Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Síða 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Síða 43
Höfundar bók- arinnar Tíma- skekkjur eru tíu talsins og ritstjórar eru fimm. Ljósmynd/Kristinn bókarinnar. Það var lendingin að lokum að hann sameinaði okkur,“ segir Þóra aðspurð hvað hinir ólíku höfundur bókarinnar eigi sameiginlegt. „Við skrifum líka um viðfangs- efni sem allir eru að bögglast með á borð við einangrun, ástina, það að tilheyra samfélaginu og tilfinn- ingar. Á tímabili hélt ég kannski að við myndum lenda á einhverju öðru þema en það er gaman að tengja þetta við tíma því sumir skrifa um framtíðina í einhvers konar dystópískri sýn á hana en aðrir leita til fortíðar.Við tækl- uðum hvaða þema við skyldum velja í einum tíma og svo var ótrú- legt hvað námskeiðið rúllaði smurt án nokkurra árekstra.“ Á fyrstu blaðsíðum bókarinnar er að finna sögur þar sem „é“ er skrifað með „je“ og talað er um koffort og vistarband. Seinustu síður hennar minna aftur á móti á vísindaskáldskap. „Og um miðbikið er flakkað í gegnum períódur og ólíka áratugi á tuttugustu öldinni,“ segir Þóra. Áhættusæknir og til- raunagjarnir höfundar „Það sem sameinar höfundana líka er hið augljósa, að þau eru í mast- ersnámi í ritlist og hafa þar með komist í gegnum ákveðna síu, þannig að þau eru flink að skrifa,“ bætir Sigþrúður við. „Þau eru jafnframt til í að gera tilraunir, eins og maður er á háskóla- árunum. Maður á ekki að vera full- kominn. Maður er að prófa sig áfram og vera djarfur. Ég held það sjáist á textanum að allir sem standa að þessari bók eru tilbúnir til að gefa mikið í og taka áhættu. „Það kemur saman ofboðsleg þekking þegar fimmtán manns sitja saman með alla sína reynslu og hæfileika. Galdurinn er svolítið að reyna að nýta allt sem er til staðar en þó þannig að hinir í hópnum læri af því líka,“ segir Sigþrúður. Öll þrep útgáfunnar séu unnin af nemendum og allar ákvarðanir teknar af hópnum. Bókin samanstendur af ýmsum tilraunum höfunda í smásagna- skrifum, ljóðlist og öllu þar á milli. Sameiginlegt þema og ritstjórn- arvinna skilar sér í heildrænni upplifun, enda þótt línuleg frásögn sé nánast engin kafla á milli. Ekki fæst séð að það sé einhver ein nið- urstaða sem hópurinn kemst að um viðfangsefni sitt, tímann. „Ritstjórar koma síðan að þessu með því að raða efninu upp og þótt það sé ekki augljóst er sögunum raðað eftir því hvenær sagan ger- ist og hvert viðhorf hennar er til tímans,“ segir Svanhildur Sif. „Ef maður les bókina í réttri röð getur maður fundið fyrir tímanum en svo getur maður auðvitað líka gripið niður hvar sem er. Efnið tengist ekki þannig að eitt byggi á öðru,“ bætir Sigþrúður við. Forsjálir bókmenntaunnendur eru hvattir af undirrituðum til að fylgjast með höfundum bókarinnar en þeir eru eftirtaldir: Ásdís Ing- ólfsdóttir, Birta Þórhallsdóttir, Einar Leif Nielsen, Fjalar Sigurð- arson, Jóhanna María Ein- arsdóttir, Jóhannes Ólafsson, Sig- rún Elíasdóttir, Tryggvi Steinn Sturluson, Una Björk Kjerúlf og Þóra Björk Þórðardóttir. Rit- stjórar eru þau Dýrfinna Guð- mundsdóttir, Erna Guðmunds- dóttir, Kristinn Pálsson, Sandra Jónsdóttir og Svanhildur Sif Hall- dórsdóttir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þær Þóra Björk, Sigþrúður og Svan- hildur fagna afrakstri námskeiðsins. ’ Á fyrstu blaðsíðum bókarinnar er að finnasögur þar sem „é“ er skrifað með „je“ og talaðer um koffort og vistarband. Seinustu síður henn-ar minna aftur á móti á vísindaskáldskap. „Og um miðbikið er flakkað í gegnum períódur og ólíka áratugi á tuttugustu öldinni.