Morgunblaðið - 19.07.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
WOW air flaug sitt fyrsta flug til
Edinborgar í fyrradag. Flogið verð-
ur til borgarinnar tvisvar í viku, á
miðvikudögum og sunnudögum, út
október.
Í fréttatilkynningu frá WOW air
er haft eftir Skúla Mogensen, stofn-
anda og forstjóra fyrirtækisins, að
hann sé afar ánægður með þessa
viðbót við áfangastaði WOW air,
sem nálgist nú þriðja tuginn. „Þessi
borg hefur heillað margan ferða-
manninn í gegnum tíðina enda ein-
kennist hún bæði af litríkri menn-
ingu og einkar gestrisnu fólki,“
segir Skúli í tilkynningunni.
Þar er einnig haft eftir Gordon
Dewar, framkvæmdastjóra Edin-
borgarflugvallar, að Ísland sé
áfangastaður sem njóti síaukinna
vinsælda meðal skoskra ferða-
manna.
Skoskur sekkjapípuleikari í full-
um skrúða tók á móti farþegum úr
jómfrúarfluginu og spilaði skosk
þjóðlög.
WOW air
flýgur til
Edinborgar
Enn bætist í hóp
hátt í 30 áfangastaða
Ljósmynd/Wow air
Í Edinborg Skoskur sekkjapípuleik-
ari tók á móti flugvél WOW air.
Í almennu umferðareftirliti við
Hvolsvöll síðastliðinn laugardag
stöðvaði lögreglan á Suðurlandi
ökumann fólksbíls, en ástæða þótti
til að kanna hvort farþegi í bílnum
væri með fíkniefni. Hann leyfði leit
á sér og í vasa hans fannst lítið
súkkulaðiegg sem innihélt hvítt
duft sem grunur lék á að væri fíkni-
efni. Efnið var haldlagt og verður
sent í rannsókn.
Maðurinn var yfirheyrður og lát-
inn laus að því loknu.
Með meint fíkniefni
inni í súkkulaðieggi
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
Hjá okkur færð þú ótrúlegt úrval af hágæða þýsku
harðparketi frá Parador, Krono Original og Meister.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Þýskt harðparket
GÆÐI ALLA LEIÐ
Þrjú kynferðisbrot voru kærð til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu um síðustu helgi.
Þetta staðfesti Árni Þór Sig-
mundsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn, í samtali við mbl.is í
gær, en gat ekki veitt upplýsingar
um hvers eðlis málin eru.
Að sögn Árna voru málin öll
kærð og sagði hann þau nú vera í
rannsókn.
Þrjú kynferðisbrot
kærð um helgina
„Íslenski fjárhundurinn er þjóðar-
arfur sem okkur ber að varðveita,“
segir Herdís Hallmarsdóttir, for-
maður Hundaræktarfélags Íslands,
en í gær var Dagur íslenska fjár-
hundsins haldinn hátíðlegur í fyrsta
sinn víðsvegar um land.
Þegar kom að því að ákveða dag-
setningu þessarar hátíðar var fæð-
ingardagur Íslandsvinarins sir
Marks Watson, sem fæddist 18. júlí
1906, fyrir valinu, en hann er talinn
hafa bjargað íslenska fjárhundakyn-
inu frá því að deyja út. Á árunum
1955 til 1960 lét Watson safna saman
nokkrum íslenskum hundum, flutti
þá úr landi og hreinræktaði erlend-
is. Er talið að ef ekki hefði verið fyr-
ir þetta framtak hefði kynið getað
dáið út með öllu. „Við eigum honum
því mikið að þakka,“ segir Herdís.
Meðal þess sem fram fór á hátíð-
inni var málþing í Þjóðminjasafni Ís-
lands, en einnig gengu íslenskir fjár-
hundar og eigendur þeirra um hina
ýmsu staði á landinu, m.a. í kringum
Tjörnina í Reykjavík og um miðbæi
Akureyrar og Ísafjarðar.
Haldið var upp á
dag fjárhundsins
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hvuttar Íslenski fjárhundurinn þykir mörgum snoppufríður, en þessi hópur gekk í kringum Tjörnina í Reykjavík.