Morgunblaðið - 19.07.2016, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 201. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Hópurinn nauðgaði konunni aftur
2. Sex létust úr sjö manna fjölskyldu
3. Réðst að farþegum með öxi
4. Sagður hafa átt 73 ára gamlan …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Lagaflokkur Ingibjargar Azimu
Guðlaugsdóttur við ljóð Jakobínu
Sigurðardóttur í Garði verður fluttur á
tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar í kvöld klukkan 20.30. Viðburð-
urinn er hluti af sumartónleikaröð
safnsins þetta árið og ber yfirskriftina
Vorljóð á ýli. Á tónleikunum koma
fram Margrét Hrafnsdóttir sópran,
Gissur Páll Gissurarson tenór, Grímur
Helgason, klarínett, Ave Kara Sillaots,
harmónikka, Darri Mikaelsson, fagott,
Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir,
selló, og Gunnlaugur Torfi Stefánsson,
kontrabassi.
Morgunblaðið/Eggert
Vorljóð í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar
Á jazzkvöldi á Kex hostel í kvöld
kemur fram kvintett píanóleikarans
Árna Heiðars Karlssonar. Aðrir hljóð-
færaleikarar eru Ed Sarath á flygil-
horn, Joakim Berghall á saxófón,
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á
kontrabassa og Scott McLemore á
trommur.
Kvintettinn mun spila allt frá
þekktum djassstandördum yfir í
frumsamda tónlist. Ed Sarath, flygil-
horn, er prófessor í djasstónlist í Há-
skólanum í Ann Arbor í Michigan-ríki
í Bandaríkjunum og hefur komið víða
við á löngum ferli sínum og Joakim
Berghall, baritón- og sópransaxó-
fónn, er Íslendingum að góðu kunnur
eftir komu sína á Jazzhátíð Reykja-
víkur fyrir ári. Árna Heiðar píanóleik-
ara, Valdimar Kolbein
kontrabassaleikara,
og Scott trommu-
leikara þarf svo vart
að kynna enda Ís-
lendingum vel
kunnir.
Kvintett Árna Heið-
ars Karlssonar á Kex
Á miðvikudag Norðaustan 3-10 m/s. Dálítil rigning SA- og A-
lands, en annars skýjað með köflum, en léttskýjað N-og NV-til. Hiti
8 til 20 stig, hlýjast V-til.
Á fimmtudag Norðlæg átt, 3-10 m/s, hvassast NV-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Þykknar upp með rigningu S- og SA-lands
seint í dag. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast inn til landsins.
VEÐUR
„Hann gerir þá hluti sem
hann ætlar. Ég hef verið
lengi í þessum bransa og var
orðinn svolítið þreyttur. Ari
sparkaði mér af stað í haust
með því að benda mér á
þjálfara sem honum fannst
vitrænn – ungan breskan
þjálfara sem hafði lært hjá
einum virtasta núverandi
frjálsíþróttaþjálfara heims,“
segir þjálfari Ara Braga
Kárasonar, sprettharðasta
manns Íslands. »4
Sparkaði þjálf-
aranum af stað
Frammistaða U20 ára landsliðsins í
körfuknattleik karla í Evrópukeppn-
inni sem nú stendur yfir í Grikklandi
hefur vakið talsverða athygli. Sér-
staklega þar sem íslenska liðið lagði
Rússland að velli. „Það eru töluverð
tíðindi að Ísland vinni Rússland en
við höfum ekki
mætt þeim oft í
sögunni. Rúss-
land hefur
verið eitt af
sigursæl-
ustu liðum
Evrópu eft-
ir fall Sov-
étríkjanna,“
segir Friðrik
Ingi Rún-
arsson. »1
Töluverð tíðindi að sigra
Rússland í körfubolta
Víkingur skoraði tvö mörk í uppbótar-
tíma og tryggði sér með því sigur á
Þrótti í uppgjöri Reykjavíkurliðanna í
lokaleik fyrri umferðar Pepsi-deildar
karla í knattspyrnu í Fossvoginum í
gærkvöld. Allt stefndi í jafntefli þegar
varamaðurinn Óttar Magnús Karlsson
skoraði glæsilegt mark. Víkingur
komst upp í miðja deild en Þróttur sit-
ur eftir á botni deildarinnar. »3
Tvö Víkingsmörk í upp-
bótartíma gegn Þrótti
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Margrét Frímannsdóttir, fv. þing-
kona og forstöðumaður Litla-
Hrauns og Sogns, byrjaði að vinna
hjá Gróðrarstöðinni Storð í Kópa-
vogi í mars síðastliðnum. Margrét
er kunn fyrir áhuga sinn á garð-
yrkju og fór stundum þegar hún
var á þingi til vinnu hjá Gróðrar-
stöð Ingibjargar í Hveragerði til
að kúpla sig út, eins og hún segir
sjálf.
