Morgunblaðið - 19.07.2016, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu aðfinnslur annarra ekki draga
þig niður. Mundu að þú þarft líka að hugsa
um sjálfa/n þig, annars hefur þú ekkert að
gefa öðrum.
20. apríl - 20. maí
Naut Hrapaðu ekki að neinu. Að draga sig al-
gerlega í hlé er ekki rétta leiðin. Sumt er
manni ekki gefið að skilja svo þú skalt ekki
einu sinni reyna það.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það þarf ekki meira en eina ást-
úðlega hugsun til þess að miðla orku ást-
arinnar í þínum heimi á ný. Ekki er víst að þú
sjáir árangur erfiðis þíns strax, en vertu viss,
það mun gerast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Til að ná árangri eða byrja í sambandi
er lykilatriði að vera reiðubúin/n. Eitthvað
gæti virst ábatasamara en það er í raun.
Farðu varlega, kapp er best með forsjá.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú leggur þig alla/n fram um að geta
staðið við gefin loforð. Einhver sækist eftir að
kynnast þér betur, láttu slag standa. Þér
hættir til að hafa of miklar áhyggjur af hlut-
unum, lifðu einn dag í einu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu ekki pirraður þótt þér finnist
ekkert ganga því ekki er allt sem sýnist. Við-
kvæmni er þér ekki að skapi. Liggðu ekki á
skoðunum þínum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er hætt við einhverjum ruglingi í
ástamálunum í dag. Þú heillast af drífandi
manneskjum. Láttu slag standa á útsölunum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er óþarfi að taka alla skap-
aða hluti bókstaflega því það kallar bara á
álag og örvæntingu. Þú ættir að verja meiri
tíma úti í náttúrunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er auðvelt að smitast af
ákafa annarra og fyllast óvenjumikilli bjart-
sýni á framtíðina um þessar mundir. Ekki er
allt gull sem glóir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þar sem þú ert á endalausum
þeytingi fyrir vinnuna, skaltu huga að þeim
sem heima sitja. Annríki og fjör á vel við þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú væri alveg kjörið að sinna við-
gerðum á heimilinu. Vinir þínir standa þétt
við bakið á þér. Ekki gleyma að sinna hugð-
arefnum þínum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú skalt hugsa þig vandlega um áður
en þú festir fé þitt í einhverju. Mundu að leita
til þeirra sem standa þér næst þegar þú þarft
þess með.
Ólafur Stefánsson er hér í heim-spekilegum hugleiðingum eft-
ir sumarsólstöður og dag tekið að
stytta:
Þið ráðið sjálf hvort
roknasögum trúið
lífið það er einatt
lævíst bæðı́ og snúið
svo náttlaust var í gær
núna er það búið.
Þessi vísa Sigrúnar Haralds-
dóttur er hnyttin: „Stúlka á mynd“:
Gelgjuleg með granna fingur,
giska kjánaleg,
var hún, þessi vitleysingur,
virkilega ég?
Og hreyfði við rómantíska
strengnum í Ólafi Stefánssyni:
Vonin björt eins og folald sem fæðist,
eða ferskur geisli í dagskímu læðist.
Svona er myndin af Sigrúnu ungu.
silfurljósku með skáldatungu.
Þannig blasti myndin við Gústa
Mar:
Minning lifir ljúf og sönn
liðnar stundir rísa.
Er Sigrún lék sér löng og grönn
léttfætt gelgjuskvísa.
Ég fékk gott bréf fyrir helgi þar
sem segir frá því að Hjálmar Jóns-
son hafi boðið góðvini sínum, Jóni
Steinari Gunnlaugssyni lögmanni,
að fara með sér golfhring á golf-
velli Odds í Garðabæ, en hann gat
ekki þekkst boðið. Hjálmar lét það
ekki aftra sér og mætti um morg-
uninn, en veður reyndust válynd.
Um hádegisbil sendi Hjálmar Jóni
Steinari þessa vísu:
Ekki tel ég yrði þar
eitthvert tjón.
Hellirigndi hvort sem var,
herra Jón.
Jón Steinar skrifaði seint á 20.
