Ægir - 01.12.2015, Side 22
Vélar og framdrifsbúnaður frá Marás
Nýsmíði Samherja, Útgerðarfélag Akureyringa og FISK Seafood
Allt fyrir nýsmíðina
Marás ehf.
Miðhraun 13 - 210 Garðabær
Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230
www.maras.is
AUTOMATION TECHNOLOGY
Við leggjum metnað okkar í að bjóða
aðeins fyrsta flokks búnað og þjónustu
generationpower
STAMFORD
aðra í 234x175 fiskifréttir
TOIMIL
„Það er eins og enginn hafi
vit á sjávarútvegi nema að
hafa starfað á einn eða ann-
an hátt í landbúnaði.“
Stefna ríkinu
Glófaxaútgerðin vill fá úr því
skorið hvort stjórnsýsla Jóns
Bjarnasonar í sjávarútvegsráðu-
neytinu þegar hann færði til
skötuselskvóta milli héraða
stenst lög og þess vegna hefur
ríkinu verið stefnt. Málið mun fá
efnislega meðferð fyrir héraðs-
dómi og er Bergvin nokkuð viss
um að hver svo sem niðurstað-
an verði í héraðsdómi verði
málið líka að fara upp í Hæsta-
rétt, eða eins og hann orðar
það; það verður að fá úr því
skorið í eitt skipti fyrir öll hvort
slík vinnubrögð standist lög. „Ef
ríkið getur á einni nóttu gert
slíkar grundvallar breytingar
með skötuselinn, það er að
færa hann í potta út og suður,
hlýtur það að gilda um allar
aðrar fisktegundir og því þarf
að fá úr þessu skorið með dómi
í eitt skipti fyrir öll. Við viljum fá
niðurstöðu í málið og það vilja
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
einnig.“
Bergvin dregur
ekki dul á að
einn helsti óvin-
ur útgerðarinn-
ar í gegnum tíð-
ina hafi verið
stjórnkerfið og
endalaus frum-
skógur reglu-
gerðarbreyt-
inga ár eftir ár,
sem hafi gert
útgerðinni erfitt
fyrir með að
gera áætlanir
fram í tímann.
„Veistu það að
ég skil þetta ekki með sjávarútvegsráðherr-
ana, það er eins og enginn hafi vit á sjávarút-
vegi nema að hafa starfað á einn eða annan
hátt í landbúnaði. Núna er Sigurður Ingi Jó-
hannsson sjávarútvegsráðherra og hann er
dýralæknir að mennt, áður var Jón Bjarnason,
fyrrverandi skólastjóri á Bændaskólanum á
Hólum, í þessu ráðuneyti og þar áður Stein-
grímur J. Sigfússon, bóndasonur úr Þistilfirði
og jarðfræðingur, og síðan ef við förum
lengra til baka var Árni M. Mathiesen í sjávar-
útvegsráðuneytinu og hann var líka mennt-
aður dýralæknir. Þetta er með hreinum ólík-
indum! Við hverju getur maður búist þegar í
þetta ráðuneyti koma menn ár eftir ár sem
aldrei hafa komið nálægt þessari atvinnu-
grein? Að sjálfsögðu eru þetta þó allt saman
hinir vænstu menn og viðkunnalegir. Ég hef
einu sinni hitt Sigurð Inga til þess að ræða við
hann um skötuselsmálið. Hann tók okkur vel
en ég held að hann hafi ekki haft hugmynd
um hvað við vorum að tala. Hann brosti bara
til okkar! Matthías Bjarnason, sem var sjávar-
útvegsráðherra í eina tíð, vissi hvað hann var
að tala um og það sama átti við um Þorstein
Pálsson sem stóð við það sem hann sagði,
það mátti hann eiga.“
Hvernig er þetta með
sjávarútvgsráðherrana?
22