Morgunblaðið - 19.07.2016, Síða 16
16 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Alls voru 12.888 sjónvörp flutt inn
til landsins á fyrstu fimm mánuðum
ársins, að því er fram kemur í tölum
sem Arion banki hefur sett fram og
byggðar eru á upplýsingum frá
Hagstofunni. Til samanburðar voru
6.590 sjónvörp
flutt inn árið
2012. Hins vegar
voru 18.323 sjón-
vörp flutt inn á
fyrstu 5 mánuð-
um ársins í fyrra.
Sé litið til inn-
flutnings á
þvottavélum voru
9.599 vélar flutt-
ar inn fyrstu
fimm mánuði ársins. Fyrstu 5 mán-
uði ársins 2012 voru 4.486 þvotta-
vélar fluttar inn til landsins. Á hinn
bóginn voru 10.458 vélar fluttar inn
fyrstu fimm mánuðina í fyrra.
Veruleg auking frá 2012
Þegar kemur að innflutningi kæli-
og frystitækja til heimilisnota voru
samtals 8.675 slík tæki flutt inn
fyrstu fimm mánuði ársins. Á sama
tímabili 2012 voru innflutt tæki
4.908. Hins vegar voru 9.192 tæki
flutt inn á fyrstu 5 mánuðum ársins
í fyrra.
Í samantekt Arion banka kemur
einnig fram að 108 almenningsbílar
hafi verið fluttir til landsins fyrstu 5
mánuði ársins en til samanburðar
voru almenningsbílar 58 sem fluttir
voru inn fyrstu fimm mánuðina
2012.
Stefán Broddi Guðjónsson, for-
stöðumaður greiningardeildar Arion
banka, bendir á að jafnvel þótt
framangreind raftæki séu almennt
ætluð til heimilisnota sé hluti þeirra
tæki sem eru nýtt í atvinnustarf-
semi. Þannig rati hluti innflutnings
á sjónvörpum inn á hótelherbergi.
„Ef litið er á almenningsbíla til
dæmis, þá eru þeir atvinnutæki til
að skapa gjaldeyristekjur með því
að flytja erlenda ferðamenn. Í
reynd verður þá halli á vöruskiptum
við að flytja inn almenningsbifreið
sem síðan er notuð af erlendum
ferðamönnum sem greiða fyrir
þjónustuna með kortinu sínu. Þann-
ig verður til þjónustuútflutningur á
móti og gjaldeyristekjur verða til,“
segir Stefán.
Hann segir að ef horft er á vöru-
skiptatölur sérstaklega, sé margt af
þeim vörum sem fluttar eru inn
nýttar í gjaldeyrisskapandi starf-
semi. Morgunblaðið hefur undanfar-
ið fjallað um aukinn innflutning bif-
reiða. Stefán Broddi segir
mikilvægt að horfa á hvernig aukinn
innflutningur er fjármagnaður. Stór
hluti aukins bifreiðainnflutnings sé
vegna aukinna umsvifa í bílaleig-
ustarfsemi hér á landi. Þeir bílar
skili gjaldeyristekjum á meðan þeir
eru í rekstri.
„Ég hef ekki stórar áhyggjur af
vöruinnflutningi til landsins um
þessar mundir. Á móti honum kem-
ur verulegur þjónustuútflutningur
sem fjármagnar þennan innflutning
á vörum og gott betur,“ segir hann.
„Atvinnulífið þarf einfaldlega á heil-
miklum vöruinnflutningi að halda til
að viðhalda og skapa útflutnings-
tækifæri.“
Meira flutt inn af húsgögnum
Í nýlegri samantekt Rannsókn-
arseturs verslunarinnar kveður við
sambærilegan tón. Þar segir að
mest aukning í júnímánuði hafi ver-
ið í flokki húsgagna, eða 40,7%
meira en á sama tíma og í fyrra
miðað við fast verðlag. Ekki er
óvarlegt að ætla að einhver hluti
þeirra húsgagna hafi verið til að út-
búa hótel og gistirými.
Í samantektinni kemur jafnframt
fram að söluaukning í svonefndum
brúnum raftækjum, þar á meðal
sjónvörpum, hafi í júní numið 32%
frá júní í fyrra, miðað við fast verð-
lag. Minni vöxtur var í veltu ann-
arra raftækja.
