Morgunblaðið - 19.07.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Jóhannes Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs., segir það ekki vera
forgangsverkefni hjá fyrirtækinu að
setja upp flagg-
stangir á nýja
vagna Strætó bs.
en fyrirspurn
kom nýverið frá
fulltrúum Sjálf-
stæðisflokks í
borgarráði
Reykjavíkur
hvort ekki væri
ástæða til þess að
taka upp þann sið
að vagnar Strætó
flaggi á hátíðardögum.
Jóhannes segir að þetta sé ein-
faldlega of kostnaðarsamt. Gróflega
áætlað myndi uppsetning og kaup á
flaggstöngum, fánum og festingum
kosta um 7 milljónir króna, en engir
nýju vagnanna hjá Stætó eru með
slíkar flaggstangir.
„Við erum í eigu sex sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu, og erum auð-
vitað undir aðhaldi, eins og önnur
fyrirtæki í sveitarfélagarekstri. Við
teljum því ekkert lag vera fyrir
hendi að ráðast í slíkar fram-
kvæmdir,“ sagði Jóhannes í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Í minnisblaði sem Jóhannes tók
saman vegna fyrirspurnar borg-
arfulltrúanna kemur fram að auk
stofnkostnaðar upp á 7 milljónir
króna, komi til kostnaður vegna við-
halds og þess að setja flöggin á
vagnana.
Ekki sé gert ráð fyrir slíkum
kostnaði í samningum við verktaka
sem keyra á höfuðborgarsvæðinu,
auk þess sem reynslan hafi sýnt að
um 10% afföll verði á fánum við
hvern notkunardag og því þyrfti að
fjárfesta reglulega í fánum.
Jóhannes segir að svona fyr-
irspurn hafi komið fram reglulega í
borgarstjórn Reykjavíkur í gegnum
árin, því á tímabili Strætisvagna
Reykjavíkur hafi slíkar fánastangir
verið á vögnum SVR. En vagnar í
dag í eigu Strætó bs. hafi ekki verið
keyptir með slíkum útbúnaði og ekki
standi til að breyta því.
Ekki flaggað á vögnum Strætó
Morgunblaðið/Þórður
Strætó Ekki stendur til að setja flaggstangir á vagnana hjá Stætó bs. og er
bæði stofnkostnaður, viðhaldskostnaður og 10% afföll af fánum skýringin.
Kostnaðurinn
sagður of mikill
Jóhannes
Rúnarsson
Trjágróður hefur tekið vel við sér í
hlýindum undanfarinna ára. Nýlega
sögðum við frá því að til stæði að fella
tré í Öskjuhlíð í þágu flugstarfsem-
innar á vellinum. Borgin og Isavia
ætla að gefa sér sumarið til að fara
betur yfir stöðuna á trjánum í Öskju-
hlíð. Ekki er búið að tímasetja þær
aðgerðir en þær gætu orðið með
haustinu.
En vandamálið er ekki einskorðað
við Öskjuhlíðina, því trén í Hljóm-
skálagarðinum hafi vaxið svo mikið,
að þau eru farin að nálgast aðflugs-
línuna inn á norður/suður-flugbraut-
ina.
Í Hljómskálagarðinum snýst þetta
um örfáar aspir sem mögulega mætti
lækka en yrðu að öðrum kosti felldar
að sögn Þórólfs Jónssonar, deildar-
stjóra náttúru og garða hjá Reykja-
víkurborg.
Fram hefur komið hjá Árna Gunn-
arssyni, framkvæmdastjóra Flug-
félags Íslands, að hæð trjánna í
Öskjuhlíð hafi í einstaka tilfellum haft
áhrif á flutningsgetu flugvéla félags-
ins og ekki hafi verið hægt að taka
með alla farþega sem annars hefðu
farið í flugið. Þetta gerist sem betur
fer ekki oft, en við vissar aðstæður
skapi trén vandamál.
Trjárækt hófst í Öskjuhlíð um 1950
að frumkvæði borgaryfirvalda. Varla
hefur hvarflað að frumkvöðlunum þá
að trén ættu eftir að hafa áhrif á flug-
starfsemina á Reykjavíkurflugvelli
áratugum síðar. sisi@mbl.is.
