Morgunblaðið - 23.07.2016, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Mannauðsstjóri
Traust og öflug tenging
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst 2016.
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi.
Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Tinni Kári Jóhannesson (tinni.johannesson@capacent.is) hjá Capacent.
Hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði
mannauðsmála kostur
• Víðtæk reynsla á sviði mannauðsmála
• Reynsla af breytingastjórnun
• Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
• Sveigjanleiki og áhugi á að fylgjast með nýjungum á sviði
mannauðsmála
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Þróun mannauðsstefnu og stuðla að traustri
fyrirtækjamenningu
• Ráðgjöf til stjórnenda í mannauðs- og kjaramálum
• Ábyrgð á launavinnslu og gerð launaáætlana
• Þátttaka í gerð kjarasamninga og samskipti við stéttarfélög
• Ráðningar og ráðningaferlar
• Fræðslu- og starfsþróunarmál
Um Landsnet
Við flytjum raforku á Íslandi og stýrum
uppbyggingu flutningskerfisins. Við
sjáum fyrir okkur rafvædda framtíð
sem er í takt við samfélagið og höfum
sett okkur það markmið að tryggja
örugga afhendingu á raforku til
framtíðar og að ná sátt um þær leiðir
sem farnar verða. Við viljum taka
tillit til þarfa samfélagsins á hverjum
tíma og sýnum ábyrgð í umgengni
við náttúruna. Við berum umhyggju
hvert fyrir öðru og viljum skapa góðan
vinnustað með spennandi verkefnum.
Við höfum að leiðarljósi gildin okkar:
samvinnu, ábyrgð og virðingu.
Landsnet leitar að öflugum einstaklingi til að leiða mannauðsmál félagsins og taka
þátt í uppbyggingu og þróun fyrirtækisins til framtíðar. Landsnet leggur áherslu á
metnaðarfulla mannauðsstefnu, góða fyrirtækjamenningu og sterka liðsheild í umhverfi
sem er í hraðri mótun.
Oddi óskar eftir að ráða vörumerkjastjóra
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur þekkingu og reynslu
úr vörustjórnun ásamt markaðsmálum. Viðkomandi þarf að vera góður
greinandi sem sér stóru myndina og greinir tækifæri til að auka árangur.
Einnig að eiga auðvelt með að vinna í teymi og vera fylginn sér við að
koma sínum áherslum á framfæri við sölustjóra og sölumenn.
Oddi er stærsti framleiðandi landsins á sviði umbúða úr pappír og plasti, ásamt því að veita atvinnulífinu fjölbreytta prentþjónustu.
Viðskiptavinir Odda eru úr mörgum starfsgreinum einkum á sviði sjávarútvegs, matvælaframleiðslu, iðnaðar, verslunar, þjónustu
og útgáfu. Oddi hefur um 240 starfsmenn á fjórum starfsstöðvum í Reykjavík og er velta fyrirtækisins liðlega 5 milljarðar króna.
Oddi er jafnréttissinnaður vinnustaður sem leggur mikla áherslu á samspil mannauðs, samfélags og umhverfis.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á