Morgunblaðið - 19.07.2016, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Það eru margar ástæður fyrir því
að þetta valdarán mistókst,“ sagði
Ziva Meral, stjórnmálaskýrandi á
BBC.
Á föstudagskvöldið virðist sem til-
raun hafi verið gerð til að ræna völd-
um í Tyrklandi en það misheppnast.
Talið er að hátt í þrjú hundruð
manns hafi fallið við þessa
valdaránstilraun sem var barin
harkalega til baka og hermönnum
sem tóku þátt í henni hent fram af
brúm og þeir hengdir á götum úti.
Lélegur undirbúningur
Að mati Ziva Marel eru nokkrar
aðalástæður fyrir því að valdaránið
mistókst.
-Enginn undirbúningur að því að
virkja almennan stuðning var gerð
fyrir þessa tilraun. Fyrri valdarán
sem hafa heppnast hafa verið undir-
búin í gegnum fjölmiðla eða almenn
mótmæli.
-Þá voru ekki margir hermenn
sem tóku þátt í valdaránstilrauninni.
Þá sem grunar að sjálfur forseti
Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan,
hafi staðið að baki þessu benda á að
svo virðist sem aðeins um hundrað
hermenn hafi tekið þátt í þessari til-
raun. En fulltrúar stjórnvalda segja
að hermennirnir hafi verið mun
fleiri en það.
-Stjórnsýslan var ekki tilbúin í
valdarán. Það er hægt að ná yfirráð-
um yfir stjórnarráði eða stjórnar-
byggingu með hervaldi en ef stjórn-
sýslan spilar ekki með þá getur það
verið lítils virði að ráða byggingu.
-Enginn alþjóðlegur stuðningur
var við þessa valdaránstilraun sem
virtist koma öllum öðrum þjóðum í
opna skjöldu. Mjög fljótt komu
stuðningsyfirlýsingar við lýðræðis-
lega kjörna stjórn Erdogan.
-Svo hefur verið bent á að ekki
hafi það hjálpað til fyrir valdaráns-
mennina að þeir lýstu því yfir að
þeir vildu styrkja lýðræðið í landinu
en gerðu árás á þingið.
Afleiðingar valdaráns-
tilraunarinnar í Tyrklandi
Nú þegar hefur Erdogan hand-
tekið yfir 8.000 manns í stjórnkerf-
inu, ekki aðeins úr hernum heldur
yfir 2.700 dómara landsins sem vek-
ur nokkra furðu.
„Það að svona margir dómarar
hafi verið reknir eða teknir höndum
vekur ákveðna furðu,“ sagði tyrk-
neski blaðamaðurinn Yusuf Kanli í
viðtali á Al-Jazeera í gær. „Hver eru
tengslin þar á milli að nokkur
hundruð hermenn sýni af sér ofbeldi
og að 2.700 dómurum sé vikið úr
starfi? Það hefur enginn hjá stjórn-
völdum sagt frá því eða skýrt það.
Þessar aðgerðir líta ekki út fyrir að
vera lýðræðislegar enda ekki hægt
samkvæmt lögum að víkja dómurum
í hæstarétti úr starfi án þess að það
sé gert af sjálfum hæstaréttardóm-
urunum.“
Valdarán eða sviðsetning?
Það hefur vakið furðu að tyrknesk
yfirvöld hafi strax á laugardags-
morgun, nokkrum klukkutímum eft-
ir valdaránstilraunina, verið komin
af stað til að hreinsa út óæskileg öfl
úr stjórnkerfinu. Ekki einhverja
nokkra, heldur þúsundir manna.
Það ýtir undir þær vangaveltur að
þessi listi yfir óæskilega menn í
stjórnkerfinu hafi verið skrifaður
fyrir langa löngu, en ekki á nokkr-
um klukkustundum yfir þessa ör-
lagaríku nótt.
Þær kenningar hafa verið viðrað-
ar af mjög mörgum Tyrkjum á sam-
félagsmiðlunum. Sérstaklega þeim
Tyrkjum sem búa í Þýskalandi og
þurfa ekki að óttast ofsóknir út á orð
sín.
Þá þykir sérdeilis furðulegt að
orrustuþotur sem áttu að vera undir
stjórn uppreisnarmanna hafi ekki
skotið niður flugvél forsetans með
hann innanborðs þegar valdaránið
átti sér stað. Fréttir af þessum at-
burðum eru allar enn þá nokkuð
óljósar.
Gulenistar að baki tilrauninni?
Að sögn Erdogans var predikar-
inn Fethullah Gulen að baki valda-
ránstilrauninni.
Erdogan og Gulen voru mjög nán-
ir og lýsir Raziye Akkoc hjá AFP-
fréttaveitunni sambandi þeirra til að
byrja með í lok síðustu aldar sem
hálfgerðu hjónabandi. Svo hafi tog-
streitan á milli þeirra orðið svo mikil
að hún hafi orðið lýðræði landsins
hættuleg.
