Morgunblaðið - 19.07.2016, Side 23
legt að hafa þau nálægt og geta
leitað til þeirra og fyrir það er ég
ævinlega þakklát. Þó samveru-
stundum hafi fækkað hin síðari ár
þá voru það alltaf gæðastundir
sem við munum minnast með hlý-
hug alla tíð.
Þótt sólin nú skíni á grænni grundu,
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varstu kölluð á örskammri
stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og
góða,
svo gestrisin, einlæg og hlý.
En örlög þín ráðin – mig setur hljóða,
við hittumst ei framar á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó komin sért yfir í aðra heima,
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Höf. ók.)
Við vottum Margréti og fjöl-
skyldu hennar okkar dýpstu sam-
úð.
Camilla Ólafsdóttir
og fjölskylda.
Í dag kveð ég frænda minn
Gumma Jón.
Það var mér alltaf mikið til-
hlökkunarefni að fara vestur til
afa og ömmu á sumrin. Fyrir
borgarbarnið var ómetanlegt að
komast í snertingu við sveitina og
sjávarlífið. Gummi Jón var stór
hluti af þessari upplifun, hann sex
árum eldri var þessi „stóri
frændi“ sem maður leit upp til. Ég
fékk að deila herbergi með honum
og við sváfum út á sunnudögum.
Ég fékk að nota leikföngin hans,
bátinn, lyftarann og meira að
segja flotta DBS-hjólið með ban-
anahnakknum og gírstönginni.
Allt hans dót var eins og nýkomið
úr búðinni og ég fékk skýr skila-
boð um hvernig átti að umgangast
dótið. Það var oft komið við í
smiðjunni og Gummi Jón þá
gjarnan heimsóttur, rölt saman í
hádegismat og spiluð mylla á eftir.
Gummi Jón hafði stórt hjarta,
stutt í glens og gaman en gat líka
stundum verið harður í horn að
taka. Takk fyrir allt, Gummi, ég
kveð þig með söknuði.
Margréti og fjölskyldu votta ég
samúð mína.
Kveðja,
Matthías Jónasson.
Erfitt er að hugsa sér tilveruna
án Guðmundar Jóns vinar míns.
Við kynntumst haustið 1975.
Báðir að byrja í Menntaskólanum
á Ísafirði og vinsælustu plöturnar
Night at the Opera með Queen og
One of these Nights með Eagles.
Jón Baldvin og Bryndís réðu ríkj-
um og lífið var tekið hæfilega al-
varlega. Það var strax ljóst að við
Guðmundur yrðum vinir og á inn-
an við hálftíma höfðum við stofnað
hljómsveit. Guðmundur var fá-
dæma músíkalskur; liðtækur
bassaleikari og góður tenór (aðal-
söngvari). Hljómsveitin lifði í
rúmt ár og náði að „krúsa“ við hóf-
legan orðstír um Vestfirði sumar-
ið 1976. Líklegt er að við höfum
skemmt okkur best sjálfir.
Menntaskólaárin voru frábær tími
og Guðmundur áberandi innan
skólans, en hann var meðal annars
formaður nemendafélagsins.
Strax á öðru ári í menntaskóla
kynntist hann Margréti sinni og
var öllum ljóst hvert stefndi. Í
hartnær fjörutíu ár hafa þau verið
elskuvinir og miklir félagar og er
missir hennar mikill.
Eftir framhaldsnám lágu leiðir
okkar aftur saman og vorum við
Margrét kona mín í góðu sam-
bandi við þau hjónin. Samveru-
stundirnar voru einstaklega
skemmtilegar. Þar stendur þó
upp úr heimsókn til þeirra á æsku-
heimili Guðmundar á Þingeyri,
sem fengið hefur að halda sér nær
óbreytt. Skoðunarferð í smiðju
föður hans, þar sem tíminn hefur
einnig staðið í stað og ökuferð um
eyrina í Saab 1970 árgerð. „Sexari
að hætti Dýrfirðinga“ fylgdi í kjöl-
farið, gamlar vínylplötur voru
settar á plötuspilara og Guðmund-
ur í essinu sínu.
