Morgunblaðið - 19.07.2016, Blaðsíða 12
Getty Images/iStockphoto
Í útlöndum er ekkert
skjól - eða hvað?
Íslendingar hafa margir
hverjir ferðast til landa nær
og fjær á eigin vegum sem og
undir leiðsögn fararstjóra.
Efalítið koma flestir heim
með upplifun og ferðasögur í
farteskinu. Fjórir fararstjórar
segja sínar farir ekki sléttar.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Þeir sem stunda útivist finnavel fyrir jákvæðum áhrifumþess að vera úti í náttúrunni
og anda að sér fersku lofti. Vitin
fyllast ilmi af gróðri og þorstanum
er svalað með fersku fjallavatni.
Það er sælutilfinning að standa á
tindinum eftir erfiðið og njóta út-
sýnisins. Þessar tilfinningar og
fleiri upplifir mannfólkið þegar það
kemur út í náttúruna.
Að vera úti í náttúrulegu um-
hverfi hefur áhrif á fólk, bæði lík-
amlega og andlega.
Skilningarvitin vakna og við för-
um að taka eftir hlutum í umhverf-
inu sem við tókum ekki eftir áður.
Hugsanirnar frelsast frá hvers-
dagslegu amstri og einbeitingin
miðast við stað og stund.
Margir finna fyrir róandi áhrif-
um náttúrunnar á taugarnar og
ákveðin streitulosun á sér stað.
Eftir að inn er komið er jafnvel
auðveldara að slaka á og takast svo
á við þau verkefni sem bíða.
En það er ekki þannig að maður
verði að vera stórkostlegur fjalla-
garpur til þess að stunda útivist.
Útivist er fyrir alla, hver og einn
þarf að finna sína leið og sínar for-
sendur fyrir útivistinni. Það þarf
ekki að fara langt til þess að njóta
náttúrunnar sem landið hefur upp á
að bjóða. Gönguferðir um fjöruna,
almenningsgarða eða önnur nálæg
útivistarsvæði eru tilvaldar til að
komast í snertingu við náttúrulegt
umhverfi og njóta útiveru. Það
Útivist fyrir alla
Starfsfólk á fjölskyldutjaldsvæðinu við Úlfljótsvatn gefur góð ráð fyrir útileguna
Útivist hressir, bætir og kætir
Gaman úti Það er ekki bara gaman að fara út í náttúruna við og við, það
hefur líka góð áhrif á sál og líkama.
Skátahornið
Inga Ævarsdóttir
1.Fyrsta ferð mín til útlanda var sem fimm ára pjakkur aðheimsækja ættingja í Kaupmannahöfn. Í raun er ótrúlegt
hve margt situr manni í minni þótt svo langt sé um liðið, einmitt
vegna þess að þetta var eitthvað nýtt fyrir manni. Frá sjálfum
ferðadeginum man ég t.d. hve flugstöðin gamla í Keflavík var
þunglyndisleg, þegar gengið var um borð í Boeing-727 vél Flug-
leiða undir stélinu og hve veitingarnar um borð voru veglegar
(ljósár frá því sem nú þekkist!). Svo þurfti að millilenda í Glas-
gow áleiðis til Danmerkur.
2.Berlín, Buenos Aires, Barcelona, Bombay … og þetta erubara bé-in. Í raun þyrfti viðkomandi samfélag fyrst og
fremst að virka örvandi á skilningarvitin, auka í senn víðsýni og
þekkingu. Fyrstnefnda borgin hefur ákveðna sérstöðu en það
land sem hefur djúpstæðust áhrif á mig er Indland. Og það er
mín reynsla að á við um marga Íslendinga, enginn verður sam-
ur að koma þangað.
3.Fyrir átta árum var ég í fararstjórateymi með alls 240 Ís-lendinga í Kína. Ég man að hópnum var raðað niður á sex
rútur og Kínverjarnir sem aðstoðuðu okkur á vettvangi ráku
upp stór augu þegar ég benti þeim á að í þessum bifreiðum
væru samankomin tæplega 0,1% íslensku þjóðarinnar. Í miðri
ferðinni var okkur tilkynnt að síðasta áfangastaðnum, Tíbet,
hefði verið lokað fyrir ferðamenn og buðum við í staðinn upp á
siglingu á ánni Yangtze. Með í för var Árni Johnsen og að sjálf-
sögðu vopnaður gítar og gleymi ég aldrei hvernig glumdi í
gljúfrum árdalsins þegar Íslendingar sungu fullum rómi um
kartöflugarðana í Þykkvabænum!
4.Næsta ferð er á vegum ferðaskrifstofunnar Farvel til Ind-lands í lok september. Farið verður yfir „gullna þríhyrn-
inginn“ Delhi, Agra og Jaipur og svo endað í hinni stórkostlegu
Varanasi. Verður einstök upplifun!
Pétur Hrafn Árnason
sagnfræðingur og fararstjóri
Enginn samur
eftir Indland
– með morgunkaffinu
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
1.
2.
3.
4.
Hvað fannst þér skemmtilegast og/eða
leiðinlegast í fyrstu ferð þinni til útlanda?
Ef þú þyrftir að búa annars staðar en á
Íslandi, hvaða land væri þitt fyrsta val?
Hefur þú lent í óheppilegum uppákomum
á ferðum þínum með Íslendinga?
Hvert er ferð þinni heitið?
STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS
Verð
1.990.000 kr.
án vsk.
1.605.000 kr.
Til á lager
Sportman® 570 EPS