Báðir voru mjög hallir undir
trúarbrögðin og ekki eins miklir
veraldarhyggjumenn og Ataturk,
stofnandi lýðveldisins Tyrklands,
var.
Að mati margra stjórnmálaskýr-
enda virðist sem Erdogan hafi orðið
um og ó með hvað Gulen var orðinn
vinsæll og skorið á vináttuböndin.
Gulenistar í Tyrklandi voru farnir
að verða ansi áhrifamiklir.
Gulen óttaðist handtöku hersins
og flúði Tyrkland fyrir síðustu alda-
mót. Hann hefur búið í Bandaríkj-
unum síðan þá.
Erdogan krefst framsals á Gulen.
Hinsvegar fullyrðir Gulen að
valdaránstilraunin sé sviðsett af Er-
dogan til að hann geti styrkt stöðu
sína. Hvað svo sem er satt í fullyrð-
ingum þeirra er ljóst að Erdogan er
að styrkja stöðu sína verulega í
landinu.
AFP
Jarðarför Þeir sem féllu fyrir hönd valdaránsmanna í Tyrklandi um helgina eru nú upphafnir sem hetjur.
Valdabaráttan er
að ná hámarki
Var valdaránstilraunin í Tyrklandi sviðsett?
Árið 1933 í Þýskalandi, þegar Hitler
var nýkominn til valda í lýðræð-
islegum kosningum, var kveikt í
þinghúsi landsins, Reichstag, og yf-
irvöld brugðust mjög harkalega við
og kenndu kommúnistum um. Sagn-
fræðingar dagsins í dag telja að það
hafi verið upplognar sakir. Hitler
nýtti sér þetta til að gerast í fram-
haldinu einræðisherra.
Enginn veit nákvæmlega hvað er í gangi í Tyrklandi eða hvað gerðist en
það er ákveðinn ótti um að í framhaldinu muni Erdogan hreinsa út það
fólk sem hefur andmælt honum og koma sér í stöðu sem jafngildir sæti
einræðisherra. Í það minnsta eru yfirvöld nú þegar búin að hreinsa þús-
undir manna úr stjórnkerfinu og hafa gefið í skyn að fleiri fái að fjúka á
næstu dögum. Árum saman hefur Erdogan þrengt að frjálsum fjölmiðlum
í landinu og því mun örugglega ekki linna í framhaldi af þessu.
Hreinsanir í stjórnkerfinu
ÁSTANDIÐ Í TYRKLANDI
Lögregluríki Menn óttast einræði.
Eftir því var
tekið að óvenju-
margir
öldungadeildar-
þingmenn Repú-
blikanaflokksins
láta sig vanta á
landsþing
flokksins sem
hófst í gær. Af
flestum er sú
fjarvera túlkuð sem þögul mót-
mæli við útnefningu Donald J.
Trump sem er nánast öruggt að
verði niðurstaða þingsins. Trump
mun tefla fram mörgum hetjum
hersins á landsþinginu, sérsveit-
armönnum og fyrrverandi herfor-
ingja.
Þá mun Melania Trump einnig
koma fram en hún var ekki áber-
andi í prófkjörsbaráttunni en hún
er hönnuður, fyrrverandi fyr-
irsæta, talar fjöldamörg tungumál,
fæddist og ólst upp í fyrrverandi
Júgóslavíu eða í borginni Sevnica
sem er í austurhluta núverandi
Slóveníu. borkur@mbl.is
Melania Trump
Kona Trump kemur fram á landsþinginu
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Glæsilegir sólskálar sem lengja sumarið
og gera sælureitinn ómótstæðilegan
Yfir 40 litir í boði!
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Sólskálar
- sælureitur innan seilingar
Maður vopnaður exi og hnífi réðst á
lestarfarþega nálægt Würzburg í
Þýskalandi í gærkvöldi. Þrír særðust
alvarlega, einn meiddist minna og 14
fengu áfall, að sögn fréttavefjar
Spiegel. Lögreglan skaut árásar-
manninn til bana, 17 ára flóttamann.
Vitni sögðu hann hafa hrópað „Al-
lahu Akbar“, eða „Guð er máttugur“
er hann réðist að fólki. Lestin var
stöðvuð í Würzburg-Heidingsfeld
þar sem árásarmaðurinn fór úr lest-
inni. Liðsmenn úr sérsveit lögregl-
unnar, sem voru fyrir tilviljun í ná-
grenninu, eltu manninn uppi. Hann
snerist gegn þeim með vopnin reidd
og var þá skotinn. Að sögn Reuters
sagði Joachim Herrmann, innanrík-
isráðherra Bæjaralands, flótta-
manninn hafa búið í Ochsenfurt.
Axarmaður réðst
á lestarfarþega
17 ára flóttamaður skotinn til bana
AFP
Þýskaland Frá vettvangi í gær.