Morgunblaðið - 19.07.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Valsmenn hf., félag í eigu Knatt-
spyrnufélagsins Vals og 400 stuðn-
ingsmanna Vals, hefur selt tvær
lóðir sínar á Hlíðarenda í Reykja-
vík. Tvö félög í eigu Sigurðar Sig-
urgeirssonar í Járnbendingu keyptu
lóðirnar. Fyrirhugað er að um 600
íbúðir rísi á Hlíðarendasvæðinu en
þar verður einnig aðstaða fyrir at-
vinnustarfsemi.
Hæstiréttur felldi fyrir nokkru
dóm um að svonefndri neyðarbraut
Reykjavíkurflugvallar skyldi lokað,
en deilur um brautina höfðu tafið
uppbyggingu Valsmanna.
Mikill áhugi á lóðunum
Að sögn Brynjars Harðarsonar,
framkvæmdastjóra Valsmanna hf.,
er önnur lóðanna alveg tilbúin.
„Það er búið að loka flugbraut-
inni endanlega og allt frágengið í
sambandi við það. Önnur seldu lóð-
anna er alveg tilbúin og búið að
koma fyrir jarðvegspúðum. Hin er
alveg að verða tilbúin. Nú eru að
hefjast framkvæmdir á þriðju lóð-
inni og verið að setja upp vinnubúð-
ir í vikunni,“ segir hann.
Á þeim lóðum sem hafa verið
seldar er annars vegar gert ráð fyr-
ir íbúðarhúsi með atvinnustarfsemi
á fyrstu hæð og hins vegar íbúðar-
húsi, en í deiliskipulagi segir að þar
gætu verið litlar íbúðir fyrir náms-
menn.
Alls er gert ráð fyrir átta lóðum á
uppbyggingarsvæðinu á Hlíð-
arenda. Brynjar segir mikinn áhuga
á þeim og uppbyggingunni.
„Ég held við gætum verið búnir
að selja fjórar stærstu lóðirnar ef
við vildum. Það er mikill áhugi hjá
byggingarfélögum og fjárfestum,“
segir hann.
Fyrstu íbúðirnar verða seldar
eftir átján mánuði og áætlað er að
uppbyggingu á svæðinu öllu verði
lokið eftir sex til átta ár.
Reisa ný íþróttamannvirki
Kaupverð hinna tveggja keyptu
lóða er trúnaðarmál að sögn Brynj-
ars, en hagnaður af sölunni verður
notaður til uppbyggingar íþrótta-
mannvirkja Vals við Hlíðarenda.
Ákveðið hefur verið að reisa
knatthús við hlið aðalknatt-
spyrnuvallar Vals, en aðspurður
segir Brynjar að knatthúsið verði
að fullu fjármagnað með sölu lóð-
anna.
„Við nýtum afraksturinn til upp-
byggingar íþróttamannvirkja á
Hlíðarenda. Ekki aðeins knatthúss-
ins, heldur líka annarra verkefna,“
segir hann.
Forbyggingar verða byggðar við
knatthúsið, byggt verður við
íþróttahús Vals sem fyrir er þannig
að tengt verði milli gamla íbúðar-
hússins að Hlíðarenda og fjóssins.
Íbúðir verða einnig byggðar á
svæðinu af hálfu Valsmanna og að-
staða fyrir sjúkraþjálfun.
Tvær lóðir þegar
seldar á Hlíðarenda
Valsmenn staðgreiða nýtt knatthús með andvirði lóðanna
Hlíðarendi Alls verða átta lóðir undirlagðar nýbyggingum á Hlíðarenda.
Tvær lóðir hafa verið seldar og munu þær hýsa íbúðir og atvinnustarfsemi.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Þrjú skemmtiferðaskip voru í
Sundahöfn í gær. Með þeim komu
rúmlega 5.600 farþegar.
Mein Schiff 4 er stærst skipanna,
99.430 brúttótonn með 2.504 far-
þega, Crystal Symphony er 51.044
tonn með 2.050 farþega og Deutsch-
land er 22.496 tonn með 960 far-
þega. Tvö af skipunum létu úr höfn í
gærkvöldi.
Eitt skipanna, Mein Schiff 4, var
að koma til hafnar í Reykjavík í
fyrsta skipti. Skipið var byggt í
Turku í Finnlandi og það fór í
jómfrúarferðina í júní 2015. Skipið
er skráð á Möltu og er eigandi þess
Tui Cruises. Mein Schiff er 293,2
metrar að lengd og 42,3 m að breidd.
Það er venjan hjá Faxaflóa-
höfnum að taka á móti nýjum skip-
um með því að fara um borð og af-
henda skipstjóranum skjöld til
minningar um fyrstu komuna hing-
að. Fór Erna Kristjánsdóttir, mark-
aðsstjóri Faxaflóahafna, um borð í
Mein Schiff í gær.
Í frétt á heimasíðu Faxaflóahafna
er vitnað í fréttablaðið Cruise Ind-
ustry News. Þar kemur fram að Tui
Cruises hafi náð að minnka eldsneyt-
iseyðslu verulega á milli ára. Skipa-
félagið hefur náð þessum árangri
með því að skipuleggja ferðaáætlun
sína á hagkvæman hátt, sigla hægar
yfir og notað þá orkutækni sem er
uppsett í nýju skipunum þeirra,
Mein Schiff 3 og Mein Schiff 4.
„Þetta er í samræmi við þá umhverf-
isstefnu sem Faxaflóahafnir vilja
hafa að leiðarljósi í framtíðinni fyrir
skemmtiferðaskip sem koma til
hafnarsvæða Faxaflóahafna, segir í
fréttinni.
Á föstudaginn kemur annað
skemmtiferðaskip í fyrstu ferðina til
Reykjavíkur. Það heitir Zuiderdam,
er 82.305 brúttótonn og um borð eru
1.848 farþegar. Skipið var tekið í
notkun í desember 2002 og er það
skráð í Hollandi. Alls koma sex
skemmtiferðaskip fyrstu ferðina til
Reykjavíkur í sumar.
5.600 farþegar á þremur skipum
Annríki í móttöku skemmtiferðaskipa í gær Von á sex skipum í sína fyrstu ferð til Reykjavíkur
Morgunblaðið/RAX
Sundahöfn Tvö stór skemmtiferðaskip við bryggju í gær, Crystal Symphony og fyrir aftan það Mein Schiff 4. Fremst siglir Viðeyjarferjan.