Fyrir tæpum þrjátíu árum
stofnuðum við nokkrir félagar úr
menntaskóla veiðifélag sem fer til
árlegra stangveiða. Fyrir valinu
verða yfirleitt veiðilitlar ár þannig
að ekki þurfa menn að hafa sam-
viskubit þó veiðin sé ekki alltaf í
forgangi en því meiri áhersla á
mat, drykk og að njóta samver-
unnar. Þrátt fyrir það höfum við
aldrei komið fisklausir. Fé-
lagsskapur Guðmundar í þessum
ferðum hefur verið óborganlegur,
skopskyn hans og frásagnargáfa
hafa notið sín til fulls og oft haldið
fyrir okkur vöku.
Guðmundur Jón var einstakur
maður og stórbrotin persóna.
Hann var í senn húmoristi, alvöru-
gefinn, foringi, nákvæmur, stór-
skemmtilegur og góður félagi.
Hann gerði miklar kröfur til sjálfs
sín og annarra. Hann hafði sterk-
ar skoðanir á mönnum og málefn-
um og mjög áhugasamur um þjóð-
mál almennt. Hann lá ekki á
skoðunum sínum. Fjarri fór að við
værum alltafa sammála og tók-
umst við oft hressilega á án þess
að það kæmi niður á vináttu okk-
ar.
Umfram allt var Guðmundur
mikill fjölskyldumaður – Margrét,
synirnir Matthías og Henrý og
fjölskyldur þeirra voru honum
allt.
Nú er skarð fyrir skildi og er
Guðmundar sárt saknað. Við Mar-
grét erum þakklát fyrir samfylgd-
ina við Guðmund og vottum Mar-
gréti og fjölskyldunni okkar
dýpstu samúð.
Haukur Oddsson.
Mig langar í fáum orðum að
minnast Guðmundar Jóns Matt-
híassonar sem ég kynntist fyrir
um 15 árum þegar ég var að taka
mín fyrstu skref í atvinnurekstri.
Við Guðmundur hittumst á fundi
þar sem ýmis mál tengd málmiðn-
aði voru rædd. Við náðum strax
vel saman og því gladdi það mig
mikið þegar leiðir okkar lágu aftur
saman í félagsskap sem kennir sig
við RoundTable. Þeir eru ófáir
skemmtilegu fundirnir í Round-
Table í gegnum tíðina þar sem
Guðmundur fór alveg á kostum
með skemmtilegum sögum bæði
af sjálfum sér og öðrum.
Á ákveðinn hátt áttum við Guð-
mundur margt sameiginlegt og
þar má einna helst nefna mennt-
un, starfsframa og atvinnurekstur
en Guðmundur var meirihlutaeig-
andi í Optimar Ísland ehf. frá
árinu 2003 og starfaði hann þar
sem framkvæmdastjóri í meira en
20 ár. Fyrir utan RoundTable-
fundi héldum við Guðmundur allt-
af ákveðnu sambandi og verður
hittingurinn sem ég átti með hon-
um fyrir rétt rúmu ári mér æv-
inlega ofarlega í huga en þá settist
ég fyrir framan skrifborðið hjá
Guðmundi, hann stóð upp úr skrif-
borðsstólnum, lokaði hurðinni á
skrifstofunni, settist og sagði:
Freyr, ég var að greinast með ill-
vígt krabbamein. Þetta var erfið
stund enda þekki ég sjúkdóminn
af eigin raun. Mér er þó ofarlega í
huga æðruleysi Guðmundar og
hversu skipulagður sóknarleikur
hans var gangvart veikindunum.
Ég fylgdist mjög náið með Guð-
mundi síðasta árið enda hittumst
við reglulega til að ræða ýmis
rekstrarmál og vil ég með þessum
orðum mínum því þakka Guð-
mundi fyrir góðar stundir undan-
farin ár og um leið senda eigin-
konu, börnum, tengdabörnum og
barnabörnum mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Til þín, Guðmundur, þá þakka
ég góða vináttu og það traust sem
þú sýndir mér og nú veit ég að all-
ar þrautir þínar eru liðnar.
Freyr Friðriksson,
eigandi Optimar KAPP ehf.
Þegar góður vinur hverfur á
braut hverfur hluti af manni sjálf-
um. Það hafa vinir Guðmundar
Jóns Matthíassonar fundið þá
daga sem liðið hafa frá því að hann
kvaddi þetta jarðlíf.