“ Eftir Þóru Björk Þórðardóttur Það lagðist yfir gjörvalla heims byggðina ósýnilegur hjúpur með óþekktar bækistöðvar. Næstum eins og glitrandi vefur köngulóarmannsins tengir það skýjakljúfa í röðum hímir undir rjáfrum heimila. Spjallar þú stundum við kámugan skjáinn með puttunum við eldhúsborðið? Rankar við þér maturinn orðinn kaldur og ástin þín farin að hátta? Hún tekur með lófanum utan um tunglið sem hlustar á taktfastan svanasöng lyklaborðanna. Í netinu? 19.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 Rétt í þessu var ég að ljúka Glæp og refsingu eftir Fyodor Dostoyevsky. Ég hef hingað til lesið lítið eftir rússneska höfunda og ákvað að bæta úr því og fara í kanónurnar. Þetta var áhrifamikil sálfræðilýsing, frábær lýsing á innra lífi aðal- persónunnar en hugs- anlega eilítið lang- dregin á köflum. Þetta er svona það fyrsta sem mér dettur í hug að segja. Stóðst bókin væntingar þínar sem ein af kanónum heims- bókmenntanna? Já, ég held ég geti fyllilega sagt það. Hvað heldurðu að þú lesir næst? Ég held áfram í Rússunum og er byrj- aður á Lolitu eftir Nabokov. Á fyrstu blaðsíðum kem- ur hún frábærlega fyrir sjónir og stíllinn á henni virðist vera með því betra sem ég hef lesið. Ég hlakka til að halda áfram. Hvað varstu að lesa fyrir þessa miklu rúss- nesku törn? Fyrir Rússana var ég að lesa Þór- berg. Las Ofvitann síðast á undan þessu og hafði ljómandi gaman af, ég skemmti mér konunglega við lestur þeirrar bókar. Ég held þetta séu gjörsamlega tímalausar bók- menntir sem ég get mælt með fyrir hvern einasta bókaunnanda. Árni Davíð Magnússon BÓKSALA 08.-14. JÚNÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson. 1 VillibráðLee Child 2 KakkalakkarnirJo Nesbø 3 Bak við luktar dyrB.A. Paris 4 Ótrúleg saga Indverja sem hjólaði til Svíþjóðar á vit ástarinnar Per J.Andersson 5 VélmennaárásinÆvar Þór Benediktsson 6 Dalalíf 1Guðrún frá Lundi 7 Independent PeopleHalldór Laxness 8 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante 9 Sagas of the IcelandersElena Ferrante 10 This is Iceland 1 VillibráðLee Child 2 KakkalakkarnirJo Nesbø 3 Bak við luktar dyrB.A. Paris 4 Ótrúleg saga Indverja sem hjólaði til Svíþjóðar á vit ástarinnar Per J.Andersson 5 Dalalíf IGuðrún frá Lundi 6 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante 7 Dalalíf IIGuðrún frá Lundi 8 Er einhver þarna?Marian Keyes 9 Ef þú viltHelle Helle 10 Framúrskarandi vinkonaElena Ferrante Allar bækur Íslenskar kiljur MIG LANGAR AÐ LESA Eftir Jóhannes Ólafsson 4. janúar 1960 grænt tré og brotajárn útlendingur gerir tjónaskýrslu við ævi sína lestarmiði í vasanum aldrei notaður. Dánarfregnir og tímaskekkjur Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN Enn snjallara heyrnartæki Beltone Legend Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. ™ Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.