Aspir farnar að trufla flugumferð
Trén í Hljómskálagarðinum hafi vaxið svo mikið að þau eru farin að nálgast aðflugslínuna inn á norð-
ur/suður-flugbrautina Örfáar aspir sem mögulega mætti lækka en yrðu að öðrum kosti felldar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugbrautin Aspirnar í Hljómskálagarðinum blasa við þegar horft er þangað af norður-suður flugbraut Reykjavíkurflugvallar. Aðflugsljós í forgrunni.
„Við erum á leið með málið fyrir
gerðardóm og sendum héraðsdómi
Reykjaness bréf þess efnis í dag,“
sagði Sigurður Ragnarsson, forstjóri
ÍAV, við mbl.is í gær. Fyrirtækið
lagði niður störf við byggingu kís-
ilvers í Helguvík fyrir United Silicon
í síðustu viku vegna vanefnda sem
ÍAV segir að nemi allt að milljarði
króna.
Gerðardómurinn er samnings-
bundinn en Sigurður segir United
Silicon ekki hafa sinnt því að skipa
sinn fulltrúa í dóminn.
„Gerðardómur er þannig að hvor
aðilinn um sig skipar einn mann og
þeir koma sér saman um þriðja
manninn sem er oddamaður. Við er-
um búnir að skipa okkar mann fyrir
nokkru síðan en þeir hafa ekki sinnt
þessu eða sýnt vilja til að koma þessu
áfram. Þá höfum við það úrræði að
við getum snúið okkur til héraðs-
dóms um að hann skipi þriðja mann,“
sagði Sigurður.
ÍAV er nú að pakka saman starf-
semi sinni í Helguvík. „Það sem er að
gerast núna er að við erum að halda
áfram að taka saman okkar hafur-
task. Við erum að fjarlægja vinnu-
búðir og koma okkur í burtu,“ segir
Sigurður. bmo@mbl.is
ÍAV fer með meintar
vanefndir í gerðardóm
Héraðsdómur beðinn að skipa þriðja mann í gerðardóm
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Helguvík ÍAV er hætt að vinna að
byggingu United Silicon í Helguvík.
Undanfarin tvö ár hefur orðið vart
við rottur í efri byggðum höfuð-
borgarsvæðisins, það er í Breið-
holti og Árbæ. Þetta segir Guð-
mundur Björnsson, rekstrarstjóri
meindýravarna Reykjavík-
urborgar.
„Lengi vel var þetta þannig að
rottur sáust hvorki í Breiðholti né
Árbæ. En ætli það séu ekki tvö ár
síðan maður fór að heyra af þessu.
Þá voru bilaðar lagnir uppi í Árbæ
og líka í Neðra-Breiðholtinu, og
menn voru að mynda lagnirnar, og
þá sáu þeir í dýr,“ segir Guð-
mundur.
Ástand lagna skiptir máli í þessu
sambandi. Séu þær í lagi verði
menn ekki varir við meindýrin.
„Þetta getur verið þarna niðri
án þess að það nái að komast upp á
yfirborðið. Í þessum nýju hverfum
eiga lagnir að vera það góðar að
þær eiga ekki að geta komist þar
út, þó þær hafi kannski komið sér
fyrir í lögnunum,“ segir Guð-
mundur. sh@mbl.is
Farið að bera á rott-
um austan Elliðaáa
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Þurrkur í augum?
Thealozaugndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
Ég var mjög slæm af augnþurrki án þess að gera mér grein
fyrir því. Þar sem ég var með nóg af tárum datt mér ekki
í hug að tengja það við aunþurrk. Alltaf með lekandi tár í
kulda, og smá vind. Systir mín ráðlagi mér að prufa Thealoz
því hún hafði mjög góða reynslu af þeim. Eiginlega bara
strax varð ég allt önnur og er hætt að vera með táraflóð og
finna fyrir þessari sandtilfinningu.
Erla Óskarsdóttir