„Þetta er allt annað en það sem
ég hef verið að gera. Ég var búin
að vera í stjórnmálum og stjórn-
unarstöðum í yfir 30 ár og mér
fannst kominn tími á að hætta og
gera eitthvað annað. Horfa öðru-
vísi á lífið og ég sé ekki eftir því.
Þótt það hafi verið frábært að
vinna bæði á Litla-Hrauni og
Sogni, með því frábæra starfsfólki
sem er þar, þá taka þau störf sinn
toll,“ segir hún.
Margrét er ekki menntuð í garð-
yrkju en það þarf ekki að tala lengi
við hana um plöntur, garða eða
runna til að heyra að hún veit hvað
hún syngur. „Hún veit oft miklu
meira en við garðyrkjufræðing-
arnir,“ segir samstarfskona hennar
sem gengur inn í kaffistofu Storðs.
Sé alltaf eitthvað nýtt
„Ef ég væri aðeins yngri myndi
ég skella mér í Garðyrkjuskólann
þó að það sé mjög góður skóli að
vinna hér,“ segir Margrét. „Hér
fær maður góða leiðsögn. Eftir
vinnu fer ég heim í
garðinn minn.
Ég sé alltaf eitt-
hvað nýtt á hverju
sumri sem hægt er að
prófa eða gera. Mað-
ur er alltaf að búa
til pláss, færa til
og grúska.
Svo skoða
ég mikið, eins og í Lystigarðinum á
Akureyri eða hér á höfuðborgar-
svæðinu, og einnig frælista og jafn-
vel panta að utan. Það er alltaf
jafnspennandi að sjá hvað lifir á
vorin og hvernig hefur til tekist.“
Notaleg tilfinning
Margrét segist hlakka til að
mæta til vinnu á hverjum degi og
vakna upp með bros á vör. Áhuga-
málið sé orðið að vinnu og ábyrgð-
in sé minni en áður. Þá sé tíminn
sem hún geti nú nýtt með fjöl-
skyldunni dýrmætur. „Þetta er of-
boðslega notaleg tilfinning. Ég ræð
mér sjálf og get núna sinnt börn-
um og barnabörnum og fjölskyld-
unni mun meira en áður.“
Áhugamálið varð að vinnu
Grænir fingur
Margrétar
Frímannsdóttur
Morgunblaðið/Þórður
Möggubrá Margrét Frímannsdóttir fyrir framan svokallaða Möggubrá sem er glæsilegt sumarblóm. Nú er tíma
sumarblóma að ljúka og við tekur tími runna og trjáa sem Margrét og Gróðrarstöðin vita allt um.
„Við erum heppin með það að íslenskir garðyrkjubændur eru frábærir.
Þeir rækta góðar plöntur og eru ekki að selja fólki neitt rusl. Yfir höf-
uð þá eru garðyrkjubændur mjög vandaðir og leggja metnað sinn í
vöruna. Ég þekki vel til og það er metnaður að skila frá sér fyrsta
flokks vinnu, það er enginn afsláttur af því,“ segir Margrét sem líkar
vel að vinna í Gróðrarstöðinni Storð. „Hér er gott að vinna og ég held
að gróðrarstöð sé góður vinnustaður. Það eru engin illindi hér. Það er
tilhlökkun að mæta til vinnu á hverjum degi og ég er að gera núna
það sem mér finnst skemmtilegast. Það er heilmikil líkamsrækt að
vinna í gróðrarstöð því það er alltaf eitthvað að gera, hvort sem það
er að hlaupa um eða bera þung tré. Það er alltaf hægt að finna sér
eitthvað að gera.“
Leggja metnað sinn í vöruna
GÆÐIN ERU MIKIL HJÁ ÍSLENSKUM GARÐYRKJUBÆNDUM
Margrét
Frímannsdóttir