Morgunblaðið - 19.07.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Styrmir Gunnarsson fjallar umöran vöxt ferðaþjónustunnar í
pistli á vefsíðu sinni í gær og að
vaxandi velgengni í efnahags-
málum sé augljós og blasi við, en
um leið megi sjá hættumerki.
Styrmirskrifar:
„Bandarískur
ferðamaður,
sem hingað
kom fyrir
skömmu var
spurður um þá
reynslu. Hann
hristi höfuðið
og kvaðst hafa
upplifað heim-
sóknina hingað
eins og hann
væri partur af nautgripahjörð, sem
flutt var til og frá. Alls staðar
hefði verið yfirfullt af ferðamönn-
um, sem dregið hefði úr þeirri
ánægju, sem ferðin ella hefði getað
orðið.
Leigubílstjóri varð áheyrandi aðsamræðum farþega í bíl sín-
um. Þeir ræddu sín í milli hvor
borgin væri dýrari, Zürich í Sviss
eða Reykjavík. Niðurstaðan var
Reykjavík. Sérstaklega ofbauð
þeim verð á glasi af bjór, sem kost-
aði um 10 evrur.
Annar einstaklingur hafði orð áþví að hann hefði á veit-
ingastað í Reykjavík borgað sem
svaraði 45 evrum fyrir nautasteik
og þótti dýrt.
Þetta eru litlir hlutir sem snúaað einstökum ferðalöngum.
Alvarlegri spurning er hvort land-
ið og náttúra þess þola þennan
ferðamannafjölda.
Það er of margt sem bendir tilað við séum að klúðra þessu
nýja „síldarævintýri“.“
Styrmir
Gunnarsson
Vaxandi velgengni
og hættumerki
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.7., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 12 léttskýjað
Akureyri 13 heiðskírt
Nuuk 13 léttskýjað
Þórshöfn 11 heiðskírt
Ósló 13 rigning
Kaupmannahöfn 16 alskýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Helsinki 18 skúrir
Lúxemborg 24 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 16 heiðskírt
Glasgow 14 alskýjað
London 25 heiðskírt
París 29 heiðskírt
Amsterdam 20 heiðskírt
Hamborg 18 skýjað
Berlín 21 alskýjað
Vín 24 léttskýjað
Moskva 28 léttskýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 36 heiðskírt
Barcelona 26 heiðskírt
Mallorca 26 heiðskírt
Róm 31 heiðskírt
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 22 heiðskírt
Montreal 17 rigning
New York 27 léttskýjað
Chicago 26 rigning
Orlando 29 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:56 23:13
ÍSAFJÖRÐUR 3:28 23:51
SIGLUFJÖRÐUR 3:09 23:36
DJÚPIVOGUR 3:18 22:51
Biskup Íslands hefur auglýst laus til
umsóknar þrjú prestsembætti.
Laust er embætti sóknarprests í
Laugarnesprestakalli, Reykjavík-
urprófastsdæmi vestra. Skipað verð-
ur í embættið frá 15. september 2016
til fimm ára. Núverandi sóknar-
prestur, sr. Kristín Þórunn Tómas-
dóttir, er að flytja til útlanda og hef-
ur sagt embættinu lausu.
Í Laugarnesprestakalli er ein
sókn, Laugarnessókn, með rúmlega
5.000 íbúa og eina kirkju, Laugar-
neskirkju.
Laugarnes-
prestakall er á
samstarfssvæði
með Áspresta-
kalli, Bústaða-
prestakalli,
Grensáspresta-
kalli og Lang-
holtsprestakalli.
Þá er laust til umsóknar embætti
prests í Grafarvogsprestskalli,
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Skipað er í embættið frá 1. septem-
ber 2016 til fimm ára. Sr. Guðrún
Karls Helgudóttir, sem gegndi emb-
ættinu, hefur tekið við embætti
sóknarprests við sömu kirkju.
Í Grafarvogsprestakalli er ein
sókn, Grafarvogssókn, með rúmlega
18.000 íbúa og eina kirkju, Grafar-
vogskirkju. Til viðbótar við starfs-
stöð safnaðarins í Grafarvogskirkju
er kirkjuselið í Spöng þar sem fram
fer fjölbreytt starf yfir vetrartím-
ann.
Grafarvogsprestakall er á sam-
starfssvæði með Grafarholtspresta-
kalli og Árbæjarprestakalli.
Þá hefur biskup auglýst laust til
umsóknar embætti prests í Vest-
mannaeyjaprestakalli, Suðurpró-
fastsdæmi. Skipað er í embættið frá
1. september 2016 til fimm ára.
Í Vestmannaeyjaprestakalli er ein
sókn, Ofanleitissókn, með rúmlega
4.000 íbúa og eina kirkju, Landa-
kirkju. Prestur safnaðarins er sr.
Ursula Árnadóttir. sisi@mbl.is
Þrjú prestsembætti auglýst
Laugarneskirkja
Vegagerðin hef-
ur opnað síðasta
hlutann af vegi
910, Dyngju-
fjallaleið, og um
leið hefur akst-
ursbanni verið
aflétt af slóðum
í Dyngju-
fjalladal.
Þar með hefur Vegagerðin opnað
alla hálendisvegi fyrir umferð, þ.e.
alla vegi með veganúmeri sem
Vegagerðin ber ábyrð á, samkvæmt
upplýsingum frá Ingibjörgu Daní-
elsdóttur hjá Umferðarþjónustu
Vegagerðarinnar.
Hún segir jafnframt að svokölluð
hálendiskort Vegagerðarinnar séu
unnin með tilliti til náttúruverndar
í samvinnu við aðra aðila, s.s. þjóð-
garða og landverði. Þess vegna séu
enn tvö skyggð svæði á kortinu þar
sem akstursbann er á ónúmeruðum
slóðum. Þarna er um að ræða ann-
ars vegar Stórasand og hins vegar
slóðann í Hrafntinnusker en hvort
tveggja ætti þó að opnast fljótlega,
segir Ingibjörg.
sisi@mbl.is
Búið að
opna alla
fjallvegi
Akstursbann enn á
ónúmeruðum slóðum
Komdu hreyfingu á loftið
Sími 555 3100 www.donna.is
gæðaviftur
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Gott úrval af
gæðaviftum frá
Honeywell. Margar
stærðir og gerðir.
Kr. 15.520
Kr. 13.598
Kr. 4.189
Kr. 8.658
Kr. 4.806
Kr. 4.806
Kr. 4.238