Ægir - 01.12.2015, Síða 18
Árið 2008 var fyrsta svokallaða
Fab Lab smiðjan opnuð á veg-
um Nýsköpunarmiðstöðvar Ís-
lands í Vestmannaeyjum. Fab
Lab (Fabrication Laboratory) er
stafræn smiðja sem gefur fólki á
öllum aldri tækifæri til að þjálfa
sköpunargáfuna og hrinda
hugmyndum sínum í fram-
kvæmd með því að hanna,
móta og framleiða hluti með
aðstoð stafrænnar tækni. Frosti
Gíslason verkefnastjóri Nýsköp-
unarmiðstöðvar Íslands fyrir
Fab Lab á Íslandi segir markmið
verkefnisins að auka þekkingu á
stafrænum framleiðsluaðferð-
um og að skapa vettvang fyrir
nýsköpun og styrkja þannig
samkeppnishæfni iðnfyrirtækja,
menntastofnana og nemenda.
Fab Lab smiðjan í Eyjum er rek-
in í húsnæði Framhaldsskólans í
Vestmannaeyjum en í dag eru
einnig starfræktar Fab Lab
smiðjur í Reykjavík, á Sauðár-
króki, Ísafirði, Hornafirði og í
Fjarðarbyggð.
Aðstaða opin öllum yfir 12 ára
aldri
„Í dag hafa þúsundir einstakl-
inga nýtt sér Fab Lab smiðjurn-
ar um allt land og hafa ýmist
komið og unnið að sínum verk-
efnum eða tekið þátt í formlegu
námi sem er í boði á grunn-,
framhalds- og háskólastigi,“
segir Frosti. Í smiðjunum er að
hans sögn kynnt fyrir fólki á öll-
um aldri sú fjölbreytta skynjara-
og rafeindatækni sem má nota
til að stýra heilu verksmiðjun-
um bæði í sjávarútvegi og öðr-
um iðnaði.
„Hér er lagður grunnur að
frekara tækninámi og nemend-
ur geta nýtt aðstöðuna okkar til
að búa til frumgerðir að nýjum
tólum og tækjum sem síðan má
nota í iðnaði. Hér hafa vissulega
verið þróaðar frumgerðir sem
síðan hefur verið haldið áfram
með, þannig að þetta hefur ver-
ið að skila áþreifanlegum ár-
angri.“
Fab Lab smiðjurnar eru
opnar fólki allt frá 12 ára aldri
og segir Frosti að aukin sókn
nemenda í hvers kyns verk- og
tæknigreinar sé dæmi um sýni-
legan árangur af starfi þeirra.
Fab Lab smiðjan í Eyjum
Stuðlar að aukinni sókn
í verk- og tæknigreinar
Nemendur áhugasamir í tíma í Fab Lab smiðjunni. „Hér er lagður
grunnur að frekara tækninámi,“ segir Frosti.
Frosti Gíslason verkefnastjóri Fab Lab segir að hjá þeim hafi meðal annars verið þróaðar frumgerðir sem síðar hafi farið í frekari vinnslu.
Myndir: Óskar Pétur Friðriksson
M
en
n
tu
n
18