Morgunblaðið - 19.07.2016, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
BAKSVIÐ
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Árlegur leiðangur vísindamanna til
Surtseyjar hófst í gær undir forystu
Borgþórs Magnússonar, plöntuvist-
fræðings hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands. Leiðangurinn stendur fram
á föstudag en hópinn skipa sjö vís-
indamenn, þar af tveir prófessorar
frá háskólum í Svíþjóð.
Með í för var Þórdís V. Bragadótt-
ir, sérfræðingur Umhverfisstofnunar
á sviði náttúru.
Þegar Morgunblaðið náði sam-
bandi við Þórdísi í gær var hún á leið
um borð í þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar, sem ferjaði hana ásamt hópn-
um til Surtseyjar. Að hennar sögn er
misjafnt eftir árum hvort notast sé
við þyrlu eða bát til ferðarinnar.
„Það fer í raun eftir því hvaða
fararskjóti er tiltækur,“ segir Þórdís.
Ævar vísindamaður tekur upp
Auk hennar og vísindamannanna
verða einnig í eynni tveir sjálf-
boðaliðar á vegum Surtseyjarfélags-
ins, í þeim tilgangi að hreinsa rusl úr
fjörum hennar. Þá munu starfsmenn
Veðurstofunnar sömuleiðis koma þar
við í vikunni, til að sinna reglulegu
viðhaldi veðurstöðvar og vefmynda-
vélar sem þar eru.
Því til viðbótar mun Ævar Þór
Benediktsson fara ásamt tökuliði út í
eyjuna í september, til að taka upp
efni fyrir sjónvarpsþáttinn Ævar vís-
indamann.
Ljóst er því að einhver fjöldi fólks
mun leggja leið sína um eyjuna í ár.
Að sögn Þórdísar er fjöldinn þó svip-
aður og verið hefur síðustu árin.
Ekkert salerni að finna í eynni
Strangar reglur gilda um klæðnað
og farangur þess fólks sem sækir
Surtsey heim, svo landnám og þróun
lífs eigi sér stað án tilstuðlan manns-
ins. Þórdís segir að þeim sé venju
samkvæmt framfylgt í þaula.
„Fólk þarf náttúrulega að þrífa vel
allan fatnað og búnað áður en farið er
út í eyju, til að koma í veg fyrir að það
flytji með sér lífverur og plöntuleif-
ar.“
Umhverfisstofnun gefur út sérstök
fararleyfi fyrir þá sem hafa hug á að
skoða Surtsey. Athygli vekur að þar
er þess getið að óheimilt sé að
„vökva“ plöntur í Surtsey, þar sem
þvag virki sem áburður og geti þann-
ig haft áhrif á vöxt gróðurs.
Þá er þess ávallt getið, við veitingu
leyfanna, að ekkert salerni sé að
finna í eyjunni og því þurfi gestir að
gera viðeigandi ráðstafanir.
„Það passar,“ segir Þórdís létt í
bragði, spurð um þetta atriði. Þá seg-
ir hún það ekki hafa verið til umræðu
að koma upp varanlegri salern-
isaðstöðu á eyjunni, sem nýst gæti
þeim sem þangað kæmu.
„Það þyrfti náttúrulega að tæma
það og það er ekki hægt, nema það sé
hreinlega tæmt uppi á landi.“
Ferðafólk getur þó tekið með sér
ferðasalerni, en þá gildir slíkt hið
sama, flytja þarf það aftur upp á land
að loknum leiðangrinum, með öllu því
sem til hefur fallið.
„Alltaf gaman að komast út“
Þórdís hefur undanfarin fimm ár
haft umsjón með hópum sem heim-
sækja Surtsey.
„Þetta er hluti af sumarrútínunni
hjá mér. Það er að minnsta kosti ein
ferð út í Surtsey á hverju ári og mér
finnst alltaf gaman að komast þarna
út,“ segir Þórdís og bætir við að
breytingar megi sjá í hvert sinn.
„Hafið er alltaf að brjóta af eyjunni
og móta tangann á nýjan leik.
Strandlínan breytist því alltaf ár frá
ári.“
Alltaf megi þó finna þar kyrrð og
ró, og enn fremur engan hávaða af
mannavöldum.
„Maður hlustar á garg mávanna í
varpinu og dyninn í öldunum sem
falla á tanganum. Svo fer maður nið-
ur í gígana þar sem ríkir algjört logn
og þú heyrir ekki einu sinni niðinn í
vindinum.“
Hópur fólks gistir Surtsey
Sjö vísindamenn verða í eynni til föstudags auk umsjónarmanns, tveggja
starfsmanna Veðurstofu og tveggja sjálfboðaliða Bannað að „vökva“ gróður
Ljósmynd/Þórdís V. Bragadóttir
Pálsbær Hópurinn sem fór á síðasta ári út í eyjuna, á 50 ára afmæli friðlýsingar hennar, til að sinna nauðsynlegu
viðhaldi á Pálsbæ. Húsið hýsir þá sem heimsækja eyjuna en Surtseyjarfélagið hafði umsjón með verkinu.
