Morgunblaðið - 19.07.2016, Blaðsíða 4
Bjarndýr sást í æðarvarpi
við bæinn Hraun á Skaga
16. júní 2008. Ákveðið var
að fanga dýrið og koma því
aftur til upprunalegra
heimkynna.
Carsten Grøndal, yfir-
læknir dýragarðsins í
Kaupmannahöfn, var kall-
aður til og kom hann með
sérstaka örvabyssu til að
skjóta deyfilyfi í björninn.
Auk þess var rammgert
búr til að geyma bangsa í
flutt til Akureyrar með
vöruflutningavél Icelandair
Cargo.
Aðstæður reyndust erf-
iðar og óhægt um vik að
koma örvabyssunni við.
Hún var knúin þrýstilofti
og dró ekki nema 30-35
metra. Einungis var stór
björgunarþyrla til staðar og dýrið var statt í æðarvarpi og því þótti ekki
vera verjandi að reyna að nálgast björninn á þyrlu.
Björninn var mjög nálægt sjó og var talin hætta á að hann kynni að
flýja til sjávar. Hefði hann gert það með deyfilyfið í sér hefði björninn get-
að drukknað. Ekki þótti verjandi að taka þá áhættu að nálgast björninn
gangandi með deyfibyssuna.
Ákveðið var í samráði lögreglunnar og íslenskra dýralækna að fella
björninn. Ekki kom því til þess að búrið væri notað. Það er enn geymt á
Akureyri og er í umsjón Umhverfisstofnunar. gudni@mbl.is
HVÍTABJARNARBÚRIÐ SEM KOM 2008 ER GEYMT Á AKUREYRIBAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Upplýsingar eru til um rúmlega 600
hvítabirni sem skráðir hafa verið hér
á landi frá landnámi, að því er fram
kemur á heimasíðu Náttúrufræði-
stofnunar Íslands. Auk þess benda
máldagar og örnefni til fleiri heim-
sókna hvítabjarna sem engar frá-
sagnir eru til um.
Ekki er hlaupið að því að finna í
fljótu bragði hve mörgum Íslending-
um hvítabirnir hafa banað frá land-
námi. Við snögga leit fundust þó til-
vitnanir í tvær gamlar heimildir sem
greina frá mannskæðum hvítabjörn-
um.
Þór Jakobsson veðurfræðingur-
skrifaði grein á vef Veðurstofu Ís-
lands, Um hafís fyrir Suðurlandi -
frá landnámi til þessa dags. Þar vitn-
aði hann m.a. í bók Þorvaldar Thor-
oddsen „Árferði á Íslandi í þúsund
ár“. Þar segir um árið 1321:
„Óáran mikil á Íslandi og dóu
menn víða af sulti. Ísar kringum Ís-
land, hvítabjörn kom á land í Heljar-
vík á Ströndum og drap 8 menn.“
Drap átta á Skaga
Eflaust eru margar sögur af heim-
sóknum hvítabjarna löngu týndar.
Birnir heimsóttu oftast Strandir,
Norðurland og Austurland og tengd-
ust heimsóknir þeirra gjarnan hafís-
komum. Komur þeirra á Suður- og
Vesturland hafa verið mun fátíðari. Í
grein Þóris Haraldssonar, líffræði-
kennara við MA, og Páls Hersteins-
sonar prófessors um hvítabirni (Ís-
lensk spendýr, Vaka-Helgafell,
2004) segir m.a. að lengst af hafi
heimsóknir hvítabjarna vakið ugg
enda hafi fólk verið vanbúið til að
verja sig fyrir þessari ógn.
„Ekki eru þó heimildir um að
hvítabirnir hafi drepið hér fólk síðan
1518. Um það ár má lesa í Skarðs-
árannál: „Kom bjarndýr eitt mikið,
rauðkinnungur, á land á Skaga í
Skagafirði við Ásbúðartanga, og sá
hvergi til íss af sléttlendi, en þó af
háfjöllum. Það dýr var soltið mjög,
mannskætt og grimmt; það deyddi 8
manneskjur, sem voru fátækar kon-
ur með börnum er þar fóru, og vissu
dýrsins ekki von. Dýr þetta braut
niður alla hjalla á Skaga utan við
Ketu, því það fann í sumum matföng
handa sér. Þetta var um sumar-
mál.“,“ segir í greininni.
Drepa ekki nafna sína
Undir lok 19. aldar lenti maður á
Vestfjörðum fullnærri hvítabirni,
fékk sár og dó af blóðeitrun að því er
fram kom í viðtali við Þóri Haralds-
son í Morgunblaðinu 2008. Hann
sagði að oft hefði litlu mátt muna að
birnir sködduðu menn.
„Birnir drepa ekki nafna sína sam-
kvæmt gamalli þjóðtrú. Þar sem
hvítabjarna var helst von voru
óvenjumargir karlar og piltar sem
hétu Björn og Bjarni. Það var vernd-
arráðstöfun.“
Samkvæmt ofangreindu eru heim-
ildir fyrir því að hvítabirnir hafi ban-
að a.m.k. 16 Íslendingum og einn til
viðbótar dáið eftir viðskipti við hvíta-
björn, eða alls 17 manns.
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Hvalnes Myndarleg birna birtist skyndilega á laugardagskvöld og var felld.
Hvítabirnir hafa banað
a.m.k. 16 Íslendingum
Heimildir eru til um rúmlega 600 hvítabirni sem hafa komið hingað frá landnámi
Heimsóknir hvítabjarna frá landnámsöld
1
4
8
13
Heimild: Náttúrufræðistofnun
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Njóttu hálendisins
Hvítabjörninn, sem felldur var
við Hvalnes á Skaga síðastliðið
laugardagskvöld, var fullorðin,
meðalstór birna með mjólk í
spenum sem þýðir að ekki er
langt síðan húnn eða húnar
fylgdu henni. Þetta kom fram í
krufningu sérfræðinga á Til-
raunastöðinni Keldum sem gerð
var á sunnudaginn.
Í tilkynningu frá Keldum og
Náttúrufræðistofnun segir að
birnan hafi verið mun feitari en
þeir birnir sem hingað hafi synt
undanfarin ár; um 30% af líkams-
þyngd hennar hafi verið spik sem
gefi til kynna að dýrið hafi nærst
eðlilega undanfarna mánuði. Hún
var 204 kíló að þyngd og 207 sm
á hæð. Aldursgreina á birnuna
með því að telja árhringi í tann-
rótum hennar, en athuganir á
tönnum geta einnig gefið aðrar
mikilvægar upplýsingar um lífs-
ferilinn, að því er fram kemur í
tilkynningunni.
Varðveita á bein og skinn
Tekin voru fjölmörg sýni úr
dýrinu og verður við rannsóknir
á þeim m.a. leitað að styrk þrá-
virkra klórkolefnissambanda,
þungmálmum, styrk geislavirkra
efna og mótefnum gegn veirum.
Margvísleg vefjasýni voru tekin
til vefjameinafræðilegra rann-
sókna og sníkjudýra verður leitað
í meltingarvegi birnunnar.
Í tilkynningunni segir að fyrir-
hugað sé að súta skinn birnunnar
og hreinsa bein hennar og haus-
kúpu á Náttúrufræðistofnun þar
sem til stendur að varðveita
beinagrindina.
Hvalnes-birnan Hún var felld á
laugardagskvöldið og síðan krufin.
Ýmsar rannsóknir
eru fyrirhugaðar á
Hvalnes-birnunni
Birnan
vel á sig
komin
Nýjasta höfuðgæs Blönduósbúa,
grágæsin Blanda, hefur fengið sinn
eiginn gervihnattarsendi svo hægt
verður að fylgjast með ferðum
hennar næstu tvö árin.
Hún var merkt ásamt 112 öðrum
gæsum á Einarsnesi við Blöndu í
gær með bókstafnum B, en 16 ár
eru síðan gæsir voru merktar síðast
á Blönduósi. Ein gæs úr þeim hópi
skilar sér enn á heimaslóðir og skil-
ar jafnvel enn ungum.
Jón Sigurðsson birtir mynd af eð-
algæsinni Blöndu og gæsasérfræð-
ingnum Arnóri Þóri Sigfússyni á
Facebook-síðu sinni í gærkvöld. Í
bakgrunni má sjá hvernig öðrum
gæsum hefur verið smalað saman
og appelsínugula merkinguna á
hálsi þeirra.
Gæsin Blanda verður í beinni
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Dr. Arnór Þórir Sigfússon heldur á Blöndu með hálsbandið.
Grágæsir voru
merktar á Blönduósi
Búrið Ekki kom til þess að það væri notað árið
2008. Björninn var felldur 17. júní.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tilraunin til að bjarga birn-
inum á Hrauni tókst ekki