Brún raftæki eru samkvæmt
hefðbundinni flokkun sjónvörp, út-
vörp og tónspilarar af ýmsum toga.
Eru þau nefnd brún til aðgreiningar
frá hvítum raftækjum, sem eru þá
ísskápar, frystar og þess háttar.
Tekjuskapandi innflutningur
Morgunblaðið/Ómar
Raftæki Mörg þeirra rata í gististarfsemi og auka þannig gjaldeyristekjur.
Hluti innfluttra sjónvarpa og raftækja nýtt í gististarfsemi Ekki ástæða til að
hafa áhyggjur af vöruinnflutningi að mati sérfræðings hjá Arion- banka
Vöruskiptajöfnuður
» Mismunurinn á andvirði út-
fluttra og innfluttra vara til og
frá landinu á ákveðnu tímabili.
» Sé meira flutt út en inn er
mismunurinn jákvæður og tal-
að um afgang á vöruskiptum.
» Sé meira flutt inn en út er
hann neikvæður og talað um
halla á vöruskiptum.
Stefán Broddi
Guðjónsson
19. júlí 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.74 122.32 122.03
Sterlingspund 161.01 161.79 161.4
Kanadadalur 93.95 94.51 94.23
Dönsk króna 18.066 18.172 18.119
Norsk króna 14.366 14.45 14.408
Sænsk króna 14.206 14.29 14.248
Svissn. franki 123.68 124.38 124.03
Japanskt jen 1.1518 1.1586 1.1552
SDR 168.94 169.94 169.44
Evra 134.4 135.16 134.78
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.2789
Hrávöruverð
Gull 1326.15 ($/únsa)
Ál 1682.0 ($/tonn) LME
Hráolía 47.03 ($/fatið) Brent
Viðskiptabankarnir
þrír hafa ekki sömu
sýn á þróun verð-
lags á næstunni en
gera þó allir ráð fyr-
ir því að ársverð-
bólgan lækki enn
frekar undir 1,6%.
Landsbankinn birti
verðbólguspá sína í
gær og spáir að vísitala neysluverðs
lækki um 0,1% í júlí og að ársverð-
bólgan verði 1,4%. Áður hafði
Íslandsbanki birt spá um óbreytta
vísitölu neysluverðs og þar af leiðandi
1,5% verðbólgu síðastliðna 12 mán-
uði. Þá spáir Arion banki 0,2% lækk-
un verðlags og að ársverðbólga verði
1,2% í júlí. Hagstofan mun birta júlí-
mælingu vísitölu neysluverðs næst-
komandi föstudag, 22. júlí.
Spá minni
verðbólgu
Matvara Verðlag
helst stöðugt.
Verðbólguspár
bankanna 1,2%-1,4%
afhenda okkur ekki þessi gögn og
það vekur að sjálfsögðu spurn-
ingar. Við viljum til dæmis fá að
vita hvort allir þeir sem tóku þátt í
síðari hluta ferlisins hafi einnig tek-
ið þátt í fyrsta hluta samkeppn-
innar. Við viljum sjá gögn því til
staðfestingar og hvað var boðið,“
segir Aðalheiður.
Kaffitár hefur frest fram á föstu-
dag til að óska eftir því við sýslu-
mann að frekari gögn verði afhent.
Aðalheiður segir að þess verði kraf-
ist. ses@mbl.is
Í gögnum þeim sem Isavia boðsendi
Kaffitári fyrir helgi í aðdraganda
þess að Sýslumaðurinn á höfuð-
borgarsvæðinu gerði aðför að þeim
er ekki að finna þau gögn sem
varða fyrsta hluta forvals sem fram
fór í tengslum við úthlutun rekstr-
arleyfa til veitingastaða og versl-
ana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þetta staðfestir Aðalheiður Héðins-
dóttir, forstjóri og eigandi Kaffi-
társ.
„Í kjölfar sjö úrskurða og tveggja
ára baráttu hefur Isavia ákveðið að
Fengu ekki öll
gögnin frá Isavia
Vilja vita hverjir tóku þátt frá upphafi
Morgunblaðið/Golli
Úrskurður Héraðsdómur Reykjavíkur skikkaði Isavia til að afhenda gögnin.
Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646
Opið virka daga kl. 10-18,
ÚTSALA