Ljósmynd/Borgþór Magnússon
Rusl Frá norðurtanga eyjarinnar í júlí árið 2014. Tveir sjálfboðaliðar verða
í eynni fram á föstudag til að tína rusl sem rekið hefur á fjörur hennar.
Sumarið 1969 starfaði Ágúst
Bjarnason hjá Surtseyjarfélag-
inu við að fylgjast með land-
námi plantna í Surtsey. Fyrir
rúmu ári upplýsti hann um atvik
sem þá kom upp en legið hafði í
þagnargildi alla tíð.
Í grein Ágústs kveðst hann
hafa fengið skilaboð þetta sum-
ar um að fundist hefði sér-
kennileg planta í Surtsey og að
hann skyldi hraða för sinni út í
eyna. „Ég fann plöntuna eftir
skamma leit. Miðað við fyrri lýs-
ingu hafði hún vaxið ótrúlega
hratt. Fyrst stóð ég agndofa yfir
þessari sérkennilegu plöntuteg-
und, sem minnti frekast á kart-
öflugras. Ég beygði mig niður
og velti frá tveimur hraun-
hellum, sem lágu upp að plönt-
unni hvor sínu megin.
Þar undir var einkennileg
hrúka, sem var mjög lin, þegar
potað var í hana. Allt í einu varð
mér ljóst, hvað þarna var á ferð.
Einhver hafði gengið örna
sinna undir hraunsnefi í skjóli
fyrir suðaustanáttinni og upp úr
saurnum óx þessi fagurlega
tómatplanta, um 15 sm á hæð.“
Mokaði hann þá öllu upp í
plastpoka og hnýtti vandlega
fyrir. Ekkert mætti jú spilla
náttúrulegu landnámi.
Sérkennileg
planta fannst
ÓNÁTTÚRULEGT LANDNÁM
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
RENAULT MASTER DCI100 L2H2
nýskr. 2013, eknir +/- 50 þ.km, diesel (101 hö), 6 gíra. Fjarstýrðar samlæsingar, bakkskynjarar, armpúði,
hliðarklæðning. L=555cm, B=207cm, H250cm. Verð 3,0mkr. + vskFJÓRIRMEISTARAR
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
„Ég get ekki neitað því að auðvitað
er ánægjulegt að finna að maður
hefur stuðning og það gildir einu
hvort maður er í stjórnmálum eða
annars staðar, stuðningur er alltaf
hjartfólginn,“ segir Elliði Vignisson,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, en
stuðningsmenn hans létu gera könn-
un sem sýndi að hann nyti meiri
stuðnings meðal sjálfstæðismanna í
efsta sæti listans í Suðurkjördæmi
en núverandi oddviti flokksins,
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra.
Elliði segist ekki hafa tekið
ákvörðun um hvort hann bjóði sig
fram í næstu þingkosningum, en
þrýstingurinn aukist með niðurstöðu
svona könnunar. Niðurstöðu geti
verið að vænta á Þjóðhátíð í Eyjum.
Maskína gerði könnunina á netinu
og úrtakið var 529 kjósendur í
Suðurkjördæmi. Spurt var annars
vegar hvort fólk vildi að Elliði eða
Ragnheiður leiði lista flokksins í
næstu kosningum. Hins vegar var
spurt hvort fólk væri líklegra eða
ólíklegra til að kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn ef Elliði leiddi listann en
ekki Ragnheiður.
Prófkjörið skiptir mestu
Samkvæmt niðurstöðunum vildi
61% þeirra sem afstöðu tóku að El-
liði myndi leiða listann og 67,5% að-
spurðra voru líklegri til að kjósa
flokkinn ef Elliði væri oddviti.
Ragnheiður Elín sagði á mbl.is í
gær að menn notuðu mismunandi
aðferðir til að koma sér í umræðuna.
Prófkjör flokksins væri sú könnun
sem mestu máli skipti.
Elliði
Vignisson
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Nýtur meiri
stuðnings
en ráðherra
Elliði hefur ekki
gert upp hug sinn
Björgunarskipið Gunnar Friðriks-
son sótti slasaðan ferðamann í
Aðalvík á Hornströndum síðdegis í
gær. Ferðamaðurinn var með
höfuðáverka eftir fall og var hann
fluttur til Ísafjarðar til aðhlynn-
ingar.
Þetta kom fram í frétta-
tilkynningu frá Landsbjörgu en
frekari upplýsingar lágu ekki fyrir
í gærkvöldi um líðan mannsins.
Ferðamaður féll
á Hornströndum