Morgunblaðið - 19.07.2016, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Ég er komin í sumarfrí og er í bústað hjá tengdaforeldrum mín-um í Laugarási í Biskupstungum og hér er yndislegt að vera,“segir Helga Jóhanna Bjarnadóttir, efnaverkfræðingur og
sviðsstjóri umhverfissviðs hjá EFLU, en hún er fimmtug í dag. „Svo
var ég með smá gleðskap með fjölskyldunni og vinum mínum á föstu-
daginn, heima í Kársnesinu í Kópavogi í tilefni afmælisins.“
„Síðasta verkefnið sem ég sá um áður en ég fór í sumarfrí var að
vinna að vistvottun hönnunar á nýju sjúkrahóteli Landspítalans, en 22
starfsmenn vinna á mínu sviði að fjölbreyttum verkefnum. Við vorum
t.d. að senda frá okkur skýrslu um stöðu salernismála á ferðamanna-
stöðum fyrir Stjórnstöð ferðamála.“
Skíðin taka mikinn hluta af tíma fjölskyldunnar en börnin hafa öll
æft skíði með skíðadeild Ármanns. „Frá því að snjórinn kemur og þar
til hann fer þá er alltaf farið á skíði og við förum líka oft í skíðaferðir
erlendis. Þegar því linnir stunda ég útivist og fer í gönguferðir. Við
maðurinn minn og yngsti sonurinn erum að fara í fimm daga ferð á
Hornstrandir ásamt frændfólki en mig hefur lengi langað að fara
þangað, en ég hef komið á Hesteyri.“
Eiginmaður Helgu er Kristján Börkur Einarsson, verkfræðingur
og rekstrarráðgjafi hjá Intellecta. Börn þeirra eru Bjarki Viðar, 21
árs, sem er búinn með eitt ár í hugbúnaðarverkfræði. „Þetta er mikil
verkfræðifjölskylda en bróðir minn, pabbi og afi eru allir verkfræð-
ingar.“ Næst kemur Margrét Kristín, 17 ára, nemi í MR, og Arnar
Ágúst, 14 ára. „Svo erum við með einn hund í fjölskyldunni.“
Fjölskyldan Við fermingu Arnars Ágústs í fyrra.
Á leið í fimm daga
ferð á Hornstrandir
Helga Jóhanna Bjarnadóttir er fimmtug
Á
rni fæddist í Ási, á
Hverfisgötu 35 í Hafn-
arfirði, þann 19.7. 1946
en þar bjuggu Guðfinna
Sigurðardóttir, föður-
systir hans, og Björn Árnason vöru-
bílstjóri. Það heimili varð honum
mjög kært. Sex ára fór Árni í sveit á
Bjólu,Vesturbæ, til Einars Stefáns-
sonar og Ragnheiðar Jónsdóttur. Þar
var hann á hverju sumri í sex ár er
hann varð messagutti 12 ára, á Hval
2. Hann varð háseti á Hval 7, 14 ára,
en alls urðu árin á hvalbátunum sjö
hjá Friðbert Elí Gíslasyni skipstjóra
og Sigursveini Þórðarsyni fyrsta
stýrimanni, báðum öndvegis-
mönnum.
Leiðin lá í MR og þaðan minnist
Árni margra góðra félaga og kennara
en aðeins einn kennari verður nefnd-
ur. Það er Ólafur Hansson sögukenn-
ari. Á Bjólu voru fornsögur við hönd-
ina til lestrar en Ólafur opnaði augu
Árna fyrir heimsbókmenntunum. Við
tók svo nám í byggingarverkfræði
hér heima og síðan í Svíþjóð og Dan-
mörku. Við tækniháskólann í Kaup-
mannahöfn kenndi ungur verkfræð-
ingur sem átti eftir að stýra Árna á
mjög sérstaka verkfræðibraut sem
ekki er kennd í skólum. Það var Júl-
íus Sólnes verkfræðingur, síðar pró-
fessor og ráðherra, sem var ritari
nefndar sem rannsakaði mastrabrot í
háspennulínu frá Búrfelli. Meistara-
verkefni Árna var brot á mastri við
Hvítá 21.12. 1972 og fyrir það fékk
hann hæstu einkunn sem var veitt
það árið.