Það var góður hópur ungmenna
sem hóf nám við Menntaskólann á
Ísafirði haustið 1975. Í þeim hópi
var myndarlegur drengur sem al-
inn var upp í háborg Dýrafjarðar,
Þingeyri. Þrátt fyrir fjölmargar
ferðir mínar til Þingeyrar í æsku
vissi ég ekki hver hann var þegar
þarna var komið. Hann sagðist
síðar ekki skilja það því þá hafi
hann verið á hátindi íþróttaferils
síns og hafði, að eigin sögn, nýver-
ið sigrað Jón Oddsson í sprett-
hlaupi á héraðsmóti HVÍ á Núpi.
Ég hef aldrei þorað að spyrja Jón
frænda minn að sannleiksgildi
sögunnar. Þessi litla saga Guð-
mundar Jóns lýsti honum hins
vegar mjög vel. Gamansamur og
átti ekki síst auðvelt með að gera
grín að sjálfum sér.
Gummi Jón tók námið af festu
eins og öll sín verk. Það kom hins
vegar ekki í veg fyrir að hann
næði árangri á öðrum sviðum.
Hann kom sér á brún heims-
frægðar á Vestfjörðum með spila-
mennsku í hinni víðfrægu skóla-
hljómsveit Melgrasi, sem náði
hápunkti frægðar sinnar með balli
í Birkimel á Barðaströnd. Mesta
afrekið hans var þó að á þessum
árum kynntist hann stúlkunni úr
Bolungarvík, Margréti, og þá varð
ekki aftur snúið.
Skömmu eftir að þessi hópur
hafði lokið námi hafði annar geng-
inn Dýrfirðingur, Guðmundur
Jónas, frumkvæði að því að kalla
nokkra þeirra saman til árlegra
veiðiferða. Þær ferðir hafa verið í
föstum skorðum í rúma þrjá ára-
tugi og þar átti Gummi Jón stóran
þátt. Vináttan dýpkaði og þessi
litli hópur hefur haldið þétt saman
og svo verður áfram þó fátæklegri
sé hópurinn sannarlega þegar
tveir þeirra eru nú horfnir á braut.
Veiðin sjálf var ekki aðalmálið
heldur samveran.
Það var öllum mikið áfall þegar
Gummi Jón greindist með þann
sjúkdóm sem nú hefur lagt hann
að velli. Hann tók því áfalli eins og
hverju öðru verkefni og leysti það
vel af hendi. Þar kom styrkur
hans best í ljós. Festa hans og
hraustleiki skapaði honum dýr-
mætan tíma sem hann nýtti vel.
Stappaði stálinu í okkur vini sína.
Hann lifði lífinu lifandi. Við sem
eftir stöndum minnumst hans
best með því að tileinka okkur lífs-
gildi hans.
Elsku Margrét, Matthías,
Henrý og aðrir aðstandendur
Guðmundar Jóns. Við Dagrún
sendum ykkur öllum innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning hans.
Halldór Jónsson.
„Kæru vinir, fundinum hefur
óvænt borist bréf.“ Guðmundur
Jón Matthíasson kvaddi sér hljóðs
á aðalfundi B í félagsskapnum Ro-
und Table 2. Guðmundur las fyrir
okkur þessi óvæntu bréf gaum-
gæfilega, enda voru þau oft á tíð-
um á erlendu tungumáli og ekki
hlaupið að því að þýða þau svo
innihaldið kæmist skammlaust til
skila. Þýðingar hans voru snilld-
arvel gerðar eins og raunar allt
það sem hann tók sér fyrir hend-
ur, og voru í þessum bréfum æv-
inlega góð tíðindi fyrir okkur fé-
lagana.
Það er erfitt að sjá á eftir Guð-
mundi Jóni félaga okkar þegar
hann er nú kallaður burt frá okkur
á besta aldri. Hjá okkur félögum
hans í Round table 2 sitja eftir
góðar minningar um góðan vin frá
þeim stundum sem við áttum með
honum á fjölmörgum fundum og
uppákomum.
Guðmundur var spaugsamur
og hafði næma kímnigáfu sem
hann notaði óspart okkur til mik-
illar ánægju. Hann var fastur fyrir
á sínum skoðunum sem hann hafði
miklar á málefnum líðandi stund-
ar og var ekki maður mikilla mála-
miðlana.
„Þrumuferðir “ sem við fé-
lagarnir fórum saman í voru
margar ógleymanlegar og átti
Guðmundur Jón drjúgan þátt í því
að gera þær eftirminnilegar.
Ógleymanlegt er t.d. þegar hann
skipaði þeim sem höfðu verið að
matbúa með honum í einni þrumu-
ferðinni að fara fram í borðsal og
bíða matarins, hann og Jónas
skyldu bera fram matinn svo eftir
væri tekið. Þegar sósan sem ég
hafði nostrað við að gera í tvo tíma
var borin fram „sjálflýsandi græn
á litinn“, kannaðist hann ekkert
við hvað hafði gerst með sósuna á
leiðinni úr eldhúsinu.
Ég veit að ég mæli fyrir hönd
okkar félaga hans í Round Table 2
að það voru forréttindi að fá að
kynnast Guðmundi Jóni og eiga
hann sem félaga, fyrir það ber að
þakka.
Guð styrki Margréti og synina í
þeirri sorg sem það er að missa
góðan eiginmann og föður.
Pálmar Þórisson.
Ég lít á það sem forréttindi að
hafa fengið að vinna með Guð-
mundi Jóni í 22 ár. Það var ein-
staklega gott að vinna með hon-
um, hann var traustur,
skipulagður og hafði mikla leið-
togahæfileika, en var jafnframt
skemmtilegur og félagslyndur og
var umhugað að halda góðum fé-
lagsanda innan fyrirtækisins.
Guðmundur var véltæknifræðing-
ur að mennt og lagði gífurlega
mikinn metnað í að skila allri
vinnu með fagmannlegum vinnu-
brögðum.
Það var mikið áfall þegar Guð-
mundur greindist með krabba-
mein í byrjun síðasta árs og ljóst
var að meinið var búið að breiðast
víða um líkamann. Guðmundur
tókst á við sjúkdóminn af miklu
æðruleysi og yfirvegun og það lýs-
ir Guðmundi vel að hann fór strax
að vinna að málum sem hann vildi
ljúka af á meðan hann hefði orku
og heilsu til, bæði gagnvart fjöl-
skyldu sinni og fyrirtæki, alltaf
jafn skipulagður.
Ég sendi innilegar samúðar-
kveðjur til fjölskyldu Guðmundar,
þeirra missir er mikill.
Guðmund kveð ég með söknuði
og þakka samfylgdina.
Valgerður Jónsdóttir.
Fallinn er frá langt fyrir aldur
fram vinur okkar og félagi Guð-
mundur Jón. Á hugann leita góðar
minningar um frábæran dreng.
Man það eins og gerst hefði í gær
þegar fyrir u.þ.b. 30 árum leiðir
okkar lágu fyrst saman er ég réð
hann sem framkvæmdastjóra hjá
Kværner á Íslandi. Betri mann
hefði ég ekki getað fengið í brúna
á þeim tíma. Guðmundur átti síðar
eftir að eignast fyrirtækið ásamt
samstarfsmönnum og þar byggði
hann upp mjög öflugt fyrirtæki í
þjónustu við sjávarútveg.
Á þeim tíma voru oft farnar
vinnuferðir til Noregs með hóp
manna á sýningar og var Guð-
mundur alltaf hrókur alls fagnað-
ar og hélt langar tölur án undir-
búnings hvort heldur var á
skandinavísku eða íslensku, en ár-
angurinn var alltaf sá sami. Menn
sem á hlustuðu emjuðu úr hlátri
því það var enginn betri en Guð-
mundur þegar að kom að húmor.
Hann var alger snillingur á því
sviði. Hárbeittur og markviss
húmor var hans sérsvið og það var
endalaust gaman að hlusta á hann
segja sögur af mönnum og mál-
efnum. Það var alltaf gaman að
vera í kringum Guðmund Jón.
Guðmundur var alltaf mjög
stoltur af uppruna sínum á Þing-
eyri og ein minnisstæðasta stund
okkar saman var þegar hann
sýndi okkur fyrir nokkrum árum
vélsmiðju afa síns á Þingeyri sem
var að mig minnir ein fyrsta vél-
smiðja á Íslandi og er allur upp-
runalegi tækjabúnaðurinn þar
enn fyrir hendi og virkar vel.
Virkilega gaman að sjá.
Guðmundar verður sárt saknað
af stórum hópi vina og vanda-
manna, en mestur er auðvitað
missir frú Margrétar og strák-
anna. Sendum við þeim innilegar
samúðarkveðjur. Megi minning
Guðmundar Jóns Matthíassonar
lengi lifa.
Elvar Guðjónsson,
Guðrún Lilja Rúnarsdóttir.
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
✝ Valgarð BirkirGuðmundsson
fæddist í Gilhaga í
Lýtingsstaða-
hreppi, Skagafirði,
13. október 1936.
Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á
Sauðárkróki 9. júlí
2016.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Zhopanías Eiríksson frá Vill-
inganesi í Skagafirði, f. 21. nóv-
ember 1903, d. 7. apríl 1988, og
Ingibjörg Steinvör Hrólfsdóttir
frá Ábæ í Skagafirði, f. 2. októ-
ber 1910, d. 1. maí 2001.
Valgarð var næstelstur af sjö
systkinum. Elstur var Hjörtur, f.
15. ágúst 1930, d. 2. október
2002, Guðrún Fanney, f. 1. febr-
úar 1941, d. 29. ágúst 2010, El-
ínborg, f. 23. maí 1946, d. 9.
ágúst 2015, Hrólfur Birgir, f. 31.
mars 1948, d. 19. desember
1973, Sveinn, f. 25. júlí 1949,
Amalía Sigrún, f. 15. júní 1949.
Valgarð giftist Rut Valdi-
marsdóttur árið 1961. Börn
þeirra eru: Gunnar
Valgarðsson, f. 27.
júlí 1961, maki hans
er Sigríður Kristín
Jónsdóttir. Valdi-
mar Valgarðsson, f.
12. maí 1963. Sig-
urjón Valgarðsson,
f. 7. júlí 1968, maki
Bogdís Una Her-
mannsdóttir. Hrólf-
ur Birgir Valgarðs-
son, f. 10. janúar
1974, d. 28. júlí 1976, og Guð-
björg Ósk Valgarðsdóttir, f. 22.
júní 1975, maki Jakob Ein-
arsson.
Sveitin, sveitastörfin og fjöl-
skyldan áttu hug hans allan, sér-
staklega hafði hann gaman af
sauðfé og hrossum. Hann var
glöggur á allar skepnur hvort
sem það voru hans eigin eða
annarra. Valgarð og Rut bjuggu
lengst af í Tunguhlíð í Lýtings-
staðahreppi, síðustu árin bjuggu
þau á Hólmagrund 24 á Sauð-
árkrók.
Útförin fer fram frá Mæli-
fellskirkju í dag, 19. júlí 2016,
kl. 14.
Roskin hjón bregða búi og
flytja „á mölina“. Það þykir ekki
stór frétt. En þegar þau Rut og
Valgarð hættu búskap og fluttu
„út á Krók“ voru það tíðindi í göt-
unni okkar. Það var lán að fá þau
að nágrönnum. En tími Valgarðs
var naumt skammtaður og því
horfum við nú með söknuði á eftir
honum, til æðri heima. Þar er
hann laus úr viðjum síns erfiða
sjúkdóms. Það er huggun.
Nú er sætið hans autt og við
höfum því margs að sakna. Kímn-
in í augnaráðinu, hárfíni húmor-
inn, góðlátleg glettnin, bros og
notalegt spjall um lífið í sveitinni,
menn og málefni yfir kaffi og
meðlæti sem þau Rut höfðu ætíð
á reiðum höndum og veittu af
rausn.
Valgarð var góður granni og
aldrei bar nokkurn skugga á
samskipti okkar. Við minnumst
góðu stundanna og þökkum heils
hugar fyrir góð kynni og vináttu
liðinna ára. Rut, börnum þeirra
og fjölskyldum sendum við inni-
legar samúðarkveðjur.
Ingunn og Bragi.
Valgarð Birkir
Guðmundsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
vegna fráfalls elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS MAGNÚSSONAR
hæstaréttarlögmanns,
sem jarðsunginn var frá Dómkirkjunni í
Reykjavík 12. júlí sl.
.
Laufey Sólmundsdóttir,
Magnús Björn Jónsson, Kristín V. Sveinsdóttir,
Ellert Már Jónsson, Hildur Ríkarðsdóttir,
Ágúst Már Jónsson, Guðný Rósa Þorvarðardóttir,
Sólmundur Már Jónsson, Halla Margrét Jóhannesdóttir,
Björn Már Jónsson, Melkorka Gunnarsdóttir,
Guðrún Rós Jónsdóttir, Jochen Kattoll,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐBJÖRG ÓLÍNA ÞÓRARINSDÓTTIR
(DIDDA),
Lautasmára 1, Kópavogi,
lést 13. júlí og verður jarðsungin frá
Digraneskirkju fimmtudaginn 21. júlí klukkan 15.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóð Karitas.
.
Helgi Kristján Gunnarsson, Linda Ósk Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.