Morgunblaðið - 19.07.2016, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni Kex+KÍ-
TÓN verða haldnir annað kvöld á Kex hosteli
og munu Soffía Björg og Boogie Trouble
stíga þar á svið. Soffía Björg gaf út sitt fyrsta
smáskífulag „Back & Back Again“ síðastliðið
haust. Soffía Björg hefur nýlokið hljóðvers-
vinnu á komandi plötu með tónlistarfólkinu
Ingibjörgu Elsu, Kristofer Rodriguez og
Pétri Ben ásamt breska upptökustjóranum
Ben Hillier. Ben hefur komið víða við og hef-
ur unnið með nöfnum á borð við Blur, Suede,
Depeche Mode, Balthazar og Elbow svo
nokkur séu nefnd. Diskóboltana í Boogie
Trouble þarf vart að kynna en dansvænir tón-
ar sveitarinnar munu eflaust kitla iljar við-
staddra. Tónleikarnir verða í innri sal Kex,
Gym og Tonic-salnum svokallaða, og hefst
fjörið stundvíslega klukkan 21.
Soffía Björg og Boogie
Trouble á Kex
Skapandi Von er á nýrri hljómplötu frá Soffíu Björg.
Mynd- og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Berg
Sigmarsson kemur fram í Mengi í kvöld
klukkan 21 ásamt kanadísku hljóðlistakon-
unni crys cole. Sigtryggur Berg hefur ásamt
Helga Þórssyni verið meðlimur Still-
uppsteypu frá því hljómsveitin var stofnuð
árið 1990 og hefur síðan verið í framvarð-
arsveit íslenskrar raftónlistar- og til-
raunasenu, gefið út fjölda platna og komið
víða fram eins og segir í tilkynningu. Crys
cole hefur á undanförnum árum vakið mikla
athygli fyrir fíngerða og ofurnæma hljóðlist
sína og hljóðinnsetningar þar sem gælt er við
lágtíðni og hljóð á mörkum hins heyranlega.
Hún hefur m.a. sýnt og komið fram í Evrópu,
Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Japan og
Taílandi.
Ofurnæm hljóðlist í
Mengi í kvöld
Frumlegt Sigtryggur Berg kemur fram auk crys cole.
TWIN LIGHT gardínum
Betri birtustjórnun með
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
40 ára
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
Það getur ekki verið helbertilviljun að ástvinir Egils,sem er friðsamur eldhús-innréttingasmiður, óvirkur
alki og tónlistarmaður í hjáverkum,
fara skyndilega að týna tölunni.
Enda er það ekki svo, því dauðs-
föllin tengjast illri meðferð á tveim-
ur ungum drengjum í sjávarþorpi
fyrir mörgum áratugum og áratug-
um síðar koma ófyrirséðar afleið-
ingar þessa atburðar í ljós.
Í bók Ingva Þórs Kormákssonar,
Níunda sporið, er fjallað um morð,
ofbeldi og hefnd, en einnig íslensk-
an veruleika og flókin örlög. Hvern-
ig eitt getur leitt af öðru þangað til
út í ógöngur er komið og ekki verð-
ur aftur snúið.
Nafn bókarinnar er komið úr tólf
spora meðferðarfræðinni, sem m.a.
er notuð í meðferð við alkóhólisma.
Þar er níunda sporið spor fyrirgefn-
ingarinnar og þeir sem stíga þetta
spor hafa samband við þá sem þeir
hafa skaðað og bæta fyrir brot sín
og lagfæra þannig það sem úrskeið-
is fór í fortíð-
inni. Þetta
verður þó
ekkert sér-
stakt heilla-
spor fyrir Eg-
il, því þegar
hann tekur
þetta spor
hefur það ör-
lagaríkar af-
leiðingar sem
hann hefði
aldrei órað fyrir. Reyndar er áfeng-
issýki nokkuð fyrirferðarmikill þátt-
ur í bókinni og afleiðingum hennar
er lýst af talsverðu innsæi. Einna
bestu hlutar bókarinnar eru þar
sem fjallað er um ömurlegt ástand
Egils þar sem hann er illa kvalinn
af Bakkusi og einnig hvernig hann
þróar með sér áfengissýki í gegnum
tíðina.
Annars er hefndin gegnum-
gangandi þráður í bókinni og það
liggur síður en svo í augum uppi
hver hefnandinn er eða hvað honum
gengur til, því Ingva Þór tekst
ágætlega að villa um fyrir lesand-
anum, leiða hann um ýmsar króka-
leiðir og láta hann halda að einhver
allt annar sé að verki.
Þetta er fyrirtaks hugmynd að
glæpasögu og margt er prýðilega
gert í Níunda sporinu, en frásögnin
hefði að ósekju mátt vera hraðari og
markvissari, því sagan er ágæt og
hefði vel borið það.
Morgunblaðið/Eggert
Spenna Í bók Ingva Þórs er tekið á íslenskum veruleika og flóknum örlögum.
Ófyrirséðar
afleiðingar
Skáldsaga
Níunda sporið mnn
Eftir Ingva Þór Kormáksson.
Sögur útgáfa 2016. 333 blaðsíður.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR