Morgunblaðið - 23.07.2016, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
16 á spænsku og kl. 18 er sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Hjálmar
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Lára
Bryndís Eggertsdóttir er organisti og félagar úr
Dómkórnum leiða sönginn. Minni á bílastæðin
gegnt Þórshamri.
GRAFARVOGSKIRKJA | Sumar-
kaffihúsamessa kl. 11. Séra Guðrún Karls
Helgudóttir prédikar, þjónar og býður í kaffi
ásamt Herdísi Guðbrandsdóttur kirkjuverði.
Arnhildur Valgarðsdóttir er organisti og Hjörleif-
ur Valsson leikur á fiðlu.
GRENSÁSKIRKJA | Vegna sumarleyfa er
Grensáskirkja lokuð til 12. ágúst. Bent er á
guðsþjónustur í öðrum kirkjum.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgistund kl.
11. Orgelleikur, sálmasöngur, ritningarlestur,
hugleiðing, bænagjörð, altarisganga. Prestur
sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti er Douglas
A. Brotchie. Kaffisopi í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Orgeltónleikar þriðjudaga kl. 12.15 -
12.45. Ókeypis aðgangur. Douglas A. Brotchie
leikur.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Dr. Sig-
urður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt hópi messuþjóna. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Steinar Logi Helgason. Sögustund fyrir börnin.
Alþjóðlegt orgelsumar, tónleikar laugard. kl.
12 og sunnud. kl. 17. Ligita Sneibe frá Lett-
landi, organisti í Svíþjóð, leikur. Fyrirbæna-
guðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdeg-
ismessa miðvikud. kl. 8. Tónleikar Schola
cantorum miðvikud. kl. 12 og orgeltónleikar
fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti er
Bjarni Þór Jónatansson. Prestur er sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
Hjúkrunarheimilið Eir | Guðsþjónusta kl. 15.
ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11, sr.
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar. Félagar
úr kór Árbæjarkirkju leiða söng og organisti er
Guðmundur Ómar Óskarsson.
ÁSKIRKJA | Vegna sumarleyfa sóknarprests
og starfsfólks Áskirkju fellur helgihald niður á
morgun. Næst verður messað í Áskirkju sunnu-
daginn 31. júlí kl. 11.
BÚSTAÐAKIRKJA | Sumarmessa kl. 11. Kór
Bústaðakirkju leiðir sönginn undir stjórn kant-
ors Jónasar Þóris. Fermdur verður Eyþór Smári
Sigurðsson Ringsted. Messuþjónar aðstoða.
Heitt á könnunni eftir messu. Prestur sr. Pálmi
Matthíasson.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18 og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
Sr. Vigfús Þór prédikar og þjónar fyrir altari.
Þorvaldur Halldórsson syngur létt lög frá kl.
14.30.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Organisti er Lenka Mátéová, kantor kirkj-
unnar.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Lítill
drengur borinn til skírnar. Skírnarminning og
skírnarsálmar. Félagar úr kór Neskirkju leiða
söng. María Kristín Jónsdóttir leikur undir.
Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Kaffihressing eftir guðsþjónustuna.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr.
Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson og
félagar úr Kór Seljakirkju leiða almennan safn-
aðarsöng. Molasopi að messu lokinni.
Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 16.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund kl.
11 í umsjá sóknarprests. Kaffiveitingar og
samfélag eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Hátíðarmessa á
Skálholtshátíð kl. 14. Vígslubiskup, sr. Krist-
ján Valur Ingólfsson, prédikar. Fyrir altari þjóna
sr. Egill Hallgrímsson, sr. Halldór Reynisson,
sr. Axel Á. Njarðvík, sr. Jóhanna Magnúsd., sr.
Solveig Lára Guðmundsd. Hólabiskup og bisk-
up Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir. Skál-
holtskórinn syngur. Einsöngvari er Benedikt
Kristjánsson. Sellóleikari er Steinunn Arnbjörg
Stefánsd. Semballeikari er Brice Sailly. Tromp-
etleikarar eru Jóhann I. Stefánsson og Vil-
hjálmur Ingi Sigurðsson. Organisti er Jón
Bjarnason.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Sóknarprestur þjónar. Kór Njarðvíkurkirkna
syngur undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar
organista.
Orð dagsins: „Hver sem
mikið er gefið verður
mikils krafinn og af þeim
verður meira heimtað
sem meira er léð.“
(Lúk 12.48b)
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Búðakirkja
Skrítið dæmi um
óstjórn er komið upp í
Skaftafellssýslu.
Þar hafa landsmenn
um aldir barist við óblíð
náttúruöfl, eldgos,
hraunstrauma og stór-
flóð sem ógna jafnt
byggðinni, landinu og
lífríkinu, hvort sem er
mannfólki eða öðrum
jarðarbúum. Og nú,
þegar Skaftfellingar vilja bjarga fersk-
vötnum og dýrmætum fiskistofnum
sínum, stofnum sem að öllum líkum
hafa verið í ánum allt frá síðustu ísöld,
þá er uppi sú staða að tilbúið vald í höf-
uðborginni virðist hafa getu til að
stöðva þann mikla dugnað og sjálfs-
bjargarviðleitni sem fólkið á svæðinu
hefur sýnt í gegnum aldirnar.
Þvílík skömm fyrir okkur sem þjóð
og í raun léleg vinnubrögð Alþingis
okkar að slíkar reglur skuli nokkurn
tímann hafa verið samdar. Fróðlegt
væri að fá að vita rökin sem liggja til
grundvallar slíkri reglusmíði.
Það má þakka fyrir að aðrir eins
hraunstraumar og óáran verði ekki
þarna og voru í móðu-
harðindum. Ætli Skaft-
fellingar þyrftu þá að fá
leyfi sunnan úr Reykja-
vík til að fá að berjast á
móti eða koma sér und-
an?
En annars, hvaða þörf
er á að Orkustofnun sé
með puttana í svona mál-
um? Hvaða tilgangi þjón-
ar það?
Er ekki kominn tími til
að röksamir alþing-
ismenn breyti svona vit-
leysu hið snarasta þannig að lands-
menn þurfi ekki að leita í einhverjar
vitleysisreglur sem misvitrir menn
hafa sniðið í gegnum tíðina.
Skora ég hér með á hið háa Alþingi
okkar að endurskoða og laga svona
reglur hið snarasta.
Á stjórn landsins
að vera til góðs
eða ekki?
Eftir Hjálmar
Magnússon
Hjálmar Magnússon
» Fróðlegt væri að fá
að vita rökin sem
liggja til grundvallar
slíkri reglusmíði?
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri.
Það vekur sannarlega athygli að nærri
90 einstaklingar hafa ákveðið að bjóða
sig fram í prófkjöri sem Píratar hyggj-
ast halda. Marga langar greinilega á
þing, annars vekur það athygli varð-
andi stefnu Pírata hvað hún er óljós og
lítið gefið upp um stefnumál þeirra.
En það virðist ekki koma að sök því
fylgi þeirra heldur áfram að vera
nokkuð mikið í hverri skoðanakönn-
uninni af annarri. Manni finnst skrítið
hversu margir eru tilbúnir að lýsa yfir
fylgi við þá. Fólk veit nákvæmlega
ekkert hvað það er að kjósa yfir sig
með því að kjósa Pírata. Stefnumálin
eru það óljós og þokukennd.
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Óljós stefna Pírata
Morgunblaðið/Eyþór
Kosningar Bréfritara finnst stefnu-
mál Pírata óljós.
Feld
u
það
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?