Morgunblaðið - 19.07.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
» Listahátíð ungs fólksá Austurlandi, eða
LungA, náði hámarki
um helgina en þá settu
ungir listamenn svip
sinn á Seyðisfjörð og
kynntu fyrir bæj-
arbúum og ferðalöngum
uppskeru sína. Líkt og
sjá má á myndunum lék
veðrið við þátttakendur
sem höfðu í nægu að
snúast í listasmiðjum
hátíðarinnar.
Listsköpun í blíðskaparveðri á Seyðisfirði um helgina á Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, LungA
Ljósmynd/Pétur Kristjánsson
Söngur Þátttakendur undirbúa hér karókíverksmiðju, listasmiðju sem fólst
í karókítengdri gjörningalist hvers konar.
Litir Eins og sjá má hefur þetta hús verið málað með optískum skynvillum
enda hét ein listasmiðja hátíðarinnar Hús málað með optískum skynvillum.
Veðurguðir Veðurskilyrði voru hin bestu á Seyðisfirði í vikunni.
Listamenn Unnið var með form og liti á LungA og hér sjást listamenn
vinna að einu af mörgum verkum listahátíðarinnar um síðustu helgi.
Mála Sköpunargleðin var við völd hjá þátttakendum hvort sem um fíngerð-
ar penslastrokur, tónleika eða gjörningalist var að ræða.
Golden Globe-verðlaunahafinn Jó-
hann Jóhannsson tilkynnti í gær að
hljómplatan hans Orphée kæmi út
16. september næstkomandi en
þetta er fyrsta plata Jóhanns sem
hann gefur út fyrir hið virta út-
gáfufélag Deutsche Grammophon.
Á plötunni Orphée er farveg-
urinn sem leiðir mann frá myrkri til
ljóss í brennidepli og segir í til-
kynningu frá Jóhanni að hann sæki
andagift sína í frásagnir af gríska
goðinu Orfeifi, allt frá fornum ljóð-
um Óvidíusar til kvikmyndar Jean
Cocteau. Sagan er margþætt og
fjallar um dauða, endurfæðingu,
breytingar og hið hverfula eðli
minnisins. Orfeifur var guð ljóða og
söngva, sem gat fengið villidýr, tré
og steina til að dansa með söng og
lýruleik sínum. Hann giftist Evry-
díku og þegar hún féll skyndilega
frá fór hann niður í Myrkheim til að
endurheimta hana. Drottnari
undirheima leyfði honum það með
því skilyrði að hann mætti ekki líta
til baka, á Evrydíku, á leiðinni upp
úr undirheimum. Orfeifur stóðst
ekki prófið og glataði ástinni sinni í
annað sinn og fyrir fullt og allt.
Þá segir enn fremur í tilkynning-
unni að hljóðheimur plötunnar sæki
í marga fleti sem hafa komið fram á
fyrri plötum Jóhanns; sólóleik
sellós og orgels, strengjakvartetta
og strengjasveitir auk radda án
undirleiks. Hljóðpallíettan er fjöl-
breytileg, þar má finna órafmögn-
uð hljóðfæri, bæði ein síns liðs og í
samleik ásamt raftónlist og sefjandi
hljóðum stuttra rafsegulbylgna.
Ný plata frá
Jóhanni í haust
Deutsche Grammophon útgefandinn
Plata Jóhann Jóhannsson gefur út
plötu um miðjan september.
Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi.
Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is
THE INFILTRATOR 5, 8, 10:35
ÍSÖLD ÍSL.TAL 3:50, 5:50
MIKE AND DAVE 8, 10:10
INDEPENDENCE DAY 2 8
LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 3:50, 5:50
WARCRAFT 2D 10:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