Morgunblaðið - 19.07.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM
hjá volvo penta á íslandi
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi
teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum
Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt.
Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa.
HAFÐU SAMBAND Í DAG
• Sími: 515 7070
• Netfang: volvopenta@brimborg.is
• Ný heimasíða: volvopenta.is
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta
á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar
okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Ragnar Sigurðsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, hitti unga knatt-
spyrnuiðkendur í Fylki í gær en
Ragnar er uppalinn í Árbænum í
Reykjavík og spilaði með Fylki áður
en hann gerði garðinn frægan erlend-
is.
Fyrirvarinn á heimsókn Ragnars
var skammur, eða rétt rúmur klukku-
tími, en vegalengdirnar í Árbænum
eru stuttar og tókst fjölmörgum
krökkum að berja átrúnaðargoðið
augum og fá áritun á myndir, skó,
treyjur, hendur og annað sem krakk-
arnir komu með.
Ragnar, sem var mjög tímabund-
inn, enda að fara í flug til Rússlands,
gaf sér þó góðan tíma til að árita og
skildi engan eftir. Allir fengu sitt og
brostu krakkarnir út að eyrum eftir
að hafa séð og hitt varnarmanninn
sterka.
Orðaður við stærri lið
Ragnar steig sín fyrstu skref með
Fylki árið 2004 þegar Þorlákur Árna-
son stýrði liðinu. Hann spilaði tvær
leiktíðir hér heima og skoraði tvö
mörk fyrir félagið í 38 leikjum. Þaðan
lá leiðin til Svíþjóðar, svo Danmerkur
áður en hann var seldur til Rússlands
árið 2014 þar sem hann leikur með
Krasnodar í rússnesku deildinni.
Vegna frammistöðu sinnar á Evr-
ópumótinu hefur hann verið orðaður
við enn stærri félög í Evrópu.
Eftir að börnin höfðu fengið sitt
steig Björn Gíslason, formaður Fylk-
is, fram og sæmdi Ragnar gullmerki
félagsins undir dynjandi lófataki frá
foreldrum og iðkendum.
„Við erum ákaflega stolt af Ragn-
ari. Hann var fremstur meðal jafn-
ingja í landsliði Íslands á Evr-
ópumótinu og því finnst okkur við
hæfi að næla í þig gullmerki félags-
ins,“ sagði Björn. Ragnar var stutt-
orður, þakkaði fyrir sig og sagði að
hann væri að verða of seinn í flug.
Hann þyrfti því að drífa sig.
Morgunblaðið/Þórður
Röð Þrátt fyrir stuttan fyrirvara tókst ótrúlega mörgum að koma í Fylkisheimilið þar sem Ragnar sat og áritaði.
Enginn skilinn eftir
Ragnar Sigurðsson sæmdur gullmerki Fylkis Var að
verða of seinn í flug til Rússlands Gleði krakkanna mikil
Sjálfa Ragnar gat lítið stillt sér upp fyrir börnin enda að verða of seinn í
flug. En sumir björguðu sér og skelltu í sjálfsmynd með goðinu.
Íslendingar hafa lengi verið þekkt-
ir fyrir að nýta sér vel þá daga er
sólin skín og hiti kemst í tveggja
stafa tölu, en það gerðu margir
Reykvíkingar í veðurblíðunni í gær
og var m.a. margt um manninn á yl-
ströndinni í Nauthólsvík.
Mikil gleði og ánægja ríkti einnig
annars staðar í borginni þar sem
fólk naut sólarinnar. Var þannig
fjöldi manns í miðbænum og á
Klambratúni og einnig töluvert af
ferðamönnum á kreiki.
Veðurstofa Íslands spáir áfram
fremur hlýju og mildu veðri næstu
daga. Í dag er gert ráð fyrir dálítilli
rigningu sunnan- og austanlands,
en annars verður skýjað með köfl-
um. Hiti verður á bilinu 8 til 20 stig,
hlýjast vestantil á landinu.
Á morgun er spáð rigningu víða
en stytta á upp seinnipartinn, eink-
um austantil. Áfram verður hlýtt í
veðri, eða 8 til 18 stig.
Létt yfir gestum ylstrandarinnar í Nauthólsvík í blíðviðrinu í gær
Borgarbú-
ar brugðu á
leik í sólinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sátt náðist fyrir gerðardómi í kjara-
deilu Félags íslenskra flugumferðar-
stjóra (FÍF) við Samtök atvinnulífs-
ins, fyrir hönd Isavia, síðastliðinn
föstudag. Garðar Garðarsson, for-
maður gerðardóms, staðfesti þetta í
gær.
Guðni Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, segir það ánægjulegt
að samningar hafi náðst milli aðila.
„Við teljum þetta vera góða samn-
inga fyrir flugumferðarstjóra. Núna
er mikilvægt að ná rekstraröryggi
aftur, þannig að við förum í gegnum
sumarið án tafa vegna forfalla. Þetta
er mjög ánægjulegt mál,“ segir
Guðni.
Byggir á felldum samningi
Í lok júní náðist samkomulag milli
Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd
Isavia, og FÍF. Var í kjölfarið efnt til
atkvæðagreiðslu um samninginn
meðal flugumferðarstjóra og felldu
þeir hann með rúmum 60% atkvæða.
Flugumferðarstjórar höfðu þá verið
samningslausir frá 1. febrúar sl.
Guðni segir samninginn sem und-
irritaður var á föstudag byggja á
þeim sem felldur var, en með ein-
hverjum breytingum. Samningurinn
gildir út 2018 og vildi Guðni ekki fara
nánar í innihald hans.
Að sögn Guðna verða engar breyt-
ingar gerðar á því hvernig vaktir
flugumferðarstjóra eru skipaðar.
Hann býst þó við því að auðveldara
verði að manna vaktir þegar forföll
verða með nýja samningnum. Að
auki munu 20 til 30 flugumferðar-
stjórar bætast í hópinn á næstu 18
mánuðum, en um er að ræða nýliða í
þjálfun.
Aðspurður segir Guðni þjálfunar-
bann flugumferðarstjóra, sem var
liður í aðgerðum þeirra, hafa seinkað
nokkuð inntöku nýliða. „Það hafði
áhrif, það væru einhverjir komnir í
turnvinnu ef ekki hefði verið fyrir
þjálfunarbannið,“ segir hann.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð-
ist ekki í Sigurjón Jónasson, for-
mann Félags íslenskra flugumferð-
arstjóra, vegna málsins.
Flugumferðar-
stjórar sömdu
Nýr samningur við FÍF gildir út 2018