Ægir - 01.12.2015, Page 13
Hafrannsóknastofnun stendur
á tímamótum. Um svipað leyti
og haldið var upp á 50 ára af-
mæli stofnunarinnar síðastliðið
haust ákvað Alþingi að leggja
Hafrannsóknastofnun og Veiði-
málastofnun niður og sameina
þær í nýrri stofnun frá 1. júlí
2016.
Þessar tvær stofnanir eru
mjög ólíkar að stærð og umsvif-
um. Hafrannsóknastofnun með
um 150 manns og veltir hátt í 3
milljörðum króna en Veiðimála-
stofnun með um 20 manns og
240 milljóna króna veltu. Sam-
einuð stofnun mun heita Haf-
rannsóknastofnun, rannsókna-
og ráðgjafastofnun hafs og
vatna. Markmið sameiningar-
innar er að efla vísindalega
þekkingu á umhverfi og lifandi
auðlindum í hafi og ferskvatni
og stuðla að sjálfbærri og arð-
bærri nýtingu auðlindanna. „Ég
tel að samruni Hafrannsókna-
stofnunar og Veiðimálastofn-
unar sé jákvætt skref fyrir starf-
semina til lengri tíma litið. Það
eflir okkur faglega að blanda
saman tveimur heimum skyldra
fræða en það er hins vegar
grundvallaratriði að stofunin
verði í framtíðinni vel búin
tækjum og mannafla og geti til
að mynda rekið þau skip sem
nauðsynleg eru til rannsókna á
hverjum tíma,“ segir Jóhann
Sigurjónsson forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar.
Sterk fagleg staða
Hann segir faglega stöðu Haf-
rannsóknastofnunar mjög
sterka þrátt fyrir að undanfarin
ár hafi verið á brattann að
sækja í rekstrarlegu tilliti hjá
þeim eins og öðrum opinber-
um stofnunum. Vegna aðhalds
hafi meðal annars nýráðningar
ekki verið í þeim mæli sem
æskilegt væri og hætt sé við að
þekking tapist ef ekki er hugað
að þeim þætti.
„Það er ekki allt skráð á blað
eða í skýrslur sem hér fer fram
heldur berst þekking starfs-
manna einnig frá manni til
manns. Ef ekki er gripið til sér-
stakra aðgerða til að yfirfæra þá
þekkingu til nýrra kynslóða er
hætta á að hún tapist þegar
fólk hættir vegna aldurs. Nýlið-
un starfsfólks er því gríðarlega
mikilvæg. Við höfum gert átak í
þessum efnum í ár og ætlum
okkur að halda því áfram á
næstu árum.“
Jóhann bendir á að ástandið
í hafinu við Ísland og staða
nytjastofnanna sé stöðugt að
breytast. Þess vegna megi ekki
slaka á vöktun lífríkis og um-
hverfis hafsins heldur frekar að
bæta í svo auðlindin verði
áfram uppspretta velsældar um
ókomna tíð. „Um allan heim er
horft til Íslands sem fyrirmyndar
hvað varðar vísindalegan grunn
fiskveiða. Sóknarfæri íslensks
sjávarútvegs er nú sem fyrr að
vera skrefi framar og fyrirmynd
öðrum í haf- og fiskirannsókn-
um,“ segir Jóhann Sigurjónsson
forstjóri Hafrannsóknastofnun-
ar.
Hafrannsóknastofnun
á tímamótum
Jóhann Sigurjónsson forstjóri segir faglega stöðu Hafrannsóknastofnunar mjög sterka og samruna stofnunarinnar og Veiðimálastofnunar jákvætt
skref til lengri tíma litið. Mynd: Þormar Gunnarsson
H
a
fra
n
n
sók
n
a
stofn
u
n
13