegan-réttum oglangar að sýna að það er hægt aðgera svo margt annað með græn- meti en að saxa það og sjóða. Eygló Ingólfsdóttir, Margrét Sigbjörnsdóttir, Vil- borg Anna Árnadóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Nanna Þóra Andrésdóttir, Doro Berg, Jóhanna Jónsdóttir, Íris Mjöll Ólafsdóttir og Guðfinna Guðmunds- dóttir spjalla og skála á veröndinni fyrir matinn. Heimagerðar tortillur Fyrir 6-8 2 ½ dl spelt, gróft og fínt blandað saman 2 tsk túrmerik 2 tsk kummin 1 tsk vínsteinslyftiduft 4 msk sojamjólk 4 msk vatn 2 msk olía örlítið salt eftir smekk Hrærið öllu saman og hnoðið. Deigið má ekki vera of þurrt en heldur ekki of blautt. Búið til litlar kúlur úr deiginu, ca 15 kúlur úr þessu magni. Fletjið deigið út í þunnar hringlaga kökur og setjið spelt undir deigið þegar það er flatt út. Þurrsteikið á pönnu í tæpar tvær mín- útur á hvorri hlið. Vefjið kökurnar inn í rakt stykki eða njótið beint af pönnu. Fyrir 6-8 4 plómutómatar 1 rauð paprika 1 gul paprika 1 rauðlaukur 1 stk ferksur rauður chili smá kóríander smá af steinselju 2 pressuð hvítlauksrif limesafi úr einni lime salt og pínu pipar Saxið allt smátt og blandið saman í skál. Salsa

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.