öldinni um þá réttarrannsókn sem
gerð var þegar Bólu-Hjálmar var
sakaður að ósekju um sauðaþjófn-
að. Jón Steinar sýndi fram á að
þetta hefðu verið sýndarrétt-
arhöld, enda fannst ekkert sak-
næmt. Samt sem áður var Bólu-
Hjálmar látinn greiða sak-
arkostnað. Séra Hjálmari rann
blóðið til skyldunnar og þakkaði
fyrir forföður sinn með þessari
vísu:
Lært þú hefur lagakverið
og léttir margra neyð.
Ó, að þú hefðir uppi verið
á öldinni sem leið!
Halldór Blönal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á golfvelli og hugleiðingar
eftir sumarsólstöður
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
ÉG KREFST
RÉTTINDA MINNA!
MEÐ SÚKKULAÐI-
SÍRÓPI!
SLAPPAÐU AF, HEPPNI EDDI! VIÐ EIGUM EKKI
AÐ BERJAST FYRR EN EFTIR AÐ MENNIRNIR
BORÐA MATINN SEM ÞÚ BJÓST TIL!
SEGÐU
ÞEIM ÞAÐ!
„ÓKEI – OG HVAÐ GERÐIST ÞÁ?“
„HÖFUM VIÐ VERIÐ GIFT Í 50 ÁR,
60 ÁR EÐA 70 ÁR?“
... allt það dásamlega
í einum pakka
oj Hræð
ilegt
Víkverji samgleðst hestamönnummeð glæsilega aðstöðu á Hólum í
Hjaltadal undir landsmót og kennslu
í hestamennsku. Ekki er annað að
heyra en að glymjandi gleði sé með
hvernig landsmótið tókst til og tekur
Víkverji undir hugmyndir heima-
manna um að Hólar verði gerðir að
þjóðarleikvangi íslenska hestsins.
x x x
Víkverji tekur einnig undir hvertorð í grein Guðna Ágústssonar,
sem birtist í Morgunblaðinu um
helgina, um að hefja Hólastað og há-
skólann þar til sóknar. Sagði Guðni
hestamenn loksins hafa eignast leik-
vang íslenska hestsins og hvatti hann
hestamenn, Hólamenn og Skagfirð-
inga að hefja undirbúning að nýrri
stefnumörkun um Hólastað.
x x x
Víkverji væri meira en til í að eigasæti í starfshópi um slíka stefnu-
mörkun, þó að hann hafi aðeins einu
sinni um ævina stigið á bak hesti, þá
eingöngu til að ná af því mynd og síð-
an var stigið á fasta jörð aftur. Mynd-
in er til innrömmuð og ber þess vitni
að sem betur fer lagði Víkverji ekki
hestamennsku fyrir sig.
x x x
En Víkverji er vanur ökumaður ogfagurkeri í umhverfismálum. Ef
hann fengi sæti í svona starfshópi
myndi hann mæta með fullmótaðar
tillögur á fyrsta fund um hvernig
mætti fegra umhverfi Hólastaðar.
Þannig mætti t.d. rífa gamla fjósið og
endurreisa það með nýju notagildi,
byggja nýja sundlaug, slá túnið í
kringum kirkjugarðinn, byggja yfir
fornleifauppgröftinn og koma þar
upp sýningu, fegra umhverfi nem-
endaíbúðanna og svo mætti lengi
telja.
x x x
Brýnasta verkefnið er hins vegar aðlagfæra veginn heim að Hólum.
Hann er hreint út sagt skelfilegur og
hæðóttari en Vatnsdalshólarnir, ekki
einu sinni hægt að drekka bauk á
leiðinni án þess að allt fari út um allt.
Með ólíkindum að Vegagerðin hafi
ekki lagfært veginn fyrir landsmótið.
Nú syngja menn hátt og snjallt í
Hjaltadal: Hoppum heim til Hóla! vík-
verji@mbl.is
Víkverji
„Þér skuluð ekki heldur láta kalla yð-
ur leiðtoga, því einn er leiðtogi yðar,
Kristur.“ (Matt. 23:10)
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
ÚTSALA!
20.490,-
14.343,-
5.990,-
4.493,-
9.990,-
6.993,-
7.490,-
5.992,-
13.900,-
10.493,-
-30% -25% -30%
-20%-25%
10%-50%
AFSLÁTT
UR