Árni starfaði á línudeild Lands-
virkjunar næstu fimm árin hjá verk-
fræðingunum Trygga Sigurbjarnar-
syni og Agnari Olsen. Hann stofnaði
þá verkfræðistofuna Línuhönnun
með hjálp Tryggva Sigurbjarnar-
sonar og Guðmundar Jónssonar sem
voru þá í forsvari fyrir verkfræðistof-
una Rafteikningu. Nokkru seinna
gerðist Ríkharður Kristjánsson
verkfræðingur hluthafi og seinna
Oddur Hjaltason tæknifræðingur.
Árni hætti sem framkvæmdastjóri
1996, þá fimmtugur, og Ríkharður
tók við, en Árni hafði þá tekið ákvörð-
un, er Línuhönnun stækkaði, að
vinna sem verkfræðingur en ekki
eingöngu við stjórnun. Hann hefur
verið með í hönnun allra háspennu-
lína hér á landi frá 1980 en hann er
frumkvöðull margra mastragerða
sem reistar hafa verið hér á landi
ásamt því að hafa unnið í fagi sínu við
verkefni í yfir 40 löndum.
Árið 2006 seldu þáverandi eig-
endur Línuhönnunar starfsmönnum
hlutafé og var það heillaspor fyrir
Árna. Hann var áfram stjórnar-
formaður Línuhönnunar þar til
EFLA var stofnuð með fleiri verk-
fræðifyrirtækjum 2008.
Þá undirbjó Árni gamlan draum
sinn um fyrirtæki sem safnaði saman
þekkingu þeirra sem væru að hætta
starfi í orkugeiranum vegna aldurs
en vildu sinna áfram hönnun á raf-
orkukerfum. Það sérhæfða fyrirtæki
stofnaði hann 2010 ásamt Rolv Geir
Knutsen, fyrrum tækniforstjóra
Statnett í Noregi, og heitir það ARA
Engineering og hefur skrifstofur í
þremur löndum og telur 25 starfs-
menn. Fyrstu 220 kV og 132 kV raf-
línur sem Íslendingar hanna í Afríku
voru reistar í fyrra í Tansaníu. Hönn-
unareftirlit á yfir 500 km langri
2x500 kV háspennulínu í Malasíu er
að ljúka. Hönnun nýrra tenginga á
mastri fyrir Landsnet verður kynnt á
alþjóðlegri ráðstefnu Cigre nú í
ágúst í París. Fyrirtækið hannar nú
400 kV jarðstrengi og 400 kV sæ-
strengi í Noregi.
Árni Björn hreifst ungur af skák-
listinni og seinna varð silungsveiði
hans helsta tómstundaiðja utan lestr-
ar bóka. Hann á góðar stundir á
bökkum Laxár í Þingeyjarsýslu, á
bökkum Grenlækjar í Landbroti og
við Hítará með fjölskyldu sinni og
vinum. Auk þess ferðast hann mikið
og safnar góðum vínum.
Árni Björn var einn af fyrstu nem-
endum á námskeiðum Jóns Böðvars-
sonar um fornsögur, sat í stjórn
Skáksambands Íslands og er nú end-
urskoðandi þeirra samtaka, félagi í
tveimur árnefndum SVFR og endur-
skoðandi þess félags, fyrrv. forseti
Rótarýklúbbs Kópavogs, félagi í Ár-
mönnum, félagi í lesklúbbi Sturl-
unga, félagi í vitringaklúbbi VFÍ og
handhafi heiðursmerkis VFÍ. Hann
Árni Björn Jónasson, verkfræðingur og framkvæmdastjóri – 70 ára
Á flakki um veröldina Árni og Guðrún hafa ferðast mikið. Auk þess hefur
hann haft gaman af skák og silungsveiði.
Starf að loknum hefð-
bundnum starfsferli
Bríet Eva Jóhannsdóttir, Sandra Ósk Halldórsdóttir, Katrín Ýr Einarsdóttir og
Nanna Hlín Þórsdóttir héldu tombólu fyrir utan Snælandsvídeó í Kópavogi og
söfnuðu 5.119 kr. sem þær gáfu Rauða krossinum til góðra verka.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Árin segja sitt1979-2016
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
)553 1620
Verið velkominn
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sínum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.