Ægir - 01.12.2015, Síða 56
Norðursigling á Húsavík er í vali
til stærstu umhverfis- og við-
skiptaverðlauna Evrópu, Green-
Tec Awards, í flokki ferðamála.
„Þetta er mikill heiður fyrir okk-
ur og viðurkenning á þeirri um-
hverfisvænu vegferð sem við
höfum markað okkur,“ segir
Guðbjartur Ellert Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Norðursiglingar.
Norðursigling er fyrsta hvala-
skoðunarfyrirtækið í heiminum
sem býður upp á hvalaskoðun-
arsiglingar án þess að jarðefna-
eldsneyti sé notað en fyrirtækið
hefur, í samstarfi við fleiri aðila,
þróað einstakan og umhverfis-
vænan rafbúnað sem knýr
skonnortuna Opal. „Þetta er
svolítið eins og að vera tilnefnd-
ur til Óskarsverðlauna og að
sama skapi vekur þetta athygli á
Íslandi sem umhverfisvænum
áfangastað.“
Taktu þátt í netkosningu
Netkosning er nú hafin um hver
þeirra tíu aðila, sem eru í hverj-
um flokki, lendir í einu af efstu
þremur sætunum en dómnefnd
velur síðar sigurvegarann úr
þeim hópi. Verðlaunin eru veitt
í sextán flokkum og er Norður-
sigling tilnefnd í flokknum
„Ferðalög“ (e.Travel). „Við biðl-
um því til Íslendinga um að
leggja okkur lið með því að taka
þátt í netkosningunni sem er nú
hafin,“ segir Guðbjartur Ellert.
Netkosningin fer fram á vefslóð-
inni www.greentec-awards.com
og er öllum frjálst að taka þátt.
Vekur mikla athygli um allan
heim
Nýsköpun Norðursiglingar þykir
einstök og hefur vakið athygli
víða um heim. Hlaut fyrirtækið
nýverið silfurverðlaun World
Responsible Tourism Awards
2015 á World Travel Market
(WTM) í London sem er ein
stærsta ferðasýning í heiminum.
Þetta var jafnframt í fyrsta skipt-
ið sem íslenskt fyrirtæki hefur
verið tilnefnt til verðlaunanna.
Norðursigling hefur einnig
hlotið verðlaun og viðurkenn-
ingar hérlendis en fyrirtækið
hlaut Umhverfisverðlaun Ferða-
málastofu í annað sinn nú í ár
og var valið fyrirtæki ársins af
ferðaþjónustuaðilum á Norður-
landi í haust.
Norðursigling gæti unnið til stærstu
umhverfisverðlauna Evrópu
Umhverfisvæna skonnortan Ópal á siglingu við Grænlandsstrendur nú í sumar.
56
www.isfell.is
Sjófatnaður
